Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 7. APRlL 2006 Fréttir DV Að sögn Michaels Meacher, fyrrverandi umhverfisráðherra Bretlands, vissu stjórn- völd í Bandaríkjunun fyrir fram um árásirnar á tvíburaturnana i New York. Meacher segist í samtali við DV vara við því að afgreiða umræðuna sem samsæriskenningar. Fleiri innbrot á Akranesi A aðeins tveimur sólar- hringum voru framin fjög- ur innbrot á Akranesi. Fyrir utan tvö innbrot aðfaranótt miðvikudags, sem DV sagði frá í gær, var aðfaranótt fimmtudagsins brotist inn í hárgreiðslustofuna Hárhús Kötlu við Stillholt. Þjófur- inn hafði á brott með sér eitthvað af peningum. Þá var brotist inn í verslunina Bjarg við Stillholt og stolið fatnaði, snyrtivörum og skiptimynt úr kassa. Þjófur- inn eða þjófarnir hafa ekki náðst. Hraðakstur í Hvalfjarðar- göngum Lögreglan í Reylqavík skráði um síðustu helgi meðalhraða í Hvalfjarðar- göngum um 89 kílómetra á klukkustund en leyfileg- ur hraði í göngunum er 70 km/klst. Einn ökumaður var skráður á 146 kílómetra hraða á klukkustund í göng- unum og segir Lögreglan í Reykjavík að svona aksturs- lag sé vítavert og lítið þurfl að bregða út af til að fólk ráði ekki við aðstæður. Síð- ustu helgi fóru í norðurátt um átta þúsund ökutæki. Leiðrétting Myndir víxluðust þegar birt var mynd afBjörgvin Ómarssyni i stað þess að birta myndafívari Smára Guðmundssyni sem sat í gæsluvarðhaldi vegna þjófnaðar úr heimabanka starfsmanns Brimborgar. Við biðjumst velvirðingará þessum mistökum. Landssíminn „Þaö er ailt á fullu viö aö undirbúa opnun kráarinnar Krlan sem er I Hraungeröis- hreppi rétt fyrir utan Seifass' segir María Daviösdóttir hjúkrunarfræöingur og kráareigandi. „Opnunin veröur 8. aprllþarsem vinirog vandamenn troða upp og þarámeöal veröa Maggi Kjartans, Daviö Smári Haröarson og félagar úr Óperukórnum. Hugmyndin aö opnun kráarinnar kviknaöi út frá hestamennsku en viö erum hestafólk og langar aö bjóöa hestamönnum upp á hressingu I útreiðartúrum en aö sjálfsögöu eru allir velkomnir. Fljótlega munum viö einnig bjóöa upp á léttan mat og skemmtilegar uppákomur.’ Vissu fyrir fram um 11. september Margt er enn á huldu varðandi York 11, september 2001. „Ég bið fólk um að skoða vel það sem ég og fleiri höfum að segja um 11. september áður en það afgreið- ir ummælin sem samsæriskenningu," segir Michael Meacher, fyrrverandi umhverfisráðherra Bretíands og þing- maður breska verkamannaflokksins. Michael Meacher er einn af fjöl- mörgum embættis- og stjómmála- mönnum sem fullyrða að bandarísk stjómvöld hafi vitað af hryðjuverkaár- ásunum 11. september 2001 fyrir fram en hafi ekkert gert til að koma í veg fyr- irþær. Atburðarásin á huldu Meacher, sem heimsótti ísland fyr- ir nokkrum dögúm, telur mjög líklegt að bandarísk stjómvöld hafi vitað af hryðjuverkaárásunum 11. september. Honum finnst að rannsaka þurfi hryðjuverkin mun betur en áður hefur verið gert. Margt sé enn á huldu varð- andi þau og atburðarásina þennan örlagríka dag. Viðvaranir úr öllum áttum „Bandarísk stjómvöld vissu af árás- unum 11. september 2001 en ákváðu að líta framhjá þeim til þess að ná fram markmiðum sínum í Miðausturlönd- um,“ segir Meacher. Að sögn Meachers var allt frá ár- inu 1996 vitað um áætíanir hryðju- verkahópa um að ráðast á Bandaríkin með flugvélum. Ríkisstjómir 11 landa sendu viðvörun til bandarískra stjóm- valda þess efhis að verið væri að und- irbúa árásir á Bandaríkin. f ágúst 2001 sendi ísraelska leyniþjónustan tvo full- trúa sína til Bandaríkjanna sérstaklega til þess að vara bandarísk stjómvöld við árásunum. Meacher segir viðbrögð bandaríska loftvamaeftirlitsins 11. september2001 óskiljanleg. árásina á tvíburaturnana í New „11. september 2001 var fjórum stórum far- þegaþotum rænt og engin herþota varsend á loft fyrr en tæplega einum og hálfum tíma seinna. Afhverju?" Hvað tafði herþoturnar? „Vitað var um fyrsta flugránið ekki seinna en klukkan 8.20 og ekki ein einasta herþota var send á loft til að stöðva flugvélina þrátt fyrir að það sé skylda samkvæmt banda- rískum lögum. Frá september 2000 tii júní 2001 voru herflugvélar send- ar á loft 67 sinnum í mun smávægi- legri tilvikum. 11. september 2001 var fjórum stórum farþegaþotum rænt og engin herþota var send á loft fyrr en tæplega einum og hálf- um tíma seinna. Af hverju ekki?" spyr Meacher. Vissu um Pearl Harbour Meacher segir að búið hafi ver- ið að semja áætíanir um innrás- ina í Afganistan og Irak fyrir 11. september 2001. Það sem gerðist 11. september var afsökunin sem Bandaríkin þurftu til þess að ráðast á þessi lönd: „Það hefur margsinnis verið sýnt fram á að Roosevelt, þáverandi for- seti Bandaríkjanna, vissi að Japan- ar ætluðu að ráðast á Pearl Harbor. En stjórnvöld gerðu ekkert í því þar sem þau vantaði afsökun til þess að fara í stríð við öxulveldin." stefan@dv.is Micael Meacher Bandarísk stjórnvöld litu framhjá árásunum 11. september til að ná markmiðum i Miðaustur- löndum, segir fyrrverandi umhverfisráðherra Bretlands. Hryöjuverkaárás 11. september Engar herþotur á loft fyrr en eftir einn og hálfan tima. Þriðja prentun Draumalands Andra Snæs í burðarliðnum Slegist um Draumalandið Andri Snær Magnason Kynnti Draumaland sitt fyrir fullu Borgarleikhúsi ádögunum. „Það var slegist um fyrstu prent- un bókarinnar. Og önnur hefur geng- ið afskaplega vel. Nú þarf aðeins að taka stöðuna á stórmörkuðum en ég geri fastíega ráð fyrir því að farið verði í þriðju prentun bókarinn- ar í dag," segir Páfl Vals- son útgáfustjóri skáld- c verka og fræðirita hjá Eddu útgáfu. Draumalandið Sjálfshjálpar- bók handa hræddri þjóð eftír Andra Snæ Magna- son, sem kom nýverið út hjá Máli og menn- ingu, hefur páli Valsson Segist ekki betur sjá en islenskir höfundarfjallium samtima sinn með látum. gengið vonum framar. Páll vill ekki gefa upp hversu mörg eintök eru þegar seld, segir það atvinnuleyndarmál, en þau skipti þúsundum. Páll segir jafii- ffarnt sérstakfega ánægjufegt að vera kominn með í hendur metsölubók í upphafi árs og að komið sé á daginn að selja megi bækur utan hins hefð- bundna tíma - í desembermánuði. Bók Andra Snæs fjallar um málefni okkar tíma, stóriðjustefiiuna, og þjóð- in hefur tekið við sér. Páll telur einsýnt að fólk kaupi þessa bók fyrir sjálft sig og lesi. Og segir bábilju að höfundar taki ekki á samtíma sínum. Páll las sér til undrunar póstmódemíska úttekt á því í Lesbók Morgunblaðsins þar sem komist var að annarri niðurstöðu. „Bók Gerðar Krismýjar? Rokland Hallgríms Helgasonar er að fást við samtímann með miklum látum. Þess- ir póstmódemistar virðast vilja vera með höfuðið keyrt niður í sandinn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.