Freyr - 01.01.1972, Qupperneq 18
Miklum fjármunum er árlega varið til að fullkomna sláturhúsin.
eru settir. Ég vil taka fram, að ég tel samn-
inga um hliðarmálefnin ekki mega skaða
á neinn hátt verðlagið sjálft, heldur verði
það látið koma til viðbótar og til leiðrétt-
ingar á því, sem á hefur skort að undan-
förnu, að bændur hefðu sambærileg kjör
við aðrar stéttir eða þá til lækkunar á
framleiðslukostnaði.
Ég tel, að við breytingu laganna verði
bændur að fá aukið frjálsræði í skiptingu
verðsins á milli vöruflokka, þannig, að
sem mest fé náist við sölu á innlenda mark-
aðnum án þess þó, að verðlag einstakra
vörutegunda sprengi markaðinn. Þetta
hlýtur alltaf að vera vandasamt að meta,
en helzt er það fært fyrir þá, sem bezt
fylgjast með eftirspurn og áhrifum verðs
á eftirspurn vörimnar.
Þá tel ég, að til álita komi að breyta
ráðstöfun á útflutningsbóta- og niður-
greiðslufé og a. m. k. binda niðurgreiðsl-
udnar við ákveðið kerfi, sem fylgdi hlut-
fallslegri verðbreytingu varanna og að
ekki sé hægt að hringla með þær eftir
duttlungum varðandi vísitölu eða annað,
sem óskylt er landbúnaðinum.
Ríkisstjórnin hefur lýst yfir, að hún
stefni að auknum kaupmætti launa lág-
launafólks þar á meðal bænda um 20% á
næstu tveim árum. Ekki liggur enn ljóst
fyrir, hvernig það á að framkvæma. Einnig
hefur verið lýst yfir að stytta skuli vinnu-
vikuna í 40 st. og lengja árlegt orlof um
eina viku. Þetta hvort tveggja mundi þýða
verulega hækkun á búvöruverði, ef bænd-
ur eiga að njóta þess í reynd svo sem skylt
12
F R E Y R