Freyr - 01.05.1970, Síða 3
PÁLMI EINARSSON:
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
Aukablað — Maí 1970
66. árgangur
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
E I NAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
PÁLMI EINARSSON
Ritstjórn:
GÍSLI K R I STJÁNSSO N
(ábyrgðarmaður)
ÓLI VALUR HANSSON
Heimilisfang:
PÓSTHÓLF 3 9 0, REYKJAVÍK
BÆNDAHÖLLI N, REYKJAVÍK
Áskriftarverð kr. 300 árgangurinn
Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og
auglýsingar:
Bœndahöllinni, Reykjavík — Sími 19200
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Reykjavík — Sími 38740
EFNI:
störfum
kalnefndar
Skipun nefndar og verkefni.
Hinn 7. ágúst 1969 ákvað landbúnaðarráðuneytið að skipa
samstarfsnefnd sjö manna til að vinna að tilteknum verk-
efnum, er verða mœttu til að draga úr og forða tjóni af
kali og grasbresti á ræktuðu landi í framtíðinni.
Landbúnaðarráðherra skipaði nefndina þremur sér-
fræðingum í jarðrækt frá Rannsóknastofnun landbúnað-
arins, þeim dr. Bjarna Helgasyni, licensiat agro. Friðrik
Pálmasyni og dr. Sturlu Friðrikssyni og þremur ráðu-
nautum Búnaðarfélags íslands i jarðrækt, þeim Agnari
Guðnasyni fóðurræktarráðunaut og jarðræktarráðunaut-
unum Birni Bjarnasyni og Jónasi Jónssyni. Formaður
nefndarinnar var skipaður Pálmi Einarsson, núverandi
formaður stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.
Af hendi landbúnaðarráðuneytisins var, samkvœmt
skipunarbréfinu, lagt fyrir nefndina:
I. Að safna gögnum, sem fyrir liggja um kal og kal-
rannsóknir í landinu.
II. Gera tillögur um varnir gegn grasbresti af völdum
kals.
III. Að athuga, á hvern hátt heppilegt sé að endurrœkta
skemmd tún, þar sem kal er fyrir hendi og arfavöxtur
ríkjandi.
Frá störfum kalnefndar
Orsakir kals
og vísindaleg undirstaða
kalrannsókna
Veður og kal
Hitafar og búrekstur
Hitafar á Islandi
Kal og búskaparhœttir
Áhrif áburðar á kalþol
Um kal
Frá kalráðstefnu
Störf nefndarinnar og starfsaðstæður
Nefndin hóf störf sín hinn 25. ágúst 1969, en geta má þess,
að starfsmenn þeirra stofnana, sem i nefndina voru
kvaddir, höfðu sínum föstu störfum að gegna og ferða-
lögum í þágu stofnana sinna fram eftir hausti, en frá því
í ágústlok hafa verið haldnir vikulegir fundir, en auk þess
unnið að margvíslegri öflun upplýsinga, er málið varða
utan funda.
Með bréfi, dagsettu 12. september sl., beinir nefndin
þeim tilmœlum til allra héraðsráðunauta búnaðarsam-
banda i landinu, að þeir gefi nefndinni yfirlit, hver úr
sínu umdœmi, um útbreiðslu kals, þar sem óskað var, að
tilgreindar væru jarðir, þar sem kal hefur valdið veru-
legu tjóni, og að áœtluð væri heyskaparrýrnun af þeim
sökum. Jafnframt var óskað álits þeirra á, hverjar væru
F R E Y R
183