Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 7. APRlL 2006 Fréttir DV ökumanna áyfirlOO Á miðvikudag voru stöðvaðir sextán ökumenn í þéttbýli Reykjavíkur fyrir að aka á of miklum hraða. Af þessum sextán voru þrett- án ökumenn á yfir hundrað kílómetra hraða á klukku- stund. Segir lögreglan að átak sé í gangi til að minnka hraðann því mikil hætta get- ur skapast þegar fólk ekur of hratt í þéttbýli þar sem fólk er á gangi og aðrir lög- hlýðnir ökumenn á ferðinni geta lent í óhappi eða slysi af völdum ökumðinganna. Fjöldi árekstra í Reykjavík Lögreglan í Reykjavík skráði fleiri árekstra en venjulegt þykir á miðviku- degi. Það voru skráðir 24 árekstrar í Reykjavík en meðaltal á einum degi er um tuttugu. I einu umferð- aróhappinu, sem átti sér stað á miðvikudag, ók öku- maður á umferðarvita á mótum Geislagötu og Póst- hússtrætis. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild og bíliinn er mik- ið skemmdur. Vindhraðinn 29 metrará sekúndu í Vestmannaeyjum mældist vindhraðinn 29 metrar á sekúndu rétt eft- ir miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins. Segir Lög- reglan í Vestmannaeyjum að ekki hafi hlotist tjón af völdum hvassviðrisins. Það eina sem kom fyrir var að fiskikör fuku. Ekki varð tjón á fiskveiðibátunum sem voru í höfn. Segir lögregl- an að Eyjamenn séu vanir svona veðrum og vindum og hafi alla hluti vel njörv- aða niður. „Það liggur náttúrulega helst á að kynna plötuna okkar," segir Skúli Gestsson, bassaleikari hljómsveitarinn- ar Dikta. „Við erum að spila á NASA þann 22. apríl. Eftir það ætlum------------Mm, .iiiiinii Hvað liggur á? að halda áfram undirbúningi fyrir væntanlega tónleikaferð okkar um Evrópu. Við erum þegar bókaðir ásamt Mugison í Danmörku og fullt affleiri giggum er í pípunum." Fíkniefnalögreglan og víkingasveitin gerðu strandhögg fyrir rúmri viku þegar þær brutust inn í húsnæði í Ármúlanum. Þar fundust fikniefni og brasiliskar stúlkur sem talið er að hafi verið þar til að selja bliðu sina. Eigandi húsnæðisins er Sverrir Þór Gunn- arsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, en hann var einn af höfuðpaurunum i stóra flkniefnamálinu árið 2000. Neðrihlíð Sverrir Þor Gunnarsson á fyrirtækiö en I I húsnæöi þess fann lögreglan I dóp og brasilískar mellur. [• DV-mynd Heiða Starfsmenn fíkniefnadeildar Lögreglunnar í Reykjavík, með að- stoð víkingasveitarinnar, gerðu á dögunum húsleit á efri hæð húss í Ármúla. Þar er til húsa félagið Neðrihlíð en stjórnandi þess er Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn. Við húsleitina fundust fíkniefni og brasilískar stúlkur sem virtust hafa þann eina tilgang að selja karlmönnum líkama sinn. Enginn var settur í gæsluvarðhald en DV hefur heimildir fyrir því að fíkni- efnadeildin hafi vaktað húsið um alllangt skeið. Þegar lögreglan kom á svæðið blasti við henni ótrúleg sjón. í for- stofunni sat íslensk kona við skrif- borð þar sem fullt af umslögum, verjum og víagratöflum fannst. I tveimur herbergjum í húsnæðinu voru léttklæddar, brasilískar stúlk- ur. Pottþétt bókhald Við húsleitina fannst töluvert af fíkniefnum en einnig fannst full- komið bóhald yfir starfsemi húss- ins í umslögum á skrifborði ís- lensku konunnar. Eitt umslag var fyrir hvern dag og í hverju um- slagi var yfirlit yfir hversu mikið var keypt af verjum og stinningar- lyfinu víagra þann daginn. Aukin heldur var nákvæmt bókhald yfir sölu fíkniefna og keyptar blíðu- stundir af brasilískum og íslensk- um mellum. Sveddi tönn á húsnæðið Það þarf kannski ekki að koma á óvart að glæpsamleg starfsemi fari fram í húsnæðinu. Eigandi fé- lagsins Neðrihlíðar ehf. sem á hús- næðið er Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn í undirheimum Reykjavíkur. Hann var einn af höfuðpaurunum í stóra fíkniefnamálinu árið 2000. Sverrir Þór var dæmdur til sjö og hálfs árs fangelsisvistar fyrir aðild sína að fíkniefnamálinu en DV hefur ekki vitneskju um hvort Sverrir Þór er höfuðpaur hóruhússins sem rekið er í húsnæði hans. Eitt umslag var fyrir hvern dag og í hverju umslagi varyfirlit yfir hversu mikið var keypt af verjum og stinningarlyfinu ví- iagra þann daginn. Aukin held- ur var nákvæmt bókhald yfirsölu fíkni- efnaogkeypt- arblíðu- stundiraf brasilísk- Sverrir Þór Gunnarsson Va dæmdur isjö og hálfs árs fang fyrir aðildað stóra fíkniefnam^ ásinum tíma og liggur núuna grun um að stjórna hóruhúsi í húsnæði sinu i Ármúla. DV-myn um og is- lenskum mellum. Góðkunningjar lögreglunnar Vitni segja að alls kyns óþjóða- lýður hafi komið í húsnæði Sverris Þórs. Þeirra á meðal er athafnamað- urinn Geir Ericsson en hann var ákærður og dæmdur í 200 þúsund króna sekt fýrir aðild að fyrrgreindu fíkniefnamáli eftir að hann tók við peningum og illa fengnum heimilis- tækjum frá títtnefndum Sverri. Knattspyrnukappinn Davíð Garð- arsson, sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni, hefur einnig verið tíður gestur hjá Sverri. Davíð er eftirlýstur af Interpol en hann flúði af landi í desember þegar hann áttí að hefja afplánun dómsins. Allirífríi Það var fátt um svör hjá Lögregl unni í Reykjavík í gær. Samkvæmt skiptiborði lögreglunnar var Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar, í fríi í gær og svaraði ekki símtölum. Þeg- ar DV náði tali af Herði Jóhannes- syni aðstoðaryf- irlögregluþjóni um klukkan fjögur í gær sagðist hann ekki vera í vinnunni og kvaddi. oskar@dv.is Brasilískar mellijr o| dóp í hóruhúsi í Armula Steinun Vaidís gagnrýnir Vilhjálm Þ. Aumkunarvert, segir hann Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg- arstjóri gagnrýnir Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjóm og full- trúa í stjóm Landsvirkj- unar, fýr- ir söluna á Laxár- virkjun. Þetta kemur fram í grein Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son Aumkunarvert af Steinunni Valdísiað endurbirta gamla grein. sem Steinunn ritar í Morgunblaðið í „Það er aumkunarvert að borgarstjóri gær undir fýrirsögninni: „Hvað varstu þarf að endurbirta grein sem ég hef að hugsa Vilhjálmur?" Vilhjálmur seg- svarað fýrir löngu síðan." ir þessa gagnrýni aumkunarverða í ljósi þess að um er að ræða endurbirt- ingu á grein flokkssystur Steinunnar sem birtist í sama blaði fyrr í vetur og hann svaraði þá. „Þessi sala skaðar síður en svo Reykvíkinga enda er virkjunin seld öðm opinberu fýrirtæki þannig að eign borgarbúa er sú sama og áður eða telur Steinurm að Reykvíkingar teljist ekki með öðrum landsmönnum," seg- ir Vilhjálmur. Hann bendir ennfrem- ur á að við afgreiðslu málsins í stjóm Landsvirkjunar hafi fulltrúar R-list- ans ekki verið á móti sölunni heldur setíð hjá við afgreiðsluna. „Þetta er einfaldlega lýsandi dæmi um málefnaþurrð Sam- fylkingarinnar fyrir kosning- amar í vor," segir Vilhjálmur. Fjórir bílar í árekstri Um klukkan fjögur í gær lentu fjórirbílaríaftanákeyrslum, ' hver aftan á annan, á gatnamót- um Reykjanesbrautar og Álfta- nesafleggjara. Fjórir farþegar voru fluttir á slysadeild ogþurfti að fjarlægja tvær bifreiðar með kranabíl. Lögreglan í Hafnarfirði segir að myndast hafi gríðarleg bílaröð sem náði til Kópavogs þar sem það tók lögregluna um klukkutíma að hreinsa vettvang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.