Freyr - 01.09.1974, Page 19
Laugaland í Nauteyrarhreppi. Gróðurhúsaframleiðsla.
bærilegrar fyrirgreiðslu, nema því aðeins
að fram fari hliðstæð áætlanagerð og á
Inn-Djúpssvæðinu, þannig, að það sé við-
urkennt af landbúnaðarráduneytinu, land-
námsstjórn, Framkvœmdastofnun ríkisins
og Alþingi. Á meðan engin löggjöf er til
um fyrirgreiðslu af þessu tagi, sé ég ekki
að nýir aðilar geti notið hennar, nema sam-
stilltur vilji fyrrgreindra stofnana komi til.
1. Markmið.
Markmið byggðaáætlunar fyrir Inn-Djúp
er í stuttu máli:
Að efla atvinnulíf svæðisins með því að
stækka búin og gera þau rekstrarhæfari og
treysta með því og auka búsetu á svæðinu.
Að tryggja landbúnaðarframleiðslu og
hafa áhrif á val búgreina með hliðsjón af
neysluþörf fólks í þéttbýli á norðanverðum
Vestfjörðum.
2. Áætlunarsvæðið.
Grunnflatarmál er í heild 163.000 ha
(1630 km2). Neðan við 300 m hæðarlínu
eru um 44.000 ha, eða 27% af flatarmáli.
Svæðið skiptist í fjóra hreppa, talið að
norðan: Snæfjallahreppur, Nauteyrar-
hreppur, Reykjarfjarðarhreppur og Ögur-
hreppur.
Byggðin er dreifð á um það bil 190 km
strandlengju, enda er hvergi samfellt lág-
lendi, og yfirleitt stutt frá fjallshlíðum og
hálsum til sjávar, þannig, að flestir bæir
eru staðsettir á stærri eða minni hjöllum
og daldrögum, þar sem gróður er samfelld-
ur.
F R E Y R
307