Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1974, Side 13

Freyr - 01.09.1974, Side 13
sparnað í hvívetna, fremur útgjöld eins og gerist og gengur, eins og tímarnir nú birtast og tilveran túlkar gang málanna. —o— Eins og bændur geta nákvæmlega reikn- að hvað hver skepna kostar, þannig væri auðvitað líka hægt að reikna tilveru hvers manns, uppeldiskostnað barna og annað. Og þetta er svo sem gert, þó ekki hér. Það er svo margt, sem gert er vestan At- lantshafsins og þar hafa þeir líka reiknað hvað 18 ára unglingur kostar. FARM JOURNAL, þ. e. Dagblað bænda, hefur fengið landbúnaðarráðuneyti þar vestra, og svo hagstofu nokkra, til að reikna þetta og komist þannig að tölulegum nið- urstöðum, sem vissulega mundu gefa til- efni til, að kaupkröfur hérlendis mundu aukast að mun, ef það sýndi sig, að jafn- mikið kostaði að framleiða 18 ára ungling hér eins og þar. Við skulum kynna okkur ögn af tölunum þaðan, og margfalda doll- arann bara með 80 krónum, það er svo þægileg tala, til þess að breyta okkar verð- mæli. Og svo lítum við á tölurnar: Fæðiskostn. frá fæðingu til 18 ára aldurs kr. 438.800 Fatnaður frá fæðingu til 18 ára aldurs — 211.200 Húsnæði frá fæðingu til 18 ára aldurs — 451.200 Læknir og tannlæknir frá fæðingu til 18 ára aldurs ........................— 72.000 Skólakostn. frá fæðingu til 18 ára aldurs — 38.400 Ferðakostn. frá fæðingu til 18 ára aldurs — 307.200 Ýmislegt ..............................— 225.600 Þetta gerir samanlagt kr. 1.740.400 Ef reiknað er raunverulegt gengi dollar- ans, sem mun vera um 96 íslenskar krónur, er upphæðin öll 1,9 milljón krónur eða um 100.000 á ári að meðaltali. Gerð er nánari grein fyrir, hvernig þessar tölur eru til orðnar og kemur þar meðal annars fram, að húsmóðirin — þ. e. oftast móðirin — á mjög mikinn hlut að þessari upphæð, en til þess að gera sér grein fyrir hlut hennar voru tölurnar fengnar og metnar hjá hagstofnunum, sem safnað hafa tölum frá vinnumælingum og þekkja taxta hinna ýmsu starfa. í stórum dráttum voru til grundvallar lagðar tölur þær, sem hér fara á eftir: Matreiðsla, 15,4 stundir á viku, 2,5 dollar á klst. Barnagæsla, 10,9 st. á viku á 2,3 dollar á klst. Alm. bústörf, 8,4 st. á viku, á 1,6 dollar á klst. Ræsting og viðhald í húsi 8 st. á 1,55 d. Uppþvottur, 6,6 st. á 1,50 dollar. Þvottur og línstroka á viku 7,1 st. á 1,8 dollar. Innkaup, 3,4 st. á viku á 1,75 dollar. Saumar og stoppun fatnaðar, 5,5 st. á 2,5 dollar. Reikningshald, 1,9 st. á viku á 2,5 dollar. Bílakstur, 7,9 st. á viku á 2.2 dollar. Störf húsmóðurinnar eru þannig talin, en þau nema um 65 stundum á viku að meðaltali, sem að verðgildi eru 153,92 doll- arar eða rúmlega 13.000 íslenskar krónur. Að sjálfsögðu eru þau unnin fyrir allt heimilið, en hlutur barnsins reiknaður út sem viðeigandi brot úr hverjum vinnulið, og hlutur barnsins er að sjálfsögðu breyti- legur frá einu aldursstigi til annars. Þetta er ekki ófróðlegt yfirlit þótt töl- urnar séu til orðnar fyrir vestan haf. Ef reikna skyldi verðgildi tímans eftir íslenzk- um tímataxta mundu að sjálfsögðu fást aðrar niðurstöður og vissir póstar mundu allt aðrir hér en þar. En hvað sem því líður þá er hitt alveg víst, að það gildir hér eins og þar, að það er ekki veigalítill hlutur, sem húsmóðirin hefur lagt af mörkum til þess að skila þjóðfélaginu 18 ára unglingi, er myndugur hefur starf sitt sem þjóðfé- lagsþegn. F R E Y R 301

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.