Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1974, Síða 36

Freyr - 01.09.1974, Síða 36
Frá Flúðum. Afgreiðsla frá útibúinu í Hveragerði er þar. Innlán. Heildarinnlán Búnaðarbanksans námu 5599 milljón- um króna í árslok 1973, en 4244 árið áður og höfðu því aukizt um 1355 milljónir á árinu, eða 31,9%. Til samanburðar varð aukning innlána 829 milljónir árið 1972, eða 24,3%. Innlán aðalbankans og útibúanna í Reykjavík voru 3350 milljónir króna, sem er ársaukning að upphæð 797 milljónir, eða 31,2% á móti 19,7% aukn- ingu árið áður. I útibúum bankans utan Reykjavíkur námu inn- lán 2249 milljónum króna og var vöxtur þeirra 558 milijónir, eða 33,0%, en 25,3 árið 1972. Spariinnlán, sem eru 75% heildarinnlána, námu 4197 milljónum um áramót og jukust um 961 milljón króna, eða 29,7% samanborið við 21% árið 1972. Spariinnlánum er svo skipt nánar eftir vaxtakjör- um og eftir vaxtabreytinguna 1. maí liggja árs- vextir á bilinu 9—12%%. Veltiinnlán, sem er hinn aðalflokkur innlána, eru innstæður á tékkareikningum. Voru þau 1402 milljónir króna í árslok og höfðu aukizt um 394 milljónir króna, eða 39,1%, en 36,0%, árið áður. Otlán. Heildarútlán Búnaðarbankans námu 4721 milljónum króna í árslok, en voru 3653 milljónir næstu ára- mót á undan. Aukningln varð því 1068 milljónir, eða 29,2% en tilsvarandi tölur árið áður voru 561 milljón, og 18,1%. Útlán í aðalbankanum og útibúum í Reykjavik reyndust 2544 milljónir og höfðu aukizt um 487 milljónir, en það er 23,7%, á móti 307 milljónum og 17,5% árið 1972. f útibúum bankans utan Reykja- víkur voru útlán 2177 milljónir í árslok, aukning 581 milljón, eða 36,4%. Til samanburðar varð aukn- ing árið áður 254 milljónir, eða 18,9%. f heildartölu útlána eru meðtalin öll endurseld lán í Seðlabankanum, sem að mestu leyti eru af- urðavíxlar landbúnaðarins, svo og verðbréfakaup bankans vegna framkvæmdaáætlunar ríkisstjórn- arinnar, en 10% af aukningu bindiskyldra innlána runnu til Framkvæmdasjóðs íslands í þessum til- gangi. Víxlar eru algengasta Iánsformið. Nam víxlaeign bankans 1887 milljónum króna í árslok og hafði aukist á árinu um 567 milljónir, eða 42,9% á móti 18,8% árið 1972. Afurðalán námu 1052 milljónum, en það er aukn- ing um 322 milljónir, eða 44,1%. Verðbréfaeign bankans reyndist 1049 miUjónir. Ársvöxtur varð 177 milljónir, eða 20,3%, til sam- anburðar við 16,5% aukningu árið á undan. Verð- 324 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.