Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1957, Page 12

Freyr - 01.09.1957, Page 12
264 FRE YR ALFREÐ HALLDÓRSSON: Votheysgerð og súg|Durrkun í 4.—5. tölubl. Freys 1957 er grein meö yfirskriftinni „Votheysgerðogsauð- fj árbændu r“, sem ég með línum þess- um vildi gera að umtalsefni. Er hún að vísu að verulegu leyti ádeila á ritstj. Freys og læt ég þá hlið málsins hlutlausa, því Gísli mun manna færastur um að svara fyr- ir sig sjálfur. Þó verð ég að segja það, að mér virðist farið þar að ýmsu leyti ósann- gjörnum orðum um starf hans, meira en efni standa til. Aftur á móti finnst mér höfundur hafa unnið þarft verk með því að koma af stað umræðum um þessi mál, sem óneitanlega varða bændastéttina í heild miklu. Hefur verið helzt til hljótt um þau af hálfu okk- ar bænda; ættum við áreiðanlega að gera mikið meira að því en verið hefur að segja frá reynslu okkar, bæði um þessi efni og ýmis önnur, er búrekstur okkar varða. Höfundur gerir nokkurn samanburð á hvort heppilegra sé að viðhafa súgþurrkun eða votheysgerð og hvetur bændur til góðr- ar umhugsunar áður en valið er, einkum sauðfjárbændur. Segjum við tveir. En svo fara að skilja leiðir. Hann hefur komið upp súgþurrkun í fjárhúshlöðu sinni, en ég hef byggt fyrir tveimur árum hlöðu, sem mið- uð er við það, að fénu sé gefið tómt vothey. Það er síður en svo, að ég efist um að súg- þurrkað hey sé prýðilegt fóður þegar vel tekst, sem oftast mun vera; efa ég ekkert orð þeirra manna, er frá því hafa sagt, bæði í ræðu og riti, bænda, sem sagt hafa frá reynslu sinni og leiðbeinenda búnaðarsam- takanna. En því er ástæða til að halda að þeir, sem fóðra fé sitt á votheyi, segi ósatt? Hvers vegna er tónn efasemdanna um sannsögli þeirra ávallt í orðum þeirra, er á það minnast, en hafa takmarkaða eða enga reynslu sjálfir? Varl getur verið, að sann- sögli manna fari eftir því, hverja heyverk- unaraðferð þeir aðhyllast. Hitt mun mála sannast, að báðar aðferðirnar geta verið bændum bjargráð, þó eigi hæfi allsstaðar það sama. Og ég held, að enginn ætti að hugsa sér búskap við íslenzka staðhætti án þess að nota aðrahvora aðferðina að meira eða minna leyti. Að vera án þeirra að öllu er alltof mikið öryggisleysi og getur skapað hreint neyðarástand í heilum iandshlutum, ef verulega ber útaf með tíðarfar, og ekki langt á að minnast. Einnig mjög vafasamt fjárhagslega að eiga allt sitt undir sól og regni hvað fóðuröflun við kemur. En hvora aðferðina verður ódýrara og hagkvæmara að nota? Ekki hygg ég, að alls staðar gildi það sama. Á stórum búum, er aðallega stunda mjólkurframleiðslu, finnst mér að nota þurfi báðar þessar aðferðir samhliða, en þar sem aðallega er stunduð sauðfjárrækt, og þá ekki sízt þar, sem meðalbú eru eða minni, ætti votheysgerðin að gilda ein, en sólþurrka einhvern lítinn hluta heymagns- ins, er þá færi nokkuð eftir tíðarfari hverju sinni. Vil ég nú leitast við að gera samanburð á þessum tveimur aðferðum eins og þær koma mér fyrir sjónir og reyna að finna nokkur rök fyrir máli mínu. 1. Stofnkostnaður. Hann verður tvímæla- laust votheysgerðinni í vil, því sízt mun ó- dýrara að steypa hlöðu yfir sama fóður- magn á þurrheyi en votheyi. En þá er eftir allur kostnaður við aflvél blásara og súg- þurrkunarkerfi. 2. Rekstur. Við súgþurrkun þarf brennslu-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.