Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Hasspar Um hálfáttaleytið í fyrrakvöld höfðu lögreglu- menn afskipti af ungu pari á bifreið á Reykjanesbraut þar sem það var að koma úr höfuðborginni en parið er grunað um að hafa verið að kaupa fíkniefni þar. Við leit á öðrum aðilanum fundust íjögur grömm af hassi. Parið var handtekið og fært til lögreglustöðvar. Leit var framkvæmd í bif- reiðinni og á heimili þeirra en ekkert saknæmt fannst við þá leit. Eftir yfirheyrslu var parið látið laust. Pé. Allttómt Átak DV gegn þeim sem leggja ólöglega í bflastæði fatlaðra virðist skila sér. Könnun DV í dag á bfla- stæðum við stærri verslun- arkjarna á höf- uðborgarsvæð- inu skilaði eng- um ljósmynd- um af bflum sem hafði verið lagt ólöglega í stæði fatlaðra og má því ætla að íbúar séu orðnir meðvitaðir um notk- un stæðanna. Næstu daga mun DV taka stöðuna á helstu bflastæð- um borgarinnar og kanna hvort einhverjir misnoti þessi stæði. þátt I Eurovision.„Ég sit hérna i rólegheitunum á kaffíhúsi og nýtþess aö vera búinn meö vinnutörnina sem ég hefveriö í undanfarna daga." hjartaáfalli. Hjálmar Árnason alþingismaður var hætt kominn þegar hann hné niður í hjartastoppi í fyrrakvöld. Hafði Hjálmar þá verið á stjórnmálafundi á Flúðum og kenndi sér meins fyrir brjósti þegar hann loks kom heim til Keflavíkur seint og um síðir. „Eftir fundinn fékk Hjálmar farmeð Guðna landbúnað- arráðherra í bæinn aftur og skiídu leiðir þeirra við Rauða vatn þarsem Hjálmar hafði lagt bíl sínum. Ók Hjálmar þaðan til Kefla- víkur." við með raflosti Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, fékk hjartaáfall í fyrrinótt og var lífg- aður við með raflosti af læknum í Reykjanesbæ. Líðan hans nú mun vera stöðug og eftir aðstæðum. „Hjálmar var með okkur á al- mennum stjórnmálafundi á Flúðum á miðvikudagskvöldið," segir ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi og varaþing- maður Hjálmars á Alþingi. „Eftir fundinn fékk Hjálmar far með Guðna landbúnaðarráðherra í bæ- inn aftur og skildu leiðir þeirra við Rauðavatn þar sem Hjálmar hafði lagt bfl súium. Ók Hjálmar þaðan til Keflavíkur," segir ísólfur Gylfi þegar hann er inntur eftir atburðum kvöldsins. Fékk sting fyrir brjóst Hjálmar Árnason náði til síns heima í Reykjanesbæ en var ekki fyrr kominn þangað en hann fékk sting fyrir brjóstið. Leist honum og eigin- konu hans ekki meira en svo á ástandið að þau fóru sem leið lá á sjúkrahúsið í Reykjanesbæ: „Þar gerist það svo að Hjálmar hnígur niður i hjartastoppi og þurftu læknar að gefa honum raf- magnsstuð til að lífga við. Eftir það var Hjálmar fluttur til Reykja- víkur þar sem hann gekkst undir aðgerð og hjartaþræðingu," seg- ir ísólfur Gylfi Pálmason sem þegar í gærmorgun tók sæti fé- laga síns á Alþingi. Býst ísólfur Gylfi við að sitja þar um hríð því ljóst er að Hjálmar kemur ekki til starfa næstu vikumar. „Ég mun reyna að sinna sveitarstjórastarfinu á Flúðum samhliða þingmannsstarfinu," segir hann. „Þetta kom svo óvænt upp." Engin merki veikinda Ekki segist ísólfur Gylfi hafa séð nein merki þess að Hjálmar væri veikur á fundinum á Flúðum. Hann hafi verið sjálfum sér líkur en þetta atvik minni menn á þann eril sem þingmenn búi við: „Menn em mættir klukkan átta að morgni, vinna allan daginn og þurfa svo að æsa sig upp fyrir fundi á kvöldin og eru kannski ekki komnir heim fyrr en um miðjar nætur. Þá eiga þeir eftir að ná sér niður. Þetta tekur allt á," segir ísólf- ur Gylfi Pálmason. Hjálmar Arnason Bar engin merki veikinda á stjorn málafundi á Flúo- um rétt aour en hann hné niðuri ísólfur Gylfi Pálma son Tekursæti Hjálm ars á Alþingi. Fluðir Þarna varstjórn- málafundur Framsóknar- flokksins haldinn f fyrrakvöld ELISABET VILL BARA ANÆGÐA VIÐSKIPTAVINI. ÞESS VEGNA GETUR ÞÚ HÆTT HjÁ HENNI ÞEGAR ÞÚ VILT. HÚN ER BARA ÞANNIG SKJALDBAKA. BETRI KjÖR Á BÍLATRYGGINGUM OG BÍLALÁNUM elisabet.is Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf. Benedikt Jósepsson svekktur út í borgarráð Fær aðeins eina lóð „Ég er dálítið svekktur á því að þeir skuli hafa hent út mínum boðum, verð að viðurkenna það en það þýðir ekkert að rífast við dómarann," segir Benedikt Jósepsson sem átti hæsta tilboð í 39 einbýlishúsalóðir við Úlf- arsfell en fær bara að kaupa eina. Borgarráð samþykkti í gær að hver einstaklingur geti aðeins keypt eina lóð undir sérbýli við Úlfarsfell. Stefán Jón Hafstein, formaður borgarráðs, segir ákvörðunina tekna í samráði við lögfræðinga sem sátu fund ráðsins í gær. „Þeir fóru yfir tillöguna og við ræddum hvort hún væri ekki skot- held fyrir borgina og þeirra niður- staða var sú að hún væri algjörlega skotheld. Það er ekkert sem segir það að fólk geti ekki sótt rétt sinn ef það vill en við teljum okkur hafa fast land undir fótum. Þetta er bara til þess að gulltryggja það að við lendum málinu eins og til var ætl- ast," segir Stefán Jón og viðurkenn- ir að útboðinu hafa verið ábóta- vant. „Þarna var gloppa í undirbún- ingi málsins, það er alveg ljóst." Benedikt segir lögfræðing hans munu fara yfir málið á næstu dög- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.