Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Síða 7
DV Sport
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 41
Kiristján segir bikarmeistara-
titilinn skipta félagið gríð-
arlega miklu máli en það er
ljóst á öllu að í Keflavík er
allt til alls til þess að ná enn betri ár-
angri. Félagið er með unga og góða
leikmenn, ffábæra stuðningsmenn
og trausta stjórn.
„Fyrir liðið sjálft skiptir þessi bik-
armeistaratitill miklu máli. Keflavík
vann þennan bikar í hittifyrTa og ger-
ir það síðan aftur núna. Þeir voru að
sanna það, og þá aðallega fyrir sjálf-
um sér, að þeir séu lið sem eigi mögu-
leika á því að vera reglulega í baráttu
um titlana. Það er pínu áskorun á alla
og þá líka þá sem starfa í kringum fé-
lagið að gera svolítinn skurk í því að
halda bestu mönnunum aðeins leng-
ur þannig að það sé hægt að mynda
góðan kjarna eins og FH hefur tekist.
Með því er hægt að fara að slást um
fslandsmeistaratitilinn," segir Kristján
ogbætirvið:
„Ég lít á þetta þannig að fyrst að við
erum komnir með bikarinn svo fljótt
aftur þá kveiki það virkilega í leik-
mönnunum og umgjörðinni að allir
vilji fleiri svona stóra titla. Tilfinningin
er alveg ólýsanleg að vinna svona bik-
ar og það er alveg ótrúlegt að sjá hvað
menn voru glaðir þegar flautað var til
leiksloka í þessum leik. Ég bjóst ekki
við að sjá hálffullorðinn karlmann
gjörsamlega sleppa sér í svona mik-
iÚi gleði."
Ofboðsleg stemning og
einbeiting
Keflavik vann alla fjóra bikar-
leiki sína með markatölunni 13-3 og
Kristján sá mikinn mun á liðinu eftir
því hvort það var að spila í bikamum
eða í deildinni.
„Það var aldrei rætt neitt annað hjá
okkur í búningsklefanum eða í kring-
að sæti í úrslitaleiknum var tryggt og
Kristján játar því að þetta aukna æf-
ingaálag hafi tekið sinn toll. „Það var
erfitt að missa Hólmar Öm Rúnars-
son. Hann er búinn að vera að mínu
mati besti miðjumaðurinn í deild-
inni," segir Kristján um Hólmar Öm
Rúnarsson sem gerðist atvinnumað-
ur hjá Silkeborg í Danmörku. Keflavík
lék án hans í síðustu þremur leikjum
sínum á mótinu.
Töluverður munur á
knattspyrnunni
Kristján þarf eins og aðrir íslenskir
þjálfarar að búa við það að missa sína
bestu leikmenn í atvinnumennsku.
Það getur verið erfitt að búa til meist-
aralið þegar burðarásar þess em
reglulega teknir í burtu.
„Maður veit alveg að draumurinn
hjá þessum strákum er að komast út
og helga sig fótboltanum. Það er líka
pressa frá fjölskyldum þessara stráka
á félagið að leyfa þessum strákum að
fara út þó svo að þeir séu með samn-
ing við félagið," segir Kristján sem
vill horfa á þetta jákvæðum augum.
„Leikmenn sem em að velja sér lið sjá
að leikmönnum úr Keflavflc er leyft að
fara út en þeir ná líka þeim árangri og
þeim þroska með Keflavíkurliðinu að
þeir verða eftirsóknarverðir leikmenn
í útlöndum," segir Kristján en hann
veit vel að það þarf oft að stökkva þeg-
ar tækifærin bjóðast.
„Það er aldrei á vísan að róa að
þessir strákar fái tilboð á næsta ári þó
svo að þeir fái tilboð í ár. Maður þarf
oft bara að grípa gæsina en maður
þarf einnig að velja rétt lið og menn
hafa oft ekki valið lið sem hentar
viðkomandi leikmanni. Það er tölu-
verður munur á knattspymunni sem
er spiluð á Norðurlöndunum, það
er í Noregi, Danmörku eða Svíþjóð.
„Að sjálfsögðu hugsaði ég það líka með sjálfan
mig, þar sem ég er hluti afþessu liði, að koma mér
út úrþessum skugga Guðjóns og stimpla mig inn í
eitt skipti fyrir öll"
um liðið en að vera í toppbaráttu og
að sigra eitthvað. Ég tók samt aðallega
eftir því að það var ofboðslega stemn-
ing og einbeiting í liðinu fyrir bikar-
leikina. Það var allt önnur stemning í
liðinu heldur en í fyrra þegar við dutt-
um út fyrir HK í 16 liða úrslitunum.
Ég fann alveg muninn á því hvort við
vomm að fara að spila deildarleik eða
bikarleik því það var stór munur þar á.
Effir sigurinn á Skaganum þá hugsaði
maður; við emm að fara vinna þetta
mót. Skagaleikurinn átti mflánn þátt í
að við unnum hina leikina og við vor-
um með rétta spennustigið í öllum
bikaiieikjunum okkar í sumar."
Róttækur undirbúningur fyrir
bikarúrslitin
Keflavík vann öruggan 2-0 sigur
á KR í bikarúrslitaleiknum og Kristj-
án vakti mikla athygli með því að láta
liðið sækja grimmt frá fyrstu mínútu.
Keflavík skoraði bæði mörkin sín í
fyrri hálfleik og hafði allan tímann
góð tök á leiknum.
„Ef þú kemur svona agressívur inn
í leikina þá slærðu andstæðinginn út
af laginu. Um leið og þú ert kominn
í gegnum vamarlínu mótherjans og
nærð skoti á mark, hvemig sem það
fer, þá ertu búinn að koma inn efa
hjá varnarmönnunum og þeir verða
ósjálfrátt svolítið óöruggari," seg-
ir Kristján og bætir við: „Ég er loks-
ins búinn að horfa á leikinn aftur á
myndbandi og ég sá það á upptök-
unni að þetta var ömggur sigur og við
erum alveg með þá frá því að leikur-
inn er flautaður á. Það er alveg sama
hvort það er fyrri eða seinni hálfleik-
ur.“
Kristján segir að undirbúningur
liðsins hafi verið róttækur en heppn-
ast vel. „Við undirbjuggum okkur
mjög vel fyrir bikarúrslitaleikinn. Eft-
ir að við höfðum tryggt okkur sætí í
bikarúrslitaleiknum þá settumst við
þjálfarateymið niður og ákváðum að
breyta æfingaáætlunum. Við þyngd-
um æfingamar og jukum umfang.
Við höfðum verið að lyfta einu sinni í
viku en nú fórum við í að lyfta tvisv-
ar í viku. Þetta gerðum við tfl að hafa
okkar stráka klára í Bensana úr Vest-
urbænum."
Keflavík vann ekki defldarleik eftir
Menn verða að athuga út í hvað þeir
em að fara," segir Kristján.
Vill helst af öllu fá íslenska
leikmenn
Liðin hafa oft leitað erlendis eftir
leikmönnum þegar strákar hafa ver-
ið að stökkva út í atvfrinumennskuna.
Reynsla Kristjáns er þó sú að hann vill
ekki leita út fyrir landsteinana eftír
mönnum.
„Ég vil helst af öllu fá íslenska leik-
menn og ég vil ekki vera að taka inn
erlenda leikmenn. Það skiptír rniklu
máfi að leikmenn passi inn í þann
fótbolta og þá hugsun sem við emm
með. Það er alltof mfldð um að maður
sé að fá einhverja tölvupósta frá um-
boðsmönnum hér og þar, íslenskum
og erlendum. Þar bjóða þeir manni
leikmenn, senda með flotta ferilsskrá
og svo kemur kappinn til landsins og
á tvær til þrjár mjög góðar æfingar
og það er gerður við hann samning-
ur. Svo reynist viðkomandi aðifi bara
vera pappakassi. Það er mín skoðun
að það hafi ekki komið virkilega góð-
ir útlendingar til Islands í nokkur ár,"
segir Kristján en hann veit að hann
gæti þurft að búa aftur tfl nýtt lið fari
margir strákar út.
„Við megum ekki missa meira en
einn mann og að hámarki tvo. Ef við
missum engan þá þurfum við að bæta
við tveimur tíl þremur góðum leik-
mönnum. Við verðum síðan að hafa
áfram ungu strákana í kringum okkur.
Ef við missum einn til tvo leikmenn
þá þurfum við að taka inn fyrir þá og
þá er þetta komið upp í þrjá til fjóra
leikmenn," segir Kristján.
(slandsmeistarar innanhúss
Kristján segir títfl í lok síðasta árs
hafi gefið liðinu sjálfstraust og trú á
sjálft sig. „Við byrjum á þvr að vinna
Islandsmótið innanhúss. Þó svo að
það sé lítíð mót og hálfgert olnboga-
bam þá vorum við búnir að vinna
þama títíl og gefa okkur sjálfum sýn-
ishom af því hvemig við vfljum vinna
hlutina. Við æfðum vel og gekk miklu
betur í deildarbikarnum en ég átti
von á. Við spilum úrslitaleikinn þar,"
segir Kristján um undirbúningstíma-
bifið í ár.
„Við endum hraðmótið með sjö
stíg og förum síðan inn í Evrópu-
keppnina og það er eiginlega hún
sem kemur okkur í gang. Á meðan
við erum í Evrópukeppninni þá töp-
um við þremur leikjum en ég held að
málið hafi verið það að við ætluðum
okkur svo mikið á mótí FH að svekk-
elsið í þeim leik sló okkur tfl baka,"
segir Kristján um 1-2 tap Keflavflcur
á mótí FH í Kaplakrika en Keflavflc-
urliðið misnotaði meðal annars tvær
vítaspymur í leiknum. „Það var gríð-
arlegt svekkelsi og það var síðan alltof
stutt í næsta leik gegn Skaganum sem
var þá að berjast fyrir lífi sínu."
Glíman við Lilleström gerði
okkur að betra liði
Kristján var mjög sáttur með Evr-
ópukeppnina þar sem Keflavflc sló út
Dungannon Swifts frá Norður-írlandi
en datt síðan út fyrir norska liðinu
Lillestrom SK í 2. umferð.
„Evrópukeppnin er erfið og það er
stutt á milli leikja, hvort sem þú ætlar
að æfa eða hvfla. En það hjálpaði okk-
ur mfldð að spila þessa leiki því þetta
voru erfiðir leildr og að glíma við lið
eins og Lilleström gerði okkur bara
að betra liði. Þegar við vorum komnir
út úr Evrópukeppninni þá fórum við
á þetta flug. Við spilum alveg fanta-
fótbolta," segir Kristján en nefnir lflca
önnur atriði sem skiptí máli.
„Við ýttum út útlendingunum. Við
vorum með fimm erlenda leikmenn
og þeir voru skemmd epli í hópn-
um og skemmdari en okkur nokkum
tímann grunaði. Þriðja og kannski
mikilvægasta atriðið var að Ken-
neth Gustafsson kom aftur inn eftir
meiðsli. Hann hefur staðið sig frábær-
lega og hefur fengið alveg ótrúlega
litla umfjöllun miðað við hversu vel
hann hefur spflað," segir Kristján sem
er feyldánægður með miðvarðapar-
ið sitt Guðmund Viðar Mete og Ken-
neth Gustafsson. „Það er okkar skoð-
un að þú finnir ekki betra hafsentapar
í neinu liði í deildinni," segir Kristján.
Árangursríkara að sækja stigin
og sigrana
Kristján hefur látíð sitt lið spila
sóknarbolta í sumar en það eru ekki
margir af þjálfurum Landsbanka-
deildarinnar sem em með honum í
þeim hópi.
„Ef allir myndu taka sig saman og
reyna að losa um þetta og spfla meiri
fótbolta í deildinni þá myndi þetta
koma. Það sem er að herja á þjálfara
er þetta starfsóöryggi og sú pressa
sem fylgir starfinu. Menn vilja bara
safna stigum tfl þess að halda sér í
deildinni og eftir það fara menn að
skoða hvort sé hægt að gera eitthvað
meira. Við verðum alfir að átta okkur
á því að það er oft miklu skemmtilegra
og árangursrflcara að sækja stígin og
sigrana heldur en að verjast og taka
sénsinn á því að vinna," segir Kristján
um hvað þurfi að gerast tfl þess að fót-
boltaáhugamenn fari að sjá skemmti-
legri bolta í deildinni á næstu árum.
Stærsti munurinn á mörkunum
sem við fáum á okkur
Fram undan er annað langt und-
irbúningstímabfl og Kristján segir sig
og strákana vera komna með fullan
tank eftír sigurinn í bikarúrslitaleikn-
Sigurgleði Þjálfarinn fékk að sjálfsögðu flugferð ileikslok.
DV-mynd Daniel
um og tilbúna að fara að æfa á fullu
fyrir næsta sumar.
„Stærstí munurinn á þessum
tveimur sumrum er á mörkunum
sem við fáum á okkur. Við fáum að-
eins færri stig en í fyrra en höldum
sama sæti en marlcatalan er gjör-
breytt. Aðalmarkmiðið var að fækka
mörkunum sem við fáum á okkur
og það tókst," segir Kristján sem veit
samt fitið hvemig málin koma tfl með
að þróast í vetur.
„Ég þori ekki að segja neitt um
framhaldið. Keflavflc vann bikarinn
2004 og misstí í kjölfarið sjö menn. Ég
vonast tfl þess að það gerist ekki núna
en ég veit af áhuga erlendra liða á leik-
mönnum í liðinu. Hvað verður veit
maður ekki. Við verðum að styrkja
hópinn tíl þess að geta orðið stöðugra
lið á næsta ári og veita þar með FH og
öðrum liðum, sem verða í toppbarátt-
unni, verðuga keppni."
Ætlaði að stimpla sig inn
Kristján hefur þurft að hlusta á
stanslaust tal um Guðjón Þórðarson
og efasemdir voru uppi hjá sumum
hvort velgengni síðasta tímabfls væri
í raun Kristjáni að þakka. Sumarið
í sumar hefur hins vegar eytt öllum
slflcum vafa.
„Það var stanslaust talað um Guð-
jón Þórðarson allt tímabflið í fyrra og
svo inn í veturinn og á undirbúnings-
tímabilinu fyrir þetta sumar lflca. Ég
einsettí mér bara það að liðið fengi
„Ég er loksins búinn að
horfa á leikinn aftur á
myndbandi og ég sá
það á upptökunni að
þetta er öruggur sigur
og við erum alveg með
þá frá því að leikurinn
erflautaðurá
meiri, betri og jákvæðari umfjöllun
heldur en áður og að fjölmiðlamenn
myndu gefa okkur meiri athygli. Að
sjálfsögðu hugsaði ég það lflca með
sjálfan mig, þar sem ég er hluti af
þessu liði, að koma mér út úr þessum
skugga Guðjóns og stimpla mig inn í
eitt skiptí fyrir öll. Fjölmiðlamenn og
aðrir sem þekkja mig ekki nægflega
vel myndu þá setja mig á þann stall
að vera búinn að vinna titíl og vera
alvöru karl í þessu," segir Kristján og
bætírvið:
„Ég hef stýrt liði tfl sigurs í næst-
efstu deild og þriðju efstu deild og
er búinn að vinna bikarinn núna. Ég
er búinn að vinna öll mót á íslandi
nema úrvalsdeild," segir Kristján og
það efast enginn um að stefna hans
og Keflavflcurliðsins næsta sumar er á
sjálfan íslandsmeistaratítílinn.
ooj@dv.is