Freyr - 01.09.1974, Page 39
Á aðalfundi „NORGES BONDELAG" að BÖ á Þelamörk, mættu 5—600 manns, fulltrúar frá öllum bún-
aðarsamböndum landsins. Myndin veitir yfirsýn yfir fundarsal við setningu fundarins.
Við stjórnarkjör gaf JAN E. MELLBYE ekki kost á sér til endurkjörs og var því kjörinn nýr formað-
ur: HANS HAGA, bóndi í Haga á Heiðmörk (t. v. á myndinni).
heims. Um þann fund birtist grein í FREY
með mynd, er sýndi nokkurn hluta þing-
heims.
Að þessu sinni var þingið háð með venju-
legu sniði þar sem mættir voru fulltrúar
frá áður nefndum félögum og svo ýmsir
gestir, eða samtals um 600 manns, er fyllti
nýjan og víðan fimleikasal skólanna í BÖ,
en þar var þingið háð.
Við setningu talaði þekktur biskup, Alex
Johnson, með andagift og mælsku um tím-
anna tákn frá fortíð til nútíðar, um sér-
kenni okkar tíma og hátterni þjóðarinnar
í góðu og illu.
❖ ❖ *
Um mál þingsins er annars það að segja,
að þau snerust að verulegu leyti um hlut-
verk bændastéttarinnar, árangur starfanna
á sviði búskaparins og efnahagslegar nið-
urstöður. Hæst gnæfðu þó verðlagsmálin,
og ekki að ástæðulausu. Að undanförnu
hefur hlutur bænda í Noregi verið um það
bil 60—70% af verkamannalaunum, en nýir
samningar strönduðu í vetur, hlutur bænda
þótti svo fyrir borð borinn af stjórnvöldum
landsins, í þeim samningum, að samkomu-
lag náðist ekki og fór málið í gerðardóm.
Sá dómur féll einmitt fyrri dag þingsins
og á þann veg, að landbúnaðinum var ætl-
að 340 milljónum norskra króna minna fyr-
ir afurðir tímabilsins en sanngjarn útreikn-
ingur bændasamtakanna hafði gert kröfur
til, og þá ekki tekið tillit til þeirra mjög
öru verðbreytinga, sem gerast í Noregi um
þessar mundir, en 340 milljónir norskar
eru um 6 milljarðar íslenskra króna, og það
mun þýða 37.000 íslenskum krónum of lítið
F R E Y R
327