Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2006 11 Fresta leyfi fyrirvegi Sveitarstjóm öxarijarð- arhrepps hefur frestað af- greiðslu framkvæmdarleyfis til Vegagerðarinnar vegna vegalagningar á Hólaheiði. Þar til málið verður tekið fyrir á næsta sveitarstjórn- arfundi á að gefa landeig- endum á jörðinni Brekku og ábúendum á Presthólum kost á að koma sjónarmið- um sínum á framfæri við sveitarstjóm. Sú leið sem sveitarstjórn vill fara með veginn hefur vakið deilur. Heitir pottar á Kópasker Reisa á yfirbyggða sund- laug með heitum pottum á Kópaskeri. Samhliða hefur sveitarstjómin ákveðið að kaupa aukið hlutafé í Hita- veitu Öxíirijarðarhéraðs svo nægt vatn verði tryggt. „Síð- astliðið haust jukust afköst Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs út á Kópasker það mikið að nóg er til af vatni á Kópaskeri í dag fyrir sundlaug. Sund- laug hefur margar kosti í för með sér," segir á dettifoss.is. Fjórir mánuðir fram yfir Strandamenn em lang- eygir eftir úrskurði Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverf- isráðherra vegna kæm Vega- gerðarinnar á niðurstöðu Skipulagsstofnunar varð- andi fyrirhugaðan veg um Amködudal. „Ráðherra átti í síðasta lagi að kveða upp úrskurð þann 9. desember 2005, ef farið hefði verið að lögum. Um það leyti bámst fréttir úr ráðuneytinu að töf hefði orðið á málinu en von væri á úrskurði í endaðan janúar 2006," segir á strand- ir.is sem segja ekkert bóla á niðurstöðu ráðherrans. Akstursbraut fyrirökunema Ökukennarafélagi ís- lands verður boðið svæði í Árborg undir sérstaka braut þar sem nemendur í al- mennu ökunámi geta feng- ið þjálfun í akstri við erfiðar aðstæður. Þetta samþykktí bæjarráð Árborgar í gær. Bæjarráðið segir enga braut af þessu tagi til í landinu. Unnið sé að lagabreyting- um sem þýði að ailir öku- nemar þurfi að fá þjálfun í akstri við erfiðar aðstæður á sérhannaðri braut þar sem tíl dæmis er hægt að þjáifa hálkuakstur allt árið. 'pykirstíllinn á þessuöfíu ítak rómantískar hugmyndir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar ^ 'íím ákjósanlegt um- jwm Jtiiérfi þeirra sem VmltlH fyrirhann HilllSI Baugur Group á íslandi hefur keypt húsið við Grjótagötu 9 og eykur við það flatarmál höfuðstöðva sinna í miðbæ Reykjavíkur. Á skrifstofunni starfa aðeins fimmtán manns sem stjórna sextíu þúsund starfsmönnum víða um heim. Mun þetta einstakt. Jón Ásgeir Rómantisk ur foringi á slóðum fyrsta iandnemans. Grjótagata 9 Nýjasti hlutinn af höfuðstöðvum Baugs Group á ísiandi Þrátt fyrir umfangsmikla starf- semi starfa ekki nema um fimmtán manns á skrifstofu Baugs Group á íslandi. Starfsmenn samsteypunn- ar eru hins vegar um sextíu þúsund talsins. Mun leitun að stórfyrirtæki sem berst svo lítíð á í yfirstjórn yfir svo mörgum sem störfin vinna. Á stærð við saumastofu Starfsfólkið á skrifstofu Baugs Group við Túngötu og í Grjótaþorpi unir hag sínum vel þó ýmsum þyki kyndugt að svo mikið veldi kjósi að sinna daglegum verkefnum í hús- næði sem að öllu jöfnu myndi frekar henta saumastofu. Minnsta útrásin Baugur Group kom sér snemma upp skrifstofuaðstöðu við Túngötu 6 og þar var lagt á ráðin um útrás til annarra landa. Sumar svo stórbrotn- ar að heimsathygli hafa vakið. Nú leggur Baugur Group hins vegar í þá minnstu útrás sem um getur í sögu fyrirtækisins og þá með stefnuna inn í Grjótaþorpið. Ekki stendur þó til að magna útrásina í þá áttina frek- ar heldur láta Grjótagötu 9 nægja og tengja það hús við starfsemina í Túngötu 6 sem þegar er tengt öðru húsi við Grjótagötuna. Rómantík foringjans Þykir stfllinn á þessu öllu í takt við rómantískar hugmyndir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um ákjósanlegt um- hverfi þeirra sem fyrir hann starfa. Og ekki síst hann sjálfan sem kýs að hitta menn, funda og starfa í látlaus- um húsunum rétt ofan Aðalstrætís. Þar slær hjarta Baugs Group, rétt ofan við þann stað þar sem Ingólfur Arnarson reisti bæ sinn; þann fyrsta á íslandi. Höfuðstöðvar Baugs Group á íslandi við Túngötu 6 láta ekki mik- ið yfir sér. En ekki er allt sem sýnist. Skrifstofurnar teygja sig vfir í hús í Grjótaþorpinu og nú hefur heimsveldið bætt við enn einu húsinu, Grjótagötu 9, og breytir því á næstunni í hluta höfuð- stöðvanna. Útrás Baugs í Grjótaþorpinu er hafin. Ert þú leið(ur) á að skipta um perur? DÍÓÐULJÓSIN FRÁ OKKUR ERU: ORKUSPARANDI ÓBRJÓTANDI 10.000 KLST. ÁBYRGÐ PASSA FYRIR ALLAR GERÐIR VÖRU- OG FLUTNINGABÍLA TRUCK - LITE Ljósasamlokurnar frá okkur eru: ÓBRJÓTANDI HÖGGÞOLNAR ENDAST OG ENDAST Klettagarðar 11, 104 Reykjavík Sími 568 1580 • Fax 568 0844 Ljósinfrá okkur geta lýst leið þína lengi lengi EHF\£RSLUN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.