Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1957, Blaðsíða 27

Freyr - 01.09.1957, Blaðsíða 27
FREYR 279 Úr Breiðdal Vorið var kalt, og það sem af er sumri. Spretta því sein, og var ekki orðin góð fyrr en um miðjan júlí, nema einstaka sáðslétt- ur. Síðan hefur tíð verið mjög hagstæð og heyöflun gengið með ágætum. Úthagi mun lélegur og má fullyrða að nú 3 sumur í röð hefði orðið alvarlegt grasleysi ef ekki hefði bjargað notkun tilbúins áburðar. Það er ýmsum bændum áhyggjuefni hve hátt verð er sett á Kjarnann, bæði miðað við framleiðslukostnað hans og útflutn- ingsverðmæti. Tillaga um athugun þessa máls var beint héðan frá búnaðarfélaginu til stéttarsambands og Framleiðsluráðs, með samhljóða samþykki kjörmannafund- ar Múlasýslna. Ekkert, alls ekkert mundi bændum farsælla til afkomuöryggis en hóf- legra verð innlenda áburðarins. Vill ekki Freyr upplýsa nánar en gert hefur verið reksturstilhögun og grundvallarreglur við rekstur Áburðarverksmiðjunnar? Hvað var mikill hluti stofnverðs gjafafé? Hve hárri upphæð nemur hlutaféð, og hvaða vextir voru greiddir af því? Hvaða reglur gilda um geymslu og notkun fyrningarsjóðsins? Ekki virðist ósanngjarnt að allt þetta sé bændum ljósara en ráða má af þeim frétta- tilkynningum, sem birtar eru frá aðalfund- um. Með fyrirfram þökk fyrir væntanlegar upplýsingar. Mjög lítið er nú í sumar um jarðabætur hér í Breiðdal, og mun minna um byggingar en undanfarin ár. Þó eru peningahús í byggingu á 4 býlum, en að- eins eitt íbúðarhús í smíðum. Svo mikill skortur er á þakefni, að 3 af þessum 4, sem eru með peningshús í byggingu, verða að reita saman gamalt járn til að byrgja hlöð- urnar, og komið fram í ágúst. Samdráttur í ræktun og byggingum er auðvitað eðlileg og vituð afleiðing kjara- rýmunar sem bændur urðu fyrir á s. 1. ári vegna lækkunar á ýmsum búvörum, sem nemur þúsundum á smábúum hér í sauð- fjárræktarhéruðum. Á því verður að ráða bót ef ekki á illa að fara. Tófufaraldur er árlega orðin plága hér í sveit, sem veldur þungum áföllum, og meiri en mönnum er fyllilega ljóst. Skýrsla um gróðrartilraunir á Eiðum eftir Ólaf Jónsson — Rit Búnaðardeiidar — Nr. 10 Akureyri 1957. Út er komið í B-flokki rita Búnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans rit er nefnist Skýrsla um gróðrartilraunir á Eiðum 1906-1942. Ólafur Jónsson, ritstjóri á Akureyri hefur gert upp tilraunirnar og tekið ritið saman. Hefur Ólafur unnið þar mikið verk og þarft, því ekk- ert hafði áður birzt um árangur Eiðatilraun- anna. Tilraunastöðin á Eiðum í Fljótsdalshéraði var stofnuð árið 1905 af Búnaðarsambandi Austurlands, en á árabilinu 1914—1926 voru litlar eða engar tilraunir gerðar þar, en frá 1928—1942 er þráðurinn tekinn upp að nýju, og tilraunir framkvæmdar að nýju í stöðinni. Tilraunirnar sem greint er frá í ritinu eru að- allega gerðar á því tímabili. Eiðatilraunirnar voru, eins og segir í inngangsorðum ritsins. „fyrst og fremst áburðartilraunir en einnig voru gerðar þar nokkrar nýræktartilraunir, tegundatilraunir o. fl.“ Flestar áburðartilraun- anna eru taldar hafa nokkurt almennt gildi, en sumar þeirra einkum staðbundna þýðingu. Það eykur gildi ritsins, að höfundur reynir eftir föngum að gera samanburð á tilraunun- um á Eiðum og tilraunum, er gerðar hafa ver- "------------------------------------------"N Öxlar með hjólum fyrir aftanivagna og kerrur; bæði vörubíla- og fólksbíla- hjól á öxlunum. — Beizli. — Jeppakerra. Til sölu hjá Kristjáni Júlíussyni, Vestur- götu 22, Reykjavík e. u. Póst- kröfusendi, sími 22724. v.------------------------------------------.>

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.