Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1974, Page 22

Freyr - 01.09.1974, Page 22
1973. Verið er að byggja dreifikerfi hennar, og mun það á þessu ári ná til 5 sveitabýla í Reykjarfjarðarhreppi auk Reykjanes- skóla. Samið hefur verið við Jón J. Fann- berg um rekstur orkuvers, er hann byggir við Húsadalsá í Mjóafirði (Sængurfoss). Orkustöðvar verða því þrjár samtals 710 KW og er þeim ætlað að fullnægja raf- orkuþörf svæðisins. Heilbrigðismál. Enginn læknir á búsetu á áætlunarsvæð- inu. Læknir er búsettur á ísafirði. Engar skipulegar læknisferðir eru inn á svæðið. Fólk, sem þarf á almennri læknisþjónustu að halda, verður að fara til ísafjarðar. í neyðartilfellum er læknir fluttur með flug- vél, ef veðuraðstæður leyfa, en annars með Fagranesinu, en ferð með því getur tekið allt að þrem klst. hvora leið. Skólamál, félags- og menningarmál. Miðstöð fræðslumála í Inn-Djúpi er í Reykjanesi. Reykjanesskóli er annars veg- ar barnaskóli fyrir nemendur til loka barnaprófs og héraðsskóli með 1. og 2. bekk unglingaskóla og 3. bekk, alm. miðskóla- deild, og 4. bekk, gagnfræðadeild. Heima- vistarrými er fyrir 24 nemendur í barna- skóla og 90 nemendur í héraðsskólanum. Lítill íþróttavöllur er í Reykjanesi, sá eini á svæðinu, og gömul opin sundlaug. Verzlun og þjónusta. Engin verslun er í Inn-Djúpi. Þann tíma, sem Þorskafjarðarheiði er lokuð, er öll verslun sótt til ísafjarðar, svo og öll önnur þjónusta, þ. á. m. hvers konar viðgerðar- þjónusta á landbúnaðar- og heimilisvélum. Póstur og sími. 9 bréfhirðingar eru á svæðinu og er póstur sendur til þeirra með Fagranesinu frá ísa- firði. Ögur- og Snæfjallahreppar eru tengdir símstöðinni í Súðavík, sem hefur afgreiðslu allan sólarhringinn. í Reykjarfjarðarhreppi afgreiðir símstöð 4 tíma, en í Nauteyrar- hreppi 6 tíma á dag. Afgreiðslutími er of stuttur, þannig, að ekki er hægt að anna öllum umbeðnum símtölum. Bilanir eru tíðar á símakerfinu. Sjónvarp. Endurvarpsstöð er á Bæjum. A 6 bæjum sjást sendingar hennar ekki, 9 bæir hafa léleg skilyrði. Sérstaða. Inn-Djúpssvæðisins. Eftir því sem nefndin hefur unnið meira að þessari áætlanagerð og kynnt sér betur Inn-Djúpssvæðið og aðstöðu íbúa þess, hef- ur sú skoðun mótast, að eigi verði komist hjá því að marka ákveðna stefnu í þessu efni. Það er einnig álit nefndarinnar, að nauðsynlegt verði að tengja greiðslu á að- stöðumun framkvæmdaáætlun, því að ann- ars væri óvíst, að nokkuð gæti orðið úr framkvæmd hennar. Verður nú vikið að þeim atriðum, er nefndin telur, að komi til álita, þegar að- stöðumunur er metinn á Inn-Djúpssvæð- inu. 1. Byggðin er afskekkt og dreifð á 190 km svæði frá Tyrðilmýri á Snæfjallaströnd að Hvítanesi í Ögurhreppi og úr tengsl- um við þjóðvegakerfi landsins um Þorskafjarðarheiði 7—8 mánuði. 2. Vegakerfi innan svæðisins er ábótavant. Viðhaldsfé takmarkað og snjómokstur nær aldrei framkvæmdur á vetrum. Innanhéraðsvegir eru oft ófærir um lengri eða skemmri tíma á vetrum. 3. Flutningskostnaður með Fagranesinu til og frá ísafirði er allmikill og veldur hærra verði á rekstrar- og neysluvörum. Auk þess verða bændur að sækja og flytja sjálfir vörur á ferjubryggjur mis- munandi langan veg og oft við mjög erfiðar aðstæður, sem bæði eru tíma- frekar og kostnaðarsamar. Verzlunar- ferðir fólks til ísafjarðar taka 3—4 daga, þar sem Fagranesið fer aðeins tvær ferð- 310 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.