Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Blaðsíða 2
36 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006
Sport DV
oskar@dv.is
búningsldefanum
• Unglingalandsliðsmaðurinn
Birkir Bjamason er eftirsóttur
þessa dagana. Birkir,
sem leikur með norska
úrvalsdeildarliðinu
Viking Stavanger, er
undir smásjánni hjá
ensku úrvalsdeildar-
liðunum Everton og Reading eftir
mjög góða frammistöðu með u-19
ára landsliði fslands gegn Skot-
um. Forráðamenn Viking vilja
semja við hann upp á nýtt og ætti
þessi áhugi frá Englandi að styrkja
samningsstöðu hans gegn Norð-
mönnunum sem telja það honum
fyrir bestu að spila eitt ár til viðbót-
ar í Noregi ffekar en að kúldrast í
varaliði á Englandi...
• Víkingurinn Viktor Bjarki Arn-
arson, sem valinn var leikmaður
ársins í Landsbanka-
deildinni á lokahófi
KSÍ á laugardaginn,
gæti verið á leiðinni
til norska liðsins Lille-
ström. Það heyrist úr
búningsklefa Víkinga að norska
liðið hafi gert Víkingum tilboð í
Viktor Bjarka sem hljóðar upp á
10 milljónir. Það ku vera nokkuð
undir því sem Víkingar vilja fá fyrir
sinn besta mann en þó ber að hafa
í huga að hann á aðeins eitt ár eft-
ir af samningi sínum í Víkinni og
hækkar því varla verðið eftir því
sem tíminn líður...
• Sigurður Jónsson, sem hætti sem
þjálfari hjá Grindavíkþegar tvær
umferðir voru eftir í Landsbanka-
deildinni í sumar, dvel- gff***-.
ur í Svíþjóð þessa dag-
ana. Hann er að skoða
aðstæður hjá sænska
liðinu Djurgaarden
en tveir af hans gömlu
lærisveinum hjá Víkingi, Kári Árna-
son og Sölvi Geir Ottesen, leika með
liðinu. Svo gæti farið að Sigurður
verði ráðinn til starfa hjá félaginu,
sem aðstoðarþjálfari aðalliðsins og
yfirþjálfari unglingaliðsins...
• Keflvíkingar hafa
fengið mikinn liðsstyrk
fyrir Evrópukeppnina í
körfubolta því Banda-
ríkjamaðurinn Tim
Ellis er genginn í raðir
félagsins. Ellis, sem var sérstaklega
fenginn til að spila í Evrópukeppn-
inni, ermikil stigamaskína ólíkt
Kananum sem fyrir er, Jermaine
Williams, sem er harður vamarmað-
ur. Líklegt þykir að Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflvíkinga,
sparki Williams og haldi Ellis þegar
Evrópukeppninni lýkur líkt og hann
gerði í fyrra en þá spilaði AJ Moye
allt tímabilið eftir að hafa komið til
að spila í Evrópukeppninni...
Valsmenn eru í mikilli sókn. Gríðarleg uppbygging á aðstöðu fer nú fram á svæði fé-
lagsins og vilja forráðamenn þess fylgja því eftir með stefnumótun á innra starfi.
Dagur Sigurðsson. nýráðinn framkvæmdastjóri félagsins, mun stýra þeirri vinnu í
samvinnu við þekkt ráðgj afarfyr irtæki hér í bæ
Griðarleg uppbygging Eins og s/cí má
er mikil uppbygging í gangiá Hlidarenda
og óh.vu ad íullyrðu að félatjssvæðið
veiöui þaó glæsiiegasta á hlandi.
Valsmenn standa á tímamótum þessi misserin. Eftir heldur bág-
bornar aðstæður undanfarin ár blasir við framtíð sem felur í sér
bestu aðstöðu sem nokkurt íþróttafélag á íslandi getur hugsað
sér. í tilefni af því ætlar félagið að blása til sóknar og efla innra
starf þess þannig að Valur verði í stakk búið til að nýta alla
þá möguleika sem bjóðast með nýrri og bættri aðstöðu.
Handboltakappinn Dagur Sig-
urðsson, sem tekur við stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Val næsta vor
þegar hann er laus allra mála hjá
austurríska liðinu Bregenz, mun
leiða stefnumótunina fyrir hönd fé-
lagsins og vinna náið með ráðgjöf-
um frá ráðgjafarfyrirtækinu Capac-
ent Gallup með það fyrir augum að
styrkja innra starf Vals. Hann mun
hitta ráðgjafana á fyrsta fundinum
næstkomandi mánudag.
Naflaskoðun
Dagur sagði í samtali við DV í
gær að þetta væri hugmynd sem
hefði kviknað innan félagsins.
„Mönnum þótti tímabært að
taka félagið í gegn á sama
tíma og ný og glæsileg að-
staða væri að verða að
veruleika. Það má eig-
inlega segja að þetta
sé naflaskoðun á
innra starfi félags-
ins. Hugmyndin
er að mynda nýja
stefnu þannig að inn-
viðirnir standi undir
því að hægt sé að nýta
þá möguleika sem
bjóðast, með nýrri og
bættri aðstöðu, sem
best," sagði Dagur.
Þessi hugmynd hef-
ur verið kynnt fyrir aðal-
stjórn og stjórnum deilda
félagsins en hinn al-
menni félagsmaður hef-
ur ekki verið upplýsmr
um málið. Dagur sagðist
vonast til að það yrði gert
um leið og einhver
skrið-
ur væri kominn á vinnslu þess og
stefnan hefði tekið á sig almennilega
mynd.
Gamlar kempur
hjálpa til
Það er hlutafé-
lagið Valsmenn hf
sem hafði frum-
kvæði að því að
farið var að huga
að mótun nýrrar
stefnu fyrir félag-
ið. Þar ræður ríkj-
um fasteignasalinn
Brynjar Harðarson
en hann var um nokk-
urt skeið formaður hand-
lcnattleiksdeildar Vals. Auk
Brynjars munu gamlar
kempur úr Val koma ná-
lægt mótun stefnunnar.
DV hefur heimildir
„Við bindum vonir við
að verða í forystuhlut-
verki á íslandi á kom-
andiárum
séu menn eins og handboltakapp-
arnir Geir Sveinsson, Júlíus Jónas-
son og Valdimar Grímsson og knatt-
spyrnukapparnir Guðni Bergsson,
Sævar Jónsson, Guðmundur Þor-
björnsson og Þorgrímur Þráinsson.
Dagur sagði að það væri afar mik-
ilvægt að fá gamla leikmenn, sem
hefðu reynslu af atvinnumennsku,
til að hjáipa til en auk þess myndu
stjórnarmenn og foreldrar leggja sitt
á vogarskálarnar.
Gott verður betra
Dagur sagðist vera afar stolt-
ur af árangri félagsins undanfarin
ár þrátt fyrir að aðstaðan hefði
verið bágborin. „Árangur-
inn er ótrúlegur
þrátt fyrir enga
aðstöðu. Við
bindum von-
ir við að verða
í forystuhlut-
verki á íslandi á
komandi árum.
Þá kemur ekki bara
aðstaðan til heldur
er stefnt að því að fé-
lagsstarfið og öll stjórn-
un á félaginu verði til
fyrirmyndar. Það er mark-
miðið með þessu."
oskar@dv.is
Voluskrin
íslensku leikföngin
Epal, Skeifunni
Kisan, Laugavegi
Einu sinni var, Faxafeni
Þjóðminjasafnið, safnbúð
Gallery Kynnisferðir, Leikbær, Laugavegi,
lcelandair Hótel Nordica Faxafeni, Mjódd
Hótel Loftleiðir og Firðinum Hafnarfirði, Rammagerðin, Reykjavík
Radisson SAS Hótel Saga og Kjarnanum Selfossi og Flugstöð Leifs Eiríkssonar