Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1974, Side 20

Freyr - 01.09.1974, Side 20
fflunnindi. Laxveiði er einkum á tveim stöðum, í Langadal og Laugardal. Þar er um að ræða 9 byggðar jarðir og 8 óbyggðar. Lítils hátt- ar silungsveiði er á 18 byggðum jörðum og 8 eyðijörðum, en telst þó varla til hlunn- inda. Möguleikar eru á veiðihlunnindum á um það bil 20 jörðum í viðbót, og eru þá eyðijarðir taldar með. Tekjur af œðarvarpi eru á 5 bæjum, selveiði á 3 byggðum jörð- um og 1 eyðijörð, en lundaveiði er á einum bæ. Jarðhiti finnst á um það bil 30 stöðum. Fólksfjöldaþróun. Fólksfækkun hefur orðið víðast hvar á Vestfjörðum undanfarna áratugi. Byggða- svæði það, sem áætlunin fjallar um, hefur ekki farið varhluta af þeirri þróun, því að fólki hefur fækkað á árabilinu 1930—1972 úr 711 í 339 eða um 56,1%. Á sama tíma varð hlutfallsleg fækkun á Vestfjörðum 24%, en aftur á móti 93,6% fjölgun á þjóð- inni. Ræktað land og ræktunarmöguleik'ar. Túnstærðir og ræktanlegt land við Inn-Djúp. Áætlunar- jarðir Önnur býli Alls: Nytjuð tún Ræktanlegt land ha 579,5 ha 370-560 65,5 140-240 645,0 510-800 Ræktað + ræktanl. ha 950-1140 205-305 1155-1445 Ekki hefur verið lagt tölulegt mat á ræktunarmöguleika allra jarða, og eru því ræktunarmöguleikar varlega metnir. Með- altúnstærð byggðra jarða er 13 ha. nær eingöngu um ruddan veg að ræða. Unnið er að því að leggja veg úr Ögur- hreppi um Skötufjörð, Hestfjörð og í Seyð- isfjörð í Súðarvíkurhreppi, en þangað er kominn vegur frá ísafirði. Stefnt er að því, að þessari vegagerð ljúki 1974. Verður þá bílfært eftir þeirri leið til ísafjarðarkaup- staðar frá Tyrðilmýri, sem er ysti bær í byggð á Snæfjallaströnd. Þaðan er vega- lengdin um 263 km. Samgöngur á sjó. Aðalsamgöngur við ísafjarðarkaupstað og önnur svæði við ísafjarðardjúp fara fram á sjó með Fagranesinu, sem er um 150 tonna flutninga- og farþegabátur. Báturinn er rekinn af hlutafélagi með ákveðnum árlegum ríkisframlögum. Á vetrum fer Fagranesið tvær ferðir í viku í Inn-Djúp, á þriðjudögum og föstudögum, með við- komu á flestum áætlunarstöðum. Bændur þurfa að aka með mjólk og aðrar vörur á næstu bryggju til móts við bátinn. Sé reiknuð vegalengd frá hverjum bæ á næstu bryggju, tvær ferðir í viku allt árið, verður ekin vegalengd í þeim ferðum samtals 57.240 km. Kunnugir telja, að vægt sé reiknað, að 2 klst. fari til jafnaðar í ferð hjá hverjum bónda. Kostnað af þessum akstri mætti til fróðleiks áætla á þessa leið: 57.240 km (á ríkistaxta bifreiða) á 9/70 ........................... Kr. 555.228,00 39 bændur X 104 ferðir X 2 klst. = 8112 klst. á 200/00 ............ — 1.624.000,00 Samtals áætlað: Kr. 2.179.228,00 Vegakerfið og samgöngur á landi. Vegakerfi í þessum fjórum hreppum er mjög ábótavant. Einu vegatengslin við Vestfjarða- og Vesturlandsveg eru um Langadal, yfir Þorskafjarðarheiði á veginn í Þorskafirði. Sjálf heiðin er í um 200—500 m hæð og um 30 km á lengd. Þessi leið er venjulega ófær öllum bílum frá því í októ- ber og fram í júní, eða 7—8 mánuði, enda Auk þessara ferða fer Fagranesið virka daga aukaferðir í Ögur, um aðalferða- mannatímann til að flytja bíla til og frá ísafirði. Á sumrin er ein áætlunarferð í viku með fólksflutningabíl í Inn-Djúp frá Reykjavík, í um 2ja til 3ja mánaða tíma. Á sumrin sækir fólk jöfnum höndum verslun og þjónustu suður yfir Þorska- 308 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.