Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1971, Blaðsíða 14

Símablaðið - 01.01.1971, Blaðsíða 14
MÞROTTAFELA G PÚSTS OG SÍMA Snemma árs 1970 komu saman nokkrir símamenn, er áhuga höfðu á að senda lið frá stofnuninni til keppni í firmakeppni í handknattleik, sem þá stóð fyrir dyrum. Á þennan fund var mættur Hákon Bjarna- son úr framkvæmdastjórn F. í. S. Hann lagði til, að stofnað eða réttara sagt endur- reist yrði íþróttafélag meðal starfsmanna stofnunarinnar, en fyrir nokkrum árum starfaði félag, sem kallaðist íþróttafélag símamanna. Var ákveðið að kjósa 5 manna stjórn. Erfiðlega gekk að fá fundargesti til að gefa kost á sér í hinar lausu stöður, og þá sérstaklega í formannsembættið. Þetta tókst þó að lokum, og í þessari nýju stjórn eru nú eftirtaldir menn: Formaður Erling- ur Kristjánsson, varaformaður Gylfi Jóns- son, gjaldkeri Sigurður Jónsson, ritari Ol- afur Adolphsson og áhaldavörður Hörður Halldórsson. Ákveðið var að kalla félagið íþróttafélag Pósts og síma, og var póst- mönnum boðin þátttaka í væntanlegum æfingum. Ekki tókst að útvega húsnæði fyrir inniæfingar fyrst í stað, og varð því að senda lið frá félaginu að mestu óæft til keppni í firmakeppni í handknattleik. Árangur liðsins var mjög góður, komst íþróttaæfing. í úrslitakeppnina og tapaði aðeins einum leik, en það var leikur við starfsmenn ÍSALs, sem sigraði í þessari keppni. Leik- urinn tapaðist með 2ja marka mun. Næst var að útvega knattspyrnuvöll. Gekk erfiðlega að fá fasta æfingatíma, en Háskólavöllurinn fékkst þó yfirleitt einu sinni í viku. Félagið tók þátt í firma- keppni K. S. í. og gekk vel. í riðli með Pósti og síma voru eftirtalin lið: Slátur- félag Suðurlands, ÍSAL, Prentsmiðjan Edda, Landsbanki íslands, Slökkvilið Rvík- ur og Kristján Ó. Skagfjörð. Allir leik- irnir unnust nema við S. S. og ísal, sem urðu jafntefli. S. S. vann þennan riðil og keppti til úrslita við Vífilfell (Coca Cola). Vífilfell vann svo úrslitaleikinn og þar með keppnina. Tvö efstu liðin úr hverjum riðli unnu sér rétt til að keppa í 1. deild í næstu firmakeppni, meðal þeirra var lið frá Pósti og síma. í vetur tókst að fá æfinga- tíma í nýja K. R. húsinu við Kaplaskjóls- veg. Æfingar þessar hafa verið mjög vel sóttar, um 60 starfsmenn hafa komið á eina eða fleiri æfingar. Æfingum þessum stjórnuðu aðallega þrír menn, þeir Gústav Arnar, Sigurður Jónsson og Þorsteinn Friðþjófsson (tollpóststofunni). Æfingar þessar eru fyrir ALLA, en ekki aðeins fyrir keppnisliðin. Eitt hraðkeppnimót í innanhússknatt- spyrnu milli deilda og vinnustaða var haldið, með þátttöku 7 liða (6 frá síma og 1 frá pósti). Þetta mót vann lið, sem keppti fyrir sjálfvirku stöðina í Reykjavík. Félagið sendi lið í firmakeppnina í handknattleik 1971, sem stendur núna yfir. Ekki gekk eins vel núna og í fyrra, liðið varð númer 2 í sínum riðli og komst ekki í úrslitakeppnina. Að síðustu þökkum við formanni F. I. S. og stjórn Menningar- og kynningarsjóðs fyrir veittan stuðning við starfsemi okkar. G. J. 12 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.