Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 26

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 26
Prótein úr uliu Svo er sagt, að íbúar heimsins séu nú um 3.600 milljónir og ýmsir svartssýnismenn álíta, að um næstu aldamót verði þeir svo margir, að jarðkringlan framfleyti ekki fleira fólki. Það er náttúruega mælt út í hött því milljarðar ha lands eru látnir ó- nýttir á okkar dögum og verðlaun eru veitt í sumum löndum fyrir að leggja akra og önnur ræktunarlönd í eyði, fyrir að hætta að yrkja þar sem þó er gjöful jörð. Satt er það, að víða um lönd sveltur fólk hálfu og heilu hungri, en af allt öðrum ástæðum en þeim, að jörðin framfleyti ekki íbúum sínum. Mannleg eymd er tengd framtaksleysi, ofstjórn og óstjórn, þekking- arskorti og vöntun á tæknilegum aðbúnaði. í jörðu og hafi og lofti eru geymd þau efni, sem allt líf byggist á, og það er yfir- fljótanlegt og alltaf í hringrás, en geysi- magn þess einnig grafið í jörðu. Sumt af því er þó verið að leysa og nýta, svo sem olíuna og kolin og önnur brennanleg jarð- efni. Þar er orkan og í umhverfinu er súr- efnið til sameiningar svo að orkan verði leyst úr læðingi. En svo eru það hráefnin í próteini. Próteinið er máske það, sem fyrst skortir, en í andrúmsloftinu er gnótt af frumefni þess köfnunarefni, sem æðri verur geta ekki nýtt óbreytt heldur aðeins sambönd þess. En af orku brennanlegra efna í jörðu, olíunni, og svo köfnunarefni loftsins, geta vissar lífverur framleitt þau köfnunarefnissambönd, sem æðri verur þurfa. Prótein. Prótein. Hvað er nú það? segja þeir, sem í blindni hafa verið leiddir á villigötur og kennt að kalla próteinauðug efni eggja- hvítu. Frumleg köfnunarefnissambönd eru mörg og mynda önnur fjölþættari, sem heita amínósýrur. Af þeim eru svo til fjöl- mörg sambönd, sem í daglegu tali eru nefnd prótein og eggjahvíta er á meðal þeirra. Amínósýrur eru þeir hornsteinar, sem æðri lífverur nota fyrst og fremst til að byggja prótein og nýta sem mikilvæg nær- ingarefni fyrir frumur líkamans. Af amínó- sýrunum hafa til þessa verið 8—11 taldar lífsnauðsynlegar, en á síðari árum hefur verið talið, að þær séu jafnvel 14. Þær eru þá að sjálfsögðu í einstaklingunum bundn- ar, og þá fyrst og fremst 1 kjöti og fiski, en einnig í öðrum afurðum dýranna, svo sem eggjum og mjólk. Einmaga skepnur, eins og t. d. maðurinn og svínið, hljóta að fá amínósýruþörfum fullnægt fyrst og fremst sem fullbyggðum próteinum. Hitt er svo annað mál, að til þess að þær nýtist verða meltingarfærin að lima fullbyggðu próteinin sundur og brjóta þau niður í amínósýrur til þess að þær geti síazt úr meltingarveginum inn í blóðið og borizt svo út til fruma líkamans sem næring. Líkamsvefina þarf alltaf að endurnýja og þar er próteinið ákaflega mikilvægt. Það er m. a. aðalþátturinn í hinum svo- nefndu hvötum (hvati = enzym), sem stjórna að miklu leyti fjölda af mikilvæg- ustu lífshræringum innri starfsemi. Sá sultur, sem mest kveður að í heiminum, er raunar vöntun á þessum mikilvægu efn- um. Verkanir skortsins eru mikilvægastar á börnum — ungviðinu, sem er að byggja upp líkamsvefina. Og skortur á próteinum í heiminum hefur leitt til þess, að allar vörur, öll matvæli, sem geyma verulegt magn þeirra, fara síhækkandi í verði, mið- að við aðrar tegundir matvæla. Þegar þannig er frá sagt má ekki blanda verðlaginu saman við þau fyrirbæri, sem einstakar þjóðir ráða, hver hjá sér, þar sem um er að ræða framleiðslustyrki eða niðurgreiðslur, er verka sem liður í efna- hagskerfi þjóðanna. 314 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.