Freyr - 01.05.1970, Side 23
MARKÚS Á. EINARSSON:
VEÐUR og KAL
Erindi fluttó Kalráðstefnu í Reykjavík 16. febrúar 1970
Markús Á.
Einarsson
Orsakir kalskemmda eru vafalítið marg-
víslegar, og því óárennilegt að draga einn
margra samverkandi þátta, eins og veðrið,
út úr heildarmyndinni til sérstakrar athug-
unar. Hér er þó um það veigamikinn þátt að
ræða, að stefna verður að því að leita nánar
þess veðurlags, sem svo mjög er óhagstætt
gróðrinum, að leiðir til kals.
Æskilegt væri, að saman gæti farið ná-
kvæm könnun og kortlagning kalskemmda
tiltekinna svæða, athugun á snjóa- og
svellalögum og sérstakar veðurathuganir,
sem gefið gætu nokkuð nákvæma mynd
af hitafari svæðisins, ekki í einum punkti,
heldur á mörgum stöðum við mismunandi
staðhætti og aðstæður.
Ýmis vandkvæði eru þó á slíkri athugun
og augljóst, að um framtíðarverkefni er að
ræða, þar eð gögn, sem nú þegar liggja
fyrir, eru ófullnægjandi, bæði hvað varðar
könnun á kalsvæðum og mat á kalskemmd-
um, sem einkum reynist erfitt, þegar fleiri
en eitt kalár koma í röð. Sömuleiðis getur
engin ein veðurathugunarstöð á kalsvæði
gefið fullnægjandi mynd af veðurlaginu.
Til þess er hitafar, úrkoma, snjóa- og svella-
lög alltof breytileg. Að auki vantar á flestar
veðurathugunarstöðvar ýmsar mælingar,
sem að gagni gætu komið, og dettur mér þá
fyrst í hug jarðvegshitamælingar, sem þó
hafa aukizt mjög allra síðustu árin.
Hvað sem öllum vanda líður, verður að
telja eðlilegt, að á undan nákvæmri rann-
sókn fari sérstök frumathugun, þar sem
kannað sé, hvort finna megi einhver sér-
kenni veðurlags þau ár og á þeim svæðum,
þar sem verulegra kalskemmda hefur gætt.
Athugunin þarf að ná til verstu kalára og
kalsvæða síðasta áratugs og beinast að
veðráttu undanfarins vetrar og vors, með
sérstöku tilliti til veðurlags, sem valdið
gæti kali, svo sem langvarandi frosta, vor-
hláka, vorhreta, snjóa- og svellalaga. At-
hugunina má gera án beinnar hliðsjónar af
kenningum um orsakir kals, einungis er
gerð tilraun til samanburðar á veðurlagi
kalára og kallausra ára, ef ske kynni, að þar
leyndist einhver sú ábending, sem að notum
gæti komið við frekari rannsókn.
Þær fáu vikur, sem liðnar eru síðan kal-
nefnd fór þess á leit, að hér kæmi eithvað
fram um veður og kal, hef ég reynt að hefja
frumathugun af því tagi, sem að ofan grein-
ir. Vegna hins skamma tíma, sem var til
stefnu, voru aðeins verstu kalsvæði og kalár
þessa síðasta áratugs athuguð, og nær ein-
göngu notaðar veðurathuganir frá Kjörvogi
í Árneshreppi, Raufarhöfn og Hallormsstað.
Það, sem ég hef hér fram að færa ber því að
líta á sem lauslegar ábendingar, sem krefj-
ast nánari úrvinnslu í góðu tómi, en sem þó
getur verið nokkurs virði að varpa fram til
umhugsunar nú þegar.
* * *
F R E Y R
203