Freyr - 01.09.1974, Side 33
Máluð pök
Svo er sagt, að á þessu sumri hafi meira verið
málað en nokkru sinni fyrr hér á landi. Því
má ef til vill segja, að eftirfarandi ráð komi
í ótíma, en hetra er seint en aldrei. Ráðin
eru norsk og miðuð við bárujárnsþök, en
ætla má að svipað gildi hér og í Noregi.
Tímaritið SAMVIRKE birti grein þessa í
sumar og má telja vel viðeigandi að birta
hana einnig hér.
Zinkhúðaðar bárujárnsplötur eru varðar
gegn ryði og er zinkið betri vörn en nokkur
málning, en auðvitað endist það ekki ó-
takmarkað. Það er því eðlilegt og sjálfsagt
að mála þökin ekki fyrr en að því kemur,
að zinkhúðin er að svíkja og ryð að gera
sín vart.
Ef aðeins vottar fyrir ryði er óhætt að
mála án þess að hreinsa ryð áður, en séu
verulegir ryðblettir komnir er nauðsynlegt
að hreinsa þá með stálbursta, annars er
ekki nauðsynlegt að hreinsa með öðru en
venjulegum strákúst áður en málað er.
Sé hreinsað með stálbursta eða ryð-
hreinsi má aðeins nota þá á ryðblettina.
Séu þeir notaðir utan ryðbletta tollir máln-
ing þar illa við. Þegar burstað er eða
hreinsað á annan hátt má aldrei bíða til
næsta dags með að þekja blettina með
ryðvarnarmálningu heldur mála þá strax.
Þegar málað er á annað borð skal ávalt
mála tvisvar. Fyrsta umferð er þá fram-
kvæmd með góðri ryðvarnarmálningu, sem
þekur vel og er vel þekkt að ágætum sem
grunnmálning. í annarri umferð skal nota
málningu, sem þekur vel og er margreynd
að því að þola vel ljós, loft og vætu. Til
er málning, sem er allt í senn: ryðverjandi,
festist vel við bárujárn og þolir vel veður-
farið. Sé slík málning notuð ber þó að fara
tvær umferðir um þakið.
Þess ber að minnast, að hrein þakmáln-
ing hefur eiginleika aðeins til þess að
standast veðurfarið en er ekki ryðverjandi.
Álmálning er yfirleitt góð þakmálning en
hún er óhæf sem ryðvarnarmálning, því
að ál eyðir zínkhúðinni á plötunum og
hraðar þannig ryðmyndun. Því er sjálfsagt
að nota annaðhvort góða grunnmálningu
og þakmálningu svo í annarri umferð eða
málningu, sem hefur tvorutveggja eigin-
leikana og með hana skal alltaf fara tvær
umferðir um þakið.
Þar sem svo hagar til, að regnvatn af
þökum er notað til drykkjar handa mönn-
um eða skepnum má aldrei nota málningu,
sem blý er í, því að veðráttan leysir blý
úr samböndum, það blandast vatninu og
blý er eitur, sem spillir heilsu manna og
málleysingja ef nokkru nemur.
Kýrhúðirnar eru metnar og nautahúðir
einnig og báðum tegundum er skipt í 4
flokka eftir gæðum. Nautahúðir koma fáar
á markað af eðlilegum ástæðum, en kýr-
húðir margar og frágangur á þeim er —
vægilega sagt — ákaflega misjafn. Það er
fláning og söltun húðanna, sem er svo mis-
jafnlega með farið.
Svo eru það húðir af ungviði. Þær, sem
eru milli 4—12 kg að þyngd, eru líka flokk-
aðar í fernt, á hliðstæðan hátt.
Svo eru það kálfskinnin, sem vega minna
en 4 kg, en þar um ræðir ungkálfaskinn.
Þeim er líka skipað í 4 flokka og að sjálf-
sögðu er það, eins og við önnur skinn, frá-
gangur þeirra og meðferð, sem ræður hvar
þau falla í flokk.
Oddur upplýsti ennfremur, að sútunar-
verksmiðjan á Akureyri súti ekki naut-
gripahúðir, það gerir ekki betur en að hún
geti sinnt gærusútun og svo vinnur hún
hrosshúðirnar einnig.
Nautgripahúðir fara því yfirleitt sem
hráefni á erlendan markað.
F R E Y R
321