Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 6

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 6
ÓTTAR GEIRSSON: Vanmefinn vaxtarþáttur Yfirlit. í grein þessari er bent á, að þurrkar draga iðulega úr grassprettu hér á landi. Þetta eru alkunn sannindi, enda mun vart til sá bóndi á íslandi, sem ekki hefur einhvern tíma sagt eða hugsað: „Nú vantar bara vætu til að spretti; bara að hann fari nú að rigna.“ Okkur hættir til að líta á það sem óvið- ráðanleg atvik og algerlega háð dutlungum náttúrunnar, hvort gróður fær að vori það vatn, sem hann þarfnast eða ekki. í grein þessari er bent á þrjú atriði, vökvun, skjól og aukningu á rakaheldni jarðvegs, sem geta dregið úr skaðsemi þurrka. Það er ljóst að auka mætti uppskeru í meðalárum og þurrum með þeim ráðstöfunum, sem nefndar eru í greininni, en hins vegar er ekki ljóst, hvort uppskeruaukinn mundi borga þann kostnað, sem í væri lagt. Til að svara þeirri spurningu vantar rann- sóknir, sem hingað til hafa verið af mjög svo skornum skammti, ef til vill vegna þess, að þessi vaxtarþáttur hefur verið van- metinn. Mönnum hefur vaxið í augum til- kostnaðurinn við að koma í veg fyrir ofþurrk og talið til gangslaust að reyna neitt til úrbóta. Efalaust er mál til komið að gera nokkrar tilraunir með vökvun og rannsóknir á skjóláhrifum á þurrviðrasöm- um stað hérlendis, einkum á sendnum eða malarkenndum jarðvegi. Vatnsnám gróðurs. Allar lífverur þurfa vatn til að geta starf- að. Gróður er engin undantekning frá þeirri reglu. Flestar plöntur eru að miklum hluta vatn. Algengt er, að 7/10 til 9/10 hlutar gróðurs séu vatn, en aðeins 1/10 til 3/10 hlutar þurrefni. Þrátt fyrir það verð- ur aðeins örlítið brot af öllu því vatni, sem planta nemur úr jörð á vaxtarskeiði sínu, eftir í plöntunni. Mestur hluti þess streym- ir í gegnum plöntuna, inn um ræturnar sem vökvi og út um blöðin sem gufa. Þau efni, sem uppleyst eru í vatninu í jarðveg- inum, verða eftir í plöntunni, þegar vatnið gufar út frá henni og á þann hátt fær hún hluta þeirrar næringar, sem hún þarfnast. Það er fyrst og fremst háð veðráttunni, hversu ört planta tekur vatn úr jarðveg- inum. Þegar hörgull verður á vatni, fer þó jarðvegstegundin að hafa áhrif, þar sem hreyfingar vatns í jarðvegi eru háðar gerð hans. í vindi og björtu og heitu veðri, þ. e. í góðum þurrki, er vatnsnám plantna mest. Á blöðum jurta er aragrúi örsmárra opa, sem kallast loftaugu. Hlutverk þeirra er að hleypa lofti inn í vefi blaðsins, en úr koltvísýringi loftsins vinna jurtirnar þau lífræn efni, sem þær þurfa á að halda, eins og kunnugt er. En auk þess streymir vatn í gufuformi frá plöntunni út um þessi op. Ef loftaugun eru lokuð, gufar tiltölu- lega lítið út frá plöntunni, því að lítið 294 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.