Nýr Stormur


Nýr Stormur - 03.03.1967, Qupperneq 5

Nýr Stormur - 03.03.1967, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 3. marz 1967 b NÝR IWBNUR Útgefandi: Samtök óháðra borgara Ritstjórar: Gunnar Hall, sími 15104 og Páll Finnbogason, ábm. Ritstj. og afgr. Laugav. 30. Sími 11658 Auglýsinga-* og áskriftarsimi: 22929 Vikublað — Útgáfudagur: föstudagur Lausasöluverð kr. 10.00. Áskriftarverð kr. 450.00. Prentsmiðjan Edda h.í. ^iiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiititiiiiiiiiiiiitiiiniMiimitl^ Hverjum klukkan glymur.. Ef menn líta á stjórnmála- ástandið í landinu hlutlaus- um augum, verða menn vís- ari um margt, sem þeim er hulið, er horfa út um skjá sinn með lituðum augum flokksagans. íslendingar eru mjög ó- þroskaðir stjórnmálalega séð. Þetta vilja þó fæstir viður- kenna, en er þó staðreynd samt, eins og nú verður reynt að færa rök að. Á fyrsta áratug þessarar aldar mótaðist núverandi flokkaskipan að mestu leyti. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa verið frá stofnun þeirra, öfl- ugustu stjórnmálaflokkar landsins. íslendingar urðu strax viðskila við pólitíska þróun bræðraþjóða sinna á Norðurlöndum og nágranna- ríkið Bretland. Þar tókst fjöl- mennustu stéttinni, verkalýðn um, strax að skapa sér öflugt pólitískt vopn, með stórum sósíaldemokratiskum flokk- um, sem oftast hafa verið stærstu flokkarnir 1 þessum löndum. Þessir flokkar hafa verið svo öflugir að kommún- istum hefir aldrei tekizt að ná verulegum hljómgrunni og væri þó synd að segja að sum- ir þessara flokka hafi ávallt verið róttækir. Hér urðu verkalýðsflokk- arnir tveir og hafa jafnan bor ist á banaspjótum. Fylgi hins almenna kjósenda við stjórn- málaflokkana, byggist mjög ýft á einhverskonar „traditi- on“ eða erfðavenju. Pabbi og mamma voru íhald eða Fram- sókn, kratar eða kommar o. s. frv. Það hefir verið t alið hringlandaháttur og menn hafa verið kallaðir „pólitísk viðriðni“ hafi þeir ekki fylgt flokki sínum gegnum þykkt og þunnt, helzt alla æfina út. Ef foreldrarnir fylgja þess- úm flokki, er það mjög oft talin hrein ósvinna, ef börn- in gera það ekki líka. Þótt fólk mislíki flest það, sem flokkur sá er það hefir kosið og það á allan hátt er óánægt með, þá er eins og þessu sama fólki finnist það vera að „svíkja“ flokk sinn, ef það kýs hann ekki í öllum kosningum. Og stjórnmálaflokkunum Á 7. degi — Framhald af bls. 4. um heimili sín af alúð og myndarskap. Ala upp börn sín á sama hátt og vera fyrirmynd ar húsmæður að íslenzkum sið? Þær þurfa oft að fara í selskap og þá er þetta fínn skartgripur. Þetta sparar ráð herraheimilunum útgjöld og er góð búbót. Og ráðherrarnir verða oft að fara til útlanda og sitja veizlur hjá fyrirfólki. Þar er mikið um skartgripi, slíka sem þessa. Það væri hrein skömm fyrir landið, ef okkar menn kæmu með jakka boðingana auða og ekki er hægt að ætlast til þess að þeir hengi perlufestar um hálsinn á sér! Það sjá allir að Skúli er „úti að aka“ í þessu máli! Gætuð þið hugsað ykkur hann Gylfa dansa Jenka eða Cha Cha orðulausann í fínum sel- sprýdda ráðherrafrú? — Eða skap úti í löndum við orðum gætuð þið hugsað ykkur Bjarna formann úti í löndum meðal þjóðhöfðingja, hafandi ekkert annað til að punta sig með, en sjónvarpsskeifuna? Nei, Skúli, þú verður að éta hrossatað. Þú færð ekki vín- berin hans Bjarna og þau eru ekkert súr. Svei attan! Þú, kominn á þennan aldur, skul- ir láta svona eins og illa inn- rættur götustrákur! eða öllu heldur forystumönn- um þeirra finnst að fylgis- menn þeirra séu skyldir til að samþykkja allt er þeir taka sér fyrir hendur, án gagn rýni og sjáífstæðrar hugsun ar. Annars líta þeir á flokks menn sína sem flokkssvikara. Þetta sjónarmið er ekki stjórnmálaþroski, heldur þver öfugt. Flokkarnir útbúa kosn ingastefnuskrár, sem eru svo margþættar og óákveðnar að enginn lifandi maður botnar í hvað flokkarnir ætla sér að gera eða framkvæma ef þeir fá völd. Þær eru líka hafðar rugl- ingslegar af ásettu ráði. Því að það eins sem fyrir forystu mönnunum vakir er það, að komast í stjórn með einhverj- um, sama hver er. Þá er gott að hafa ekki lof- að neinu ákveðnu marki, en hafa nóg af útgönguleiðum. Þetta hefir svo það í för með sér, að almenningur getur ekki myndað sér neina á- kveðna stefnu í stjórnmálum hér á landi. Það er aðeins um það að ræða, hverjir hafa næst hrossakaup. Um hreint loft er aldrei að ræða. Auglýsing Frá og með 25. febrúar mun Veðurstofan gefa út veðurhorfur kl. 12,25 og 24,00 fyrir eftirtalin svæði: sv djúp 59N 40w 61 N 40w 62.5N 34w 62.5N 30w 59N 30w s djúp 59N 30w 62.5N 30w 62.5N 20w 59N 20w SA djúp 59N 20w _ 62.5N 20w 62.5N 12w 62N lOw 59N lOw Þessum veðurhorfum verður útvarpað með veðurfregnum á fyrmefndum tímum, og munu þær gilda í 24 stundir hverju sinni. VEÐURSTOFA ÍSLANDS Filistear — í kringum stjórnmálamenn- ina er' svo hópur undirmáls manna, sem hafa það eitt sjón armið, að gæta eiginhags- muna og geta hagnast persónu lega á þátttöku sinni í pólitík. Hið íslenzka embættis- mannakerfi er gerspillt og stjórnlaust. Hinar mörgu stofnanir ríkisins eru undir stjórn manna, sem þangað eru komnir vegna pólitískra „hæfileika." Utan um þá safnast síðan menn, ýmist sem starfsmenn eða viðskiptamenn, frændur og vinir, börn og tengdabörn. Ráðamenn margra slíkra stofn ana hafa annara hagsmuna að gæta, en sem tilheyra starfi þeirra. Þeir hafa aðstöðu til að hlú að þessum hagsmunum sínum í skjóli þeirra starfa, sem þeir hafa fengið í gegnum pólitízka „hæfni“. Á þennan hátt erum við komnir ofan í það dýki, sem talið er ein- kenna ýmsar vanþróaðar þjóð ir, bæði í Suður-Ameríku, Afríku og Asíu. Spillingin í embættismanna Framh. af bls. 8. að ná rétti sínum, en mikill vafi er á, að það takist. Gamli maðurinn dó hinsvegar 1 þeirri vissu að hann ætti glæpamann fyrir son og má nærri geta hvernig honum hef ir liðið, er hann gat ekkert að gert. Gat hvorki mælt eða skrifað og enginn sönnunar- gögn lagt fram. Ræninginn er leigubifreið- arstjóri hér í borginni og hef- ir fengist við að kaupa gaml- ar íbúðir og gera þær upp og kerfinu grefur undan rótum þjóðfélagsins og hún er vernd uð af stjórnmálaflokkum, sem þrífast af gömlum vana og sinnuleysi almennings. Klukka stjórnmálamann- anna glymur ekki þjóð þeirra eða umbjóðendum, heldur þeim sjálfum, valdfíkn og fé- græðgi þeirra og vina þeirra og vandamanna. Bandaríkjamenn reka em- bættismenn frá störfum, ef þeir hafa einkahagsmuni, sem þeir gætu hyglað í sambandi við störf sín. Hér þykir slíkt hinsvegar alveg sjálfsagt. selja síðan. Mun honum hafa vantað fé í reksturinn og séð sér þarrfa leik á borði. Nýr Stormur mun bíða á- tekta við að birta nafn þessa manns, í von um að hann sjái að sér og afhendi systkinum sínum þeirra hlut af pening- unum. Blaðið hefir ekki ráð á að birta nafn þessa manns að svo stöddu, meðan ekki er útkljáð um þetta mál. íslenzk réttvísi mælir svo fyrir, að slíka menn megi ekki móðga með því að segja frá athæfi þeirra opin- berlega. Slíkt heita ærumeið- ingar og varða við lög. Þjóf- urinn gæti fengið álitlega peningaupphæð í viðbót við fenginn, ef sannanir verða ekki nægar fyrir hendi. Og jafnvel þót hann yrði dæmd- ur til að afhenda hluta systk- ina sinna af peningunum, má ekki segja frá verknaðinum. Hér hlífir sá er höggva skyldi. íslenzkri meiðyrðalög- gjöf var misþyrmt með þ^im hætti, er hún var endurskoð- uð og umsamin síðast, að hún verndar þjófana, en níðist fórnardýrunum. Þessi lög- gjöf er einn af hyrningarstein unum undir hinu íslenzka mafíuþjóðfélagi. Gerð til að hlífa filisteunum, vernda stór þjófana og ræningjana. Menn mega ekki vita um þjófnað eða fjársvik, nema að segja frá því, ella eru þeir sam- sekir. En þá vitund er sjaldan hægt að sanna, þess vegna er þeim er af tilviljun kunna að verða vitorðsmenn, en ekki segja frá, óhætt. Þeir geta oftast þrætt fyrir að hafa vitað um málið. Segi þeir hins vegar frá og þá sér- staklega opinberlega, eiga þeir á hættu að fá dóm fyrir ærumeiðingar og fyrir að hafa sagt frá hlutum á „óviður- kvæmilegan" hátt. . Þetta er skýringin á því, að blöð þora ekki að birta nöfn slíkra ofbeldismanna og fjár- svikara fyrr en dómstólar hafa gefið út tilkynningu, þar sem þeir birta nöfn. En rétt- vísin er skrítin á íslandi og góð ,,sambönd“ á æðri stöð- um er gulls í gildi fyrir af- brotamennina, en smáþjófarn ir eru hengdir. auglýsið í NÝJUM STORMI

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.