Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1974, Síða 25

Freyr - 01.09.1974, Síða 25
Vigur í ísafjarðardjúpi, — Ögurhreppi. allt að 45 millj. króna á áætlunartíma, árin 1973—1978, og er þá miðað við verðlag síðari hluta árs 1972, en 1. október 1972 var byggingavísitala 689 stig. Lánsfjárþörf er áætluð þessi: 1973 kr. 5,1 milljónir 1974 — 15,4 — 1975 — 11,9 — 1976 — 6,6 — 1977 — 4,4 — 1978 — 1,5 — Gert er ráð fyrir, að lánsfé þetta sé með sambærilegum kjörum og lán Stofnlána- deildar til framkvæmda á bændabýlum. Til tryggingar þessu viðbótarlánsfé kæmi e. t. v. ríkisábyrgð, til viðbótar veði í framkvæmdum eða ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. Lagt er til, að lánsfé verði lagt fram samtímis framkvæmdum eftir nánara sam- komulagi við lánastofnun eða lánastofn- anir. Lagt er til, að ráðinn verði sérstakur starfsmaður á vegum Landnáms ríkisins til þess að hafa á hendi framkvæmd áætlunar. Jafnframt verði bændum séð fyrir fyllstu leiðbeiningaþjónustu og skal bændum skylt að leitast við að haga búrekstri og framkvæmdum eftir ábendingum ráðu- nauta og framkvæmdastjóra áætlunarinn- ar. Aðstöðumunur. Hér að framan eru talin upp atriði, sem hafa áhrif á aðstöðumun, og sem til greina kemur að jafna með beinum framlögum. Þennan aðstöðumun þarf að rannsaka nán- ar samtímis og hafin er framkvæmd Inn- Djúpsáætlunar, þar sem nefndinni hefur ekki unnist tími til að kanna ýmis atriði, er til mats gætu komið. Lagt er til að þessi aðstöðumunur verði ákveðinn fyrir eitt ár í senn, og fyrir árið 1974 verði hann metinn 25% og greiddur af ríkisfé. Heildarupphæð í beinum óaftur- kræfum framlögum 1974 gæti þá orðið um kr. 6,0 millj. á áætlunarsvæði. Er þá miðað við, að heildarupphæð sé fundin með því að bæta aðstöðumun við verðlagsgrund- vallarverð á framleiðsluvörum bænda, sem koma til sölumeðferðar í sláturhúsum og mjólkursamlögum árið 1973. Greiðsluupphæð til hvers bónda miðast því við framleiðslu hans á þessum búvörum. F R E Y R 313

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.