Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 26
 KRISTÍN RUTH JÓNSDÓTTIR ER MEÐ MORGUNÞÁTTINN ZÚBER Á FM957 EN JAFNFRAMT ER HÚN í VIÐ- SKIPTAFRÆÐIHÁSKÓLANUM f REYKIAVÍK. KRISTÍN HEFUR VERIÐ MEIRA EÐA MINNA í ÚTVARPINU ALLAÆVI. a- „Zúberþátturinn er morgunþáttur sem er alltaf á milli 7 og 10," segir Kristín Ruth út- varpskona. „Við vöknum til að koma öðrum í gott skap á morgnana, við erum með ótrú- lega fjölbreytt efni og erum alltaf með eitt- hvað húllumhæ," segir Kristín og er greinilega hæstánægð með þáttinn. PABBIVAR ÚTVARPSMAÐUR „Ég er búin að vera í eitt og hálft ár í þætt- inum en það má segja að ég sé búin að vera viðloðandi útvarpi síðan ég fæddist," segir Kristín. „Pabbi var nefnilega útvarpsmaður líka þannig að ég er búin að vera með annan fótinn í þessum bransa síðan ég man eftir mér. Þetta er náttúrlega bara alveg æðislegt og mér finnst ekkert smá gaman að vakna á morgnana og taka þátt í þessu. Það skemmti- legasta við þetta er að maður er að vinna við það að reyna að skemmta fólki. Svo er líka svo skemmtilegt hvað maður þarf að vakna æðislega snemma á undan öllum og það er engin umferð," segir Kristín og skellir upp úr. Á LAUSUí HR „Það er líka svo gott hvað maður kynnist mörgu mismunandi fólki og mismunandi sjónarhornum á lífinu" segir Kristín um kosti starfsins. „Þetta er svo mikil reynsla og já, bara klikkað gaman. Framundan er náttúr- lega bara að vinna og svo er ég í Háskólanum í Reykjavík í viðskiptafræði,"segir Kristín sem er mörgum .til mikillar gleði á lausu. Þegar ég bið Kristínu að segja mér eitthvað skemmtielgt svona í lokin kemur hún mér í opna skjöldu með gátu. „Hvað er gult á dag- inn og grænt á nóttunni?" spyr hún spennt og þar sem spyrjandinn er lítt að sér í gátum verður hann að segja pass. „Það er banani sem tekur að sér næturvakt sem agúrka," segir Kristín hress í bragði. SEJ Þættir um Bikinimodel Islands hefjast á miðvikudaginn á sjónvarpsstöðinni Sirkus. í þáttunum keppa tíu stúlkur um að komast út til Las vegas í Hawaian tropic fyrirsætukeppnina. (hverjum þætti detta tvær stúlkur úr keppni þar til ein stendur uppi sem sigurvegari og fer til Las Vegas. Ásdís Rán Gunnarsdóttir er formaður dómnefndar en með henni í dómnefnd situr Baldur Baldursson, betur þekktur sem Balli fónk. I hverjum þætti mætir svo einn gestadómari sem dæmir hvert þema fyrir sig. Þættirnir eru fimm talsins og verður áhugavert að fylgjast því hvernig þessum stúlkum reiðir af í hinum ýmsu þrautum. x-usmw SÆTI FLYTJANDI LAG 1. Pearl Jam - World Wide Suicide 2. System Of A Down - Lonely Day 3. Dr. Mister & Mr. Handsome - Boogie Woogie Sensation 4. Bullet For My Valentine - All These Things I Hate 5. Fræ - Freðinn Fáviti 6. Wulfgang - Machinery 7. The Strokes - Heart In A Cage 8. Future Future - Code Civil 9. Ampop-Clown 10. She Wants Revenge - Tear You Apart 11. Siggi Ármann - Fake Like Drawn 12. Jet Black Joe - Fuli Cirde 13. Avenged Sevenfold - Beast AndThe Harlot 14. Wolfmotker - Dimension 15. Hermigervill - Sleepwork 16.Shinedown-SaveMe 17. Gorillaz - Kids With Guns 18. Hoffman - 60 secs Billy 19. Korn - Coming Undone 20. Dimma - Big Bad Mama PEARLJAM ERU KOMNIR ÁTOPPINN. 20. Kelly Clarkson WalkAway SILVÍA NÓTT SITUR SEM FASTASTÁTOPPILISTANS 1. Silvía Nótt Til hamingju ísland 2. Mary J. Blidge One 3.Cascada EverytimeWeTouch 4. Eminem/NateDogg ShakeThat 5.Stained Right Here 6. All American Reject Dirty Little Secret 7. Kelly Clarkson Gone 8. Lee Ryan When IThinkOf You 9. Click Five CatchYourWave lO.GwenStefani Crash ll.Craig David Unbelieveble 12. Daniel Powder Free Loop 13. Dr. Mister & Mr. Handsome Kokaloca 14. Pink Stupid Girl IS.Neyo- SoSick 16. Pussycat Dolls Beep 17. Lifehouse - Blind 18. WhiteStripes My Doorbell 19.Ampop- My Dellusions

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.