Freyr - 01.09.1962, Blaðsíða 21
FRE YR
279
Kútur h. s. Kóngs og Lciru.
Eig.: Björn Sigurösson, Sauðhaga, Völlum.
Baukur h. s. Smára frá Gilsá.
Eig.: Snæþór Sigurbjörnss., Gilsárteigi, Eiðahr.
Spakur frá Arnórsst. s. Ljóma.
Eig.: Jón Jónsson, Klausturseli, Jökuld.
Sproti h. s. Prúðs (Surtsst.).
Eig.: Jóh. Björnsson. Eiríksstöðum, Jökuld.
Spakur frá Sandbrekku s. Prúðs.
Eig.: Guðm. Halldórsson, Hólshjál., Hjhr.
5 vetra hrútar og eldri:
Grettir h. s. Fífils og Lokku.
Eig.: Garðar Pétursson, Starmýri, Alftf.
Fífill h. s. Bjarts og Bangar.
Eig.: Einar Einarsson, Ormarsstöðum, Fellum.
I. verðlaun B hlutu:
1 veíra hrútar:
Prúður h. s. Kela frá Hrafnkelsst.
Eig.: Guðni Jónsson, Imastöðum, Helgust.hr.
Z vetra hrútar:
Svanur h. s. Gylfa.
Eig.: Guðjón Ármann, Skorrast., Norðf.
Hjalti frá E. S. Hjaltastað.
Eig.: Einar Pétursson, Arnhólsstöðum, Skriðd.
Sómi frá Skóghlíð s. Fífils.
Eig.: Benjamín Jónsson, Rangá, Tunguhr.
Freyr frá Gilsá s. Norðra.
Eig.: Pétur Eiríksson, Egilsseli, Fellum.
3 og 4 vetra hrútar:
Bogi frá Fossvöllum s. Boga frá Holti.
Eig.: Kristján Einarsson, Fremraseli, Tunguhr.
Lokkur frá Brekku s. Ljóma.
Eig.: Guðm. Jónsson, Litla-Steinsvaði, Tunguhr.
Hnokki frá Gilsárstekk s. Vals.
Eig.: Eiríkur Elísson, Hallfreðarst., Tunguhr.
Kútur frá Lundi.
Eig.: Björgvin Sigfinnsson, Víðilæk, Skriðd.
Kolur frá Geitagerði s. Kóngs.
Eig.: Bened. Sigfússon, Beinárgerði, Völlum.
Grettir frá Haugum.
Eig.: Zóphónías Stefánsson, Mýrum, Skriðd.
Spakur h. s. Bjarts frá Holti.
Eig.: Einar Einarsson, Ormarsst., Fellum.
Dulles h. s. Blika frá Holti.
Eig.: Egilsstaðabúið, Egilsstaðahr.
Fjðsloft í mjólkurhúsi
Byggingatæknistofnun Búnaðarháskól-
ans á Ási í Noregi hefur gefið út vélritað
plagg, sem fjallar um niðurstöður rann-
sókna, er varða fjósloft og fjóslykt í mjólk-
urhúsi. Þykir rétt að segja frá þeim hér
því að líkt mun á komið á ýmsum stöðum
hér á landi í umbúnaði og innréttingum,
sem gerir það að verkum, að andn'imsloft
mjólkurhúsa mengast um of af fjósabef.
í tilraunafjósi á Ási voru athuganirnar
gerðar og skráðar, loftstreymi mælt með
hraðamæli og loftþrýstingurinn með mis-
þrýstingsmæli. Rannsóknir þessar sýndu ó-
tvírætt, að aldrei eiga að vera dyr úr fjósi
í mjólkurhús. Vegna þess, að alltaf er
hlýrra í fjósi er þar yfirþrýstingur, sem
beinir loftstraumnum í mjólkurhúsið í
hvert sinn sem opnað er í milli. Reynt var
að skapa jafnþrýsting með því að blása
lofti inn í mjólkurhúsið en bað reyndist
torvelt nema með miklu loftmagni og helzt
þurfti hitastigsmunurinn elinnig að vera
sem minnstur. En þrátt fyrir svona ráð-
stafanir varð ekki með öllu komizt hjá því
að fjóslykt streymdi á milli.
Rétta lausnin á máli þessu er að hafa
gang milli fjóss og mjólkurhúss. Það verður
ekki hindrað, að fjósloft komist í ganginn,
en áður en eitthvað af því kann að streyma
af gangi í mjólkurhús er það svo þynnt
orðið, að þess gætir ekki verulega. Ef fjósið
er loftræst með rellu eru miklu minni líkur
til að loftstraumurinn beinist inn í mjólk-
urhús, því að hraðstreymi lofts verður
meira áleiðis til rellunnar en að strompi,
sem annars er loftræstitæki. Rellan skapar
minni loftþrýsting í fjósi en annars er þar,
og loft frá gangi streymir jafnan inn í
fjósið svo að þannig verður óbeinlínis tak-
mörkuð innrás fjóslofts á gang. Fullkom-
inn aðskilnaður mjólkurhúss frá fjósi og
fóðurgeymslum hindrar auðvltað með öllu
að i það berist fjósþefur, en vinnuskilyrði
torveldast þá að mun og það er ókostur.