Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1972, Page 16

Freyr - 01.01.1972, Page 16
leiðsluráðs og Viðskiptamálaráðuneytisins og annarra aðila, sem um málið fjölluðu. Ekki hefur heldur borið á því að menn hafi talið að um nokkurt misferli á þessum niðurgreiðslum hafi verið að ræða. En vitanlega er hætta ávalt fyrir hendi þegar niðurgreiðslur eru hærri en upphæð sú, sem er milli útsöluverðs varanna og þess verðs, sem framleiðandinn fær fyrir fram- leiðslu sína. Verðlagsmál. Þegar aðalfundur Stéttarsambandsins var haldinn að Varmalandi sl. ár, var búið að ganga frá verðlagsgrundvelli til næstu tveggja ára og varð grundvallarverðhækk- un 21.9%. Einnig var búið að ganga frá ákvörðun um vinnslu- og dreifingarkostn- að mjólkur, en um hann varð samkomulag og hækkaði hann um 21% frá árinu á und- an. Þá varð síðar samkomulag um slátur- og heildsölukostnað kjöts, svo og vaxta ag geymslukostnað kjöts, og var ákveðið að kjötið hækkaði mánaðarlega um 48 aura pr. kg. vegna vaxtakostnaðar frá 1. nóv. til ágústloka. Til þess er ætlast af hálfu Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins, að bændur fái 75% af andvirði sauðfjárinnleggs greitt eða inn- fært í viðskiptareikinga og vaxtareiknað miðað við 1. nóv., en eftirstöðvarnar vaxta- færðar frá 1. jan., og er þessi ákvörðun um vaxtafjárhæð við það miðuð. En varðandi mjólkurinnlegg er miðað við, að bændur fái 75% grundvallarverðs- ins greitt eða vaxtafært í viðskiptareikn- ing, ekki seinna en 20. næsta mánaðar, eftir lok innleggsmánaðar, en eftirstöðv- arnar frá áramótum eins og varðandi sauðfjárinnleggið. Síðan verðlagningu lauk í fyrrahaust hafa orðið margvíslegar hækkanir á rekstrarvörum. Sumar þeirra komu fram stuttu eftir verðlagningu svo sem á kjarnfóðri, olíu, benzíni o. fl. Reynt var að fá fram verðbreytingar til samræm- is við hækkun rekstrarvaranna, en ekki var unnt að ná neinu samkomulagi um slíkt í sexmannanefndinni og vísuðu full- trúar neytenda þar til ákvæða verðstöðv- unarlaganna um, að ekki mætti hækka verð á vöru eða þjónustu, nema brýna nauðsyn bæri til. En þeir véfengdu nauð- syn bænda til verðhækkunar á tímabilinu til 1. sept n. k. Þeirri kröfu, sem við settum fram í þessu efni í febrúarmánuði og hefði átt að koma til framkvæmda 1. marz skv. Framleiðslu- ráðslögunum, var vísað til yfirnefndar. Skipa þurfti nýja yfirnefnd og það tók nokkurn tíma. Yfirnefnd varð þó fullskip- uð og áttu sæti í henni: Ingi Tryggvason af hálfu framleiðenda, Hafsteinn Baldvins- son lögfræðingur af hálfu neytendafulltrú- anna og Guðmundur Jónsson borgardóm- ari, oddamaður, skipaður af Hæstarétti. Vegna ókunnugleika tveggja mannanna tók það þá allminkinn tíma að átta sig á, hvernig vinna skyldi að meðferð málsins og drógst niðurstaða til 2. apríl. Var þá úrskurðuð 2.4% hækkun á verðlagsgrund- velli. Þá þurfti að leita samþykkis ríkis- stjórnarinnar fyrir hækkuninni, skv. verð- stöðvunarlögunum. Leyfi hennar fékkst en var miðað við, að hækkunin kæmi til framkvæmda 1. maí og var ákveðin hækkun niðurgreiðslna, sem þessu nam og kom því engin hækkun fram í smásölu til neytenda. í maímánuði hækkaði verð áburðar um 7.5% og gerðum við fulltrúar framleiðenda kröfu til verðbreytingar þess vegna. Sú krafa gekk líka til yfirnefndar, sem felldi úrskurð 2. júní um 0.72% hækkun á verð- lagsgrundvelli. Sú hækkun fékkst ekki samþykkt af ríkisstjórninni og hefur því ekki komið til framkvæmda enn. Hinn 12. lagði Hagstofa íslands fram framreiknaðan grundvöll miðað við verðlag 1. ágúst og kaupgjald miðað við kaupgreiðsluvísitölu 1. sept. Sýnir sá framreikningur rúmlega 7.35% hækkun frá 1. sept. 1970. Fjármálaráðherra ákvað niðurfellingu söluskatts af dieselolíu vegna landbúnaðar 10 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.