Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Side 2
GUS GUS HELDUR S(NA SÍÐUSTU TÓNLEIKA A ÞESSU ARIA LAUGARDAGSKVÖLD A NASA. ASTÆÐAN ER EIN-
FÖLD, URÐUR SÖNGKONA ER ÓLÉTT OG KOMIN LANGT A LEIÐ. GUS GUS STÍGUR A STOKK A MIÐNÆTTIOG EKKI
SEKÚNDU SEINNA OG ÞVÍ NAUÐSYNLEGT FYRIR l>A SEM ÆTLA AÐ HLfÐA A ÞAU AÐ MÆTA TÍMANLEGA.
HUOMSVElTtN GUS
GUSVERÐURÁNASA
ANNAÐ KVÖLD.
ÞETTA ERU SÍÐUSTU
TÓNLEIKAR SVEITAR
INNAR Á ÞESSU ÁRI
„Við byrjum á miðnætti og ekki sekúndu
seinna enda ekki boðlegt fyrir þungaða
konu að spila langt fram á nótt. Fólk sem
ætíar að koma verður því að mæta tíman-
lega." segir President Bongó, meðlimur Gus
Gus. Hljómsveitin verður á skemmtistaðn-
um NASA á laugardagskvöld og þau byija að
spila á miðnætti eins og áður segir.
„Urður söngkona sveitarinnar er ólétt og
við ætlum að taka okkur frí frá tónleikahaldi
út þetta ár. Hún fær tíma til að eyða tíma
með barninu og sleppa því að stíga á stokk.
Næstu tónleikar okkar verða lfklega ekki fyrr
en í janúar á nýju ári."
Hvað á þá að gera í fríinu? „Þetta er ekk-
ert frí. Það kemur ný plata í júm' svo það er
nóg að gera. Þá er einnig nóg að gera í DJ-
mennsku langt fram á vor þannig að við
erum síður en svo lögst í dvala. Svo þegar
Urður verður búin að fá tíma með barninu
förum við á fullt að fylgja eftír plötunni. Það
er eðlilegt að fylgja eftir plötu í svona átján
mánuði,"segir President Bongó, sem er
greinilega tónlistamaður af gamla skólan-
um, stundvís og skipulagður með eindæm-
um.
Eftir að Gus Gus hafa lokið leik taka við
Exos og Biggi Veira og spila fram undir
morgun eins og segir á heimasíðu NASA.
HH
A SÍLÍKONBARMI
HEIMSFRÆGBAR
Hljómsveitin Jeff Who? er einhver skemmtilegasta hljómsveit sem
ég hef hlustað á í langan tíma.Á tónleikum eru þeir manna hressast- j
ir og stelpur flykkjast til að sjá þá. Þeir eru Boyband. Ný tegund í þeim
geira. Fyrst voru það Bítlarnir, svo niðurlægingartímabilið með *
Backstreet Boys, og nú er ímynd boybandsins að rísa með tilkomu Jeff
Who?. Boyband með hæfileika. Strákarnir eru á leiðinni út til New York
til þess að gera sig sýnilega. Þeir eru ekki á barmi heimsfrægðar og taka
það skýrt fram sjálfir. Enda eru þær ófáar hljómsveitirnar sem hafa
fengið þann stimpil á sig og fæstar hafa þær komist lengra en á
þennan ágæta barm sem virðist vera stór og útroðinn af sílíkoni.
Hvað sem verður með Jeff Who? efast ég ekki um það að þeir
munu halda áfram að vera besta stuðband landsins og stelpurnar
hætta ekkert að mæta á tónleika - svo lengi sem strákarnir halda
sér í formi. SólmundurHólm
Auglýsingastjórí: Jóhannes Már
Sigurðarson
Kynningarstjóri: Guðmundur
Arnar Guðmundsson
Sölustjóri: Einar Björgvin Davíðsson,
sirkusauglysingar@365.is
Ritstjóri: Sólmundur Hólm
Ritstjóm: Hjörvar Hafliðason og Sigríður
Ella Jónsdóttir.
Askrift 550 5000 / askrift@365.is
Prentun: Isafoldarprentsmiðja
Forslöumyndina
tók Heiða
Helgadóttir af
hljómsveitinni
JeffWho?
SIRKUS
MÆLIRMB
Sirkus RVK mælir eindregið með öllum almennilegum ferm-
ingartilboðum. Fyrir aurapúkana okkur er alltaf gaman að
eyða án þess að eyða of miklu og því er tími komin til að versla
sér eitthvað á einstaklega góðu fermingartilboði. Nýtið öll
tækifæri sem þið getið til að spára, kaupið ykkur hljómflutn-
ingsgræjur og heimabíó.
Sirkus mælir sannarlega með speltbrauði. Speltbrauð er betra
á bragðið, hollara og þú verður alvörusaddur af því.
Tónlistarveislur eru uppáhald okkar allra. Nú eru tónleikar á
Grand Rokk bæði í kvöld og annað kvöld. Þorskastríðið er hafið
og það er ekki eftir neinu að bíða, þetta eru margar góðar
hljómsveitir og svona til að gleðja ykkur enn meira þá er frítt
inn fyrir tóma yasa.
Eitt af því sem enginn má láta fram hjá sér fara er sjálfshjálp-
arbókin hans Andra Snæs Magnasonar. Bókin ætti að vera öll-
um draumur sem er orðinn að veruleika, bókin heitir líka því
fallega og uppörvandi nafni Draumalandið. Ekki láta þetta
framhjáykkurfara.
4 - Ungfrú Suðurland tekin á teppið
6 - Tómas Lemarquis er með klígju fyrir hári
í JeffWho? eru ný tegund af boy-bandi
10 -Tony the Ponyeru hlynntirálveri
12 - Alffún Páls og Viktor Bjarki opna dyrnar
14 - Spumingakeppni rauðhærða fólksins
16-17 - Fjölmiðlafólk í auglýsingum
18 - Litla hryllingsbúðin á Akureyri
29-30 - Allt sem þú vilt vita um menningar-
og skemmtanalífið í Reykjavík
31 - Gillzenegger kennir þér að losna við leiðinlega kærustu