Freyr - 01.09.1974, Qupperneq 23
Kirkjuból í Nauteyrarhreppi.
ir í viku, á þriSjudögum og föstudögum,
um 9 mánuði ársins. Aðstaða á ferju-
bryggjum er fátækleg, engin skýli né
girðingar.
4. Sumarið í Norður-ísafjarðarsýslu er að
jafnaði 2—4 vikum styttra en á Suður-
landi.
5. Á Inn-Djúpssvæðinu er engin verslun
með neysluvörur, byggingavörur né aðr-
ar vörur til búrekstrar og einkaneyslu,
nema bensín og olíur, og þarf því að
sækja svo til alla verslun til ísafjarðar
eða í Króksfjarðarnes á sumrin.
Engin þjónustufyrirtæki eru á svæð-
inu í helstu iðngreinum, s. s. bílaviðgerð-
um, járnsmíði og trésmíði.
Læknaþjónusta er á ísafirði, og þar
er einnig héraðsdýralæknir og getur
reynst bæði kostnaðarsamt og tímafrekt
að leita læknis.
Félagsaðstaða er lítil og erfið, enda
ekkert félagsheimili á svæðinu.
6. Engar fastar áætlunarferðir eru innan
héraðs á landi eða í lofti. Áætlunarferðir
Fagranessins eru því einu skipulögðu
ferðir til og frá þessu svæði og innan
þess, að undanskilinni einni áætlunar-
ferð í viku yfir ca 2 mánuði á sumrin
frá Reykjavík að Bæjum á Snæfjalla-
strönd.
7. Gera má ráð fyrir, að verð á jörðum sé
og verði lágt fyrst um sinn, og þess
vegna verði að afskrifa alla fjárfestingu
að hluta. Við ákvörðun fasteignamats
1970 var gangverð fasteigna bænda á
þessu svæði yfirleitt metið 25—40%
undir kostnaðarverði að undanskildum
hlunnindum.
í framhaldi af framangreindri upptalningu
þykir rétt að benda á, að hliðstæður finn-
ast annars staðar, og má segja, að svo sé
um nær allt Vestfjarðasvæðið, enda þótt
Inn-Djúp hafi algera sérstöðu í mörgum
atriðum.
Nefndin telur það hins vegar ekki í sínum
verkahring að gera slíkan samanburð á
öðrum svæðum, enda þyrfti þá að hafa
farið fram „úttekt" á svæðinu, með líku
móti og gert er í Inn-Djúpi.
Jöfnun á aðstöðumun.
Til viðbótar þeim atriðum, er hér að fram-
an hafa verið talin, mætti bæta við nokkr-
um grundvallaratriðum.
F R E Y R
311