Freyr - 01.05.1970, Síða 28
Hitamagn fró upphafi
l.vorhlóku til júníloka.
1965 66 67 68 69
1965 66 67 68 69
1960 61 62 63 64 65 66 67 68 69
0Kalvor
0
-100
-200
KJÖRVOGUR
4r-
3
2 _
_-f/g
n ...n Í1 n
RAUFARHÖFN
-—uu a “ aö □
HALLORMSSTAÐUR
Frostgróóudagar F.
fró l.vorhlóku.
Fjöldi vorhlóka.
Á Kjörvogi voru öll vor frá 1965 mjög
köld, þetta frá 1.7°C til 3.7°C undir meðal-
lagi, en þar vill þó svo til, að vorin 1965 og
1969 voru köldust, en þau eru ekki talin
mikil kalár.
Af framansögðu er ljóst, að samband milli
hitafars árstíðanna og kals er ekki mjög
uppörvandi, en hins vegar gefur vorhitinn,
og sú staðreynd, að marz-mánuður er oft
kaldasti mánuður kalvetranna, tilefni til
þess, að litið sé nánar á þennan árstíma.
Til glöggvunar hef ég fyrir stöðvarnar
þrjár teiknað línurit yfir daglegan meðal-
hita allt frá 1. október að hausti til júníloka
næsta ár, veturna 1964—65, 1965—66,1966—
67 og 1967—68, og sýnir 2. mynd hitafarið á
Raufarhöfn sem dæmi. Athyglisvert er fyrir
öll línuritin, hversu óreglulegt og breytilegt
hitafarið er, og virðast hlákur nokkuð tíðar
allan veturinn. Hins vegar eru þær oftast
svo skammvinnar og litlar, að þær hafa lítil
áhrif á snjóhulu, ef snjóar eru að ráði.
Á línuritum þeim, sem myndin sýnir, og
einnig á línuritum frá Kjörvogi og Hall-
ormsstað er það allgreinilegt einkenni, að
seinni hluta vetrar má greina mikil og lang-
varandi kuldatímabil, en síðan taka við á
víxl hlákur og frostakaflar fram á vorið.
Ég hef notfært mér þetta einkenni á þann
hátt að telja, að 1. vorhlaka hefjist þann
dag, sem áðurnefndu kuldatímabili lýkur,
en við taka á víxl hlákur og frostakaflar af
sambærilegri stærð. Er sýnt á línuritunum
með ör, hvar þessi mörk hafa verið sett,
hvað Raufarhöfn snertir. Er að ýmsu leyti
eðlilegt að athuga sérstaklega tímabilið eft-
ir upphaf þessarar 1. vorhláku, en það nær
þá yfir þann tíma, sem er líklega hvað mik-
ilvægastur fyrir gróðurinn, þ. e. leysingu
snjóa og lifnun alls gróðurs eftir veturinn.
Hafa eftirtalin atriði verið reiknuð út fyrir
Kjörvog og Raufarhöfn árin 1965—69, en
fyrir Hallormsstað árin 1960—69:
Hitamagn frá upphafi 1. vorhláku til júní-
208
F R E Y R