Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1972, Page 13

Freyr - 01.01.1972, Page 13
brugðist. Ýmist hefur salan lítið sem ekk- ert aukist, eða þá ekki í eins ríkum mæli og búist var við. Ef borið er saman tímabilið frá 1. des- ember 1970 til 1. júní 1971 og sama tímabil árið áður kemur eftirfarandi í ljós: Nýmjólk. Á þessu tímabili seldu mjólkursamlögin 21.654.547 ltr. mjólkur og er það aðeins um 99,1% af sölu sama tímabils árið áður. Þess ber þó að geta, að mjólkursalan hafði minnkað meira, áður en niðurgreiðslurnar hófust. Virðist því svo sem hinar auknu niðurgreiðslur hafi dregið úr samdrætti m j ólkursölunnar. Rjómi. Af rjóma seldu mjólkursamlögin alls 610.992 lítra, á umræddu tímabili, og er það 114,2% af rjómasölunni sama tímabil árið áður. Skyr. Skyrsalan á umræddu tímabili var 862.775 kg. og er það ekki nema 99,1% af skyr- sölunni á sama tímabili árið áður. Smjör. Smjörsalan á þessu umrædda tímabili var 695 smálestir, en það er 21,7% aukning frá því sem var á sama tímabili árið áður. Þetta er vissulega mikil aukning, en þó ekki eins mikil og söluaukning sú sem varð á smjörinu þegar verð þess var lækk- að árið 1966, en þá varð söluaukningin um 40%. Smjörbirgðirnar í landinu þann 1. júní 1971 voru 870.934 kg. í stað 653.423 kg. á sama tímabili árið áður. Ostur, 45%. Sala á 45% feitum mjólkurosti innanlands á þessu tímabili varð 190.963 kg. og er það 47,1% aukning frá árinu áður. Ostur, 30%. Á umræddu tímabili minnkaði sala á 30% feitum osti um 2,2%, miðað við sama tíma- bil árið áður. Það virðist því svo sem að samdráttur sá sem á undanförnum árum hefur verið á sölu 45% osts, hafi að mestu leyti verið af þeim sökum, að neytendum hafi þótt hann of dýr. Þeir hafa því fært kaup sín yfir á 30% feitan ost og hafa niðurgreiðsl- urnar breytt þessu til hags fyrir sölu á 45% feitum osti. Margur hefur litið svo á að flótti fólksins frá feitiríkum fæðuteg- undum hafi fært ostasöluna frá feitum ostum yfir í fituminni tegundir. Svo virð- ist sem slíkar ályktanir hafi ekki við rök að styðjast. B Sauðfjárafurðir. Að framan er skýrt frá því, hve mikil sauð- fjárslátrunin var haustið 1970. Þar kemur fram að sláturhúsunum barst 702 lestum minna kindakjöt haustið 1970, en þeim barst 1969. Af þessum 702 smálestum var F R E Y R 7

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.