Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 21
Hamar í Nauteyrarhreppi.
fjarðarheiði í Króksfjarðarnes, Skriðuland,
Búðardal og á höfuðborgarsvæðið. Þurfi
fólk að fara til ísafjarðar einhverra erinda
með Fagranesinu, tekur það 3 daga, ef farið
er á þriðjudögum, en annars 4 daga. Á
sumrin er hægt að komast af með sólar-
hring með því að fara frá Ögri.
Flugsamgöngur.
Við ísafjarðardjúp eru alls 7 flugvellir með
9 flugbrautum. ísafjarðarflugvöllur er að-
alflugvöllurinn með einni 1400 metra langri
og 45 metra breiðri flugbraut.
Á svæði Inn-Djúpsáætlunar eru 5 af áð-
urgreindum 7 flugvöllum, þ. e. við Strand-
sel í Ögurhreppi, Reykjanesi í Reykjar-
fjarðarhreppi, Arngerðareyri í Nauteyrar-
hreppi og við Bæi í Snæfjallahreppi.
Ekkert áætlunarflug er frá ísafirði á
flugvelli á Inn-Djúpssvæðinu. Flugfélagið
Ernir hf. hefur veitt íbúunum ómetanlega
þjónustu með sjúkra- og leiguflugi. Hefur
sú þjónusta einkum reynst Reykjanesskóla
mikilvæg, en þar dvelja og eiga búsetu
nokkuð á annað hundrað manns á vetrum.
Búseta væri mun lakari, ef þessarar flug-
þjónustu nyti ekki við. Kæmi hún samt að
fyllri og hagkvæmari notum, ef fast áætl-
unarflug væri tekið upp.
Raforkumál.
Rafveita Snæfjalla tók til starfa 1965 og
gekk Nauteyrarhreppur í hana 1971. Hún
hefur rekið orkuver við Mýrará í Snæ-
fjallahreppi og er nú að ljúka byggingu
orkuvers við Blævadalsá. Dreifikerfi henn-
ar nær nú til allra bæja í Snæfjallahreppi
og 9 býla í Nauteyrarhreppi. Áformað er,
að það nái til allra býla í Nauteyrarhreppi
árið 1974.
Rafveita Reykjarfjarðarhrepps var stofn-
uð 1971 og gekk Ögurhreppur í hana árið
FREYR
309