Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Qupperneq 10
ROKKHUÓMSVEITIN TONYTHE
PONY FRA HÚSAVfK SLÓ f GEGN
í MÚSfKTI LRAUNUM ÁRIÐ 2004
ÞAR SEM ÞEIR URÐU (ÞRIÐJA
SÆTI. ÞINGEYINGARNIR ERU NÚ
MÆTTIR (BORGINA OG ÆTLA
AÐ SPILA (KASTUÓSINU AUK
ÞESS SEM ÞEIR VERÐA A TÓN-
LEIKUM Á GAUKNUM (KVÖLD.
SIRKUS RVK RÆDDIVIÐ SÖNGV-
ARA SVEITARINNAR, RAFNAR
ORRA, UM HUÓMSVEITINA,
GELLURNAR, RUGLK) OG AUÐ-
VITAÐ STÓRIÐJUNA.
TONYTHEPONY ASÍÐUSTU
AIRWAVES-HÁTIÐ
EINU ROKKARAR LANDSMS
Sirkus RVK: Tony The Pony?
Rafnar Orri: Tony the Pony kemur frá Húsa-
vík og var stofnuð fyrir tveimur árum. Við
erum allir 17 og 18 ára. Ég syng og spila á
gítar, Jakob Pálmi spilar á gítar, Reynir á
trommur og Bjarni á bassa. Við höfum
komið okkur vei fyrir á Húsavík í góðu æf-
ingahúsnæði og erum með okkar eigið
stúdío sem við erum búnir versla alveg hell-
ing í. Við höfum gefið út sex laga EP-piötu
sem heitir Ípí. Hún var mjög vinsæl og
seldist upp. Held að það sé óhætt að segja
að við spilum ákveðið melódískt rokk.
paradís sem er eflaust bara mjög jákvætt.
Álveri fylgir fólksfjölgun og meira fólk þýðir
meira rokk. Ég held að við séum einu rokk-
arar landsins sem styðja álver.
Sirkus RVK: Gigg framundan?
Rafirar Orri: Við verðum í Kastljósinu á
föstudagskvöld. -Þar yerðum við fallegir f
lúðrasveitabúhingum. Og svo spilum við á
Gauki á Stöng um kvöldið ásamt Jan Mayen
og Jeff Who? Jan Mayen eru frábærir og Jeff
Who? eru hressir diskórokkarar sem gleðja
alla.
Sirkus RVK: Rokkið?
Rafnar Orri: Það er mikið af rokki á íslandi í
dag. Reyndar misjafnlega gott. Rokk.is er
heimasíða þar sem fólk getur kynnt sér það
sem er í gangi. Þar höfum við átt góðar
stundir og nokkur topplög.
Sirkus RVK: Áhrifavaldar?
Rafiiar Orri: Ætli það séu ekki Blogparty,
Gang Bang og Interpol. Og lífið og allt sem
við gerum í því.
Sirkus RVK: Húsavík og nýja álverið?
Rafnar Orri: Húsavík er verðandi álvers-
Sirkus RVK: Nafnið?
Rafiiar Orri: Við notuðum þetta nafn, Tony
the Pony, þegar við stofnuðum hljómsveit-
ina. En breyttum svo nafninu í Betlehem
fyrir músíktilraunirnar og fórum í þriðja
sætið. Svo var ákveðið að gera enn betur og
bæta tónlistina og þá tókum við bara aftur
upp nafni Tony the Pony.
Sirkus RVK: Grúppíur?
Rafiiar Orri: Það fylgja okkur ægilega fínar
grúppíur. Sérstaklega stelpur frá Hvamms-
tanga. Við erum mjög vinsælir þar.
Sirkus RVK: Ruglið?
Rafnar Orri: Það er alltaf nóg rugl á okkur.
Fyrir viku handleggsbrotnaði einn af okkur.
Svo er það auðvitað líka rugl að ferðast til
Reykjavíkur í brjáluðu veðri eins og við
gerðum til að koma hingað.
Sirkus RVK: Framtíðin?
Rafnar Orri: Vonandi gefum við út okkar
fyrstu breiðskífu fljótlega, það er efst á
stefnuskránni. Fyrst þurfum við að ná okk-
ur í samning og ef það eru einhverjir tilbún-
ir að veðja á okkur þá erum við til.
Sirkus RVK: Lokaorð!
Rafiiar Orri: Ekki gefast upp þótt á móti
blási. Það er mikið rokk í þessu gamla orða-
tiltæki. Rokk er meira en Salem Lights og
Jack Daniels. Ég hvet alla til að koma á
Gaukinn og sjá okkur spila.
RAFNAR ORRISÖNGVARIOG
GÍTARLEIKARI í MIKLUM HAM.
FYRIR AFTAN HANN SÉST
REYNIR BERJA TROMMURNAR
JUF SINNIALKUNNU SNILLD.
Arthúr
Andskotinn!
Jæja, ég get
allavega keyrt
út í búð og
keypt meira
Hmm... eiginlega
ekki, ég keyrði
bílnum þínum á
vegg í fyrradag
ÓHEPPNI
Fjandlnn.com/Arthur