Freyr - 01.09.1962, Síða 22
280
F R E Y R
Svipmyndir frá landbúnaðarsýningum
Um búnaðarsýningar.
Það gæti verið langt mál ef segja skyldi
frá smámunum sýninga þeirra, sem í
grannlöndum okkar eru árlegir viðburðir
og teljast fastur liður í atburðarás fólksins
og starfsins, sem það leggur stund á. Sýn-
ingar eru háðar til þess að kynna fram-
leiðslu hinna ýmsu stétta, árangur starfs-
ins og gera upp á milli þess, sem starfið
hefur orkað.
Kappleikir iþróttafólks eru háðir til þess
að fá úr því skorið hverjir eru fremstir á
þeim sviðum. Vörur eru sýndar til þess að
gefa væntanlegum notendum og neytend-
um kost á að gera samanburð við sjálfs-
sýn. Og árangur starfsins og starfsaðferð-
irnar eru kynntar á sýningum búenda til
þess að eftirbátarnir í einstaklingsrekstri
eða félagslegu framtaki, eigi þess kost að
kynnast fyrirmyndunum.
Sýningar landbúnaðarins í grannlöndun-
um eru ekki allsstaðar jafn mikils metnar
né eins mikil stund á þær lögð. Að tiltölu
munu þær algengastar og umfangsmestar
hjá Dönum enda hefur sú þjóð sérstæð
skilyrði til samgangna og almennra flutn-
inga, sem þurfa að vera auðveldir þar sem
lifandi peningur og umfangsmiklar vélar
er flutt um nokkrar vegalengdir. í þessu
og næstu heftum FREYS skal drepið á sitt
af hverju, sem ritstjórinn sá og kynnti sér
að nokkru á sýningum Dana á síðasta