Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 41

Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 41
• Útkoman verður lakari en hér getur því að ekki er gert ráð fyrir vísitölu- hreyfingum, nema að vissu marki, þrátt fyrir öra verðlagshækkun. • Fulltrúar ríkisins lögðu fyrst fram á- ætlun, er gerði ráð fyrir fjórðungi þeirrar hækkunar af því, sem fulltrúar bænda áætluðu. © Ríkisstjórn Bratteli gerði síðan kröfu til gerðadóms, er felldi dóm þann, sem um getur. • Hlíta verður gerðardómi eins og hæsta- réttardómur væri, enda þótt hann beri í sér niðurlægingu norsks landbúnaðar. • Það er í verkahring fulltrúa sjálfs land- búnaðarins að ráða verðlaginu innan hinna einstöku búvörutegunda, sjálfur dómurinn er aðeins sá rammi, sem um- lykur heildarniðurstöðurnar. Það voru galli blönduð sum þau orð, sem féllu í umræðunum eftir að dómurinn var upp kveðinn og náði til þeirra, sem honum urðu að hlíta. * * * En fleira var til umræðu í þinginu. Þar á meðal var kapprætt um þau efni, er varða jarðeignir, sem nýttar eru og nytjaðar til búskapar. Með kapphlaupi nýríkra ein- staklinga um að festa fjármagn sitt í landi og lendum hefur verðið miðað til örrar hækkunar, og hefur þetta aftur leitt til þess, að landmat hefur hækkað að sama skapi, en skattamálin fylgja í kjölfarið, þannig, að hækkandi landverð þýðir hækk- andi álögur. Svo langt virðist víða gengið í þessum efnum, að þungi skatta sé að verða lítt bær baggi á búrekstrinum, og það, á meðal annars, sé lítt kleifur hamar í vegi unga fólksins, sem annars vill gjarnan gera bú- skap að ævistörfum. Ennfremur snerust umræður að því, er snertir útgjaldaliði landbúnaðarins og fé- lagssamtök hans. Margir liðir útgjalda eru háðir utanaðkomandi öflum. Markaðsverð kraftfóðurs hefur verið ört hækkandi síð- ustu mánuðina og var ráðgert að mundi hækka um 29 aura norska hver fóðureining um þessar mundir, en þess má geta um leið, að ákvörðun, samkvæmt norskum lög- um, gerir ráð fyrir, að á hverjum tíma sé til í landinu um heils árs birgðir kornvöru til manneldis og hálfs árs a. m. k. til fóðurs. Af þessu hefur leitt, að á gengnu ári var um að ræða tiltölulega litla hækkun á þess- um vörum, miðað við það, er við íslend- ingar höfum orðið að reyna. Félagslegu athafnirnar og félagsleg sam- staða í ýmsum efnum, var þarna til um- ræðu og sitt sýndist hverjum. Einkum bar á góma hver vandkvæði eru framundan þar sem auðsætt þykir, að það eru 15 þús- undir manna, sem hinn nýi atvinnuvegur, olíuvinnslan úr Norðursjó, kallar á og krefst. Þótti bændum um Þelamörk sér- staklega vandi á næsta leiti, en þaðan mundi unga fólkið hverfa og naumast eða ekki koma aftur. Mundi þá vera torvelt fyrir einyrkjana, sem eftir sitja, að sinna hlutverkum á sviði félagslegra efna, menn mundu tjóðraðir við bústörfin, rétt eins og gerst hefur í Finnmörk og Troms eftir að Háskólinn í Troms tók þar til starfa fyrir fáum árum og kallaði til sín unga fólkið, til náms og starfs. Og bændur bættu því við, í tjáningum sínum, að unga fólkinu væri þó vorkunn. Heima yrði hlutur þess við búskap varla yfir 10 krónur á klukku- stund fyrir vinnuna. Við venjulegan iðnað hefði það á síðasta ári borið úr býtum 16 —18 króna kaup á klukkustund, en nú býðst tímakaup um „30 krónur á klukku- stund við olíuna11 og talsvert meira þegar um ræðir ákvæðisvinnu þar. Sitthvað fleira væri vel þess vert að greina frá, er þarna var til meðferðar, en hér skal staðar numið, aðeins því við bætt, að einhugur var um, að landið skyldi þó varðveitt og verndað í búskaparlegu tilliti, enda þótt ekki yrði hjá því komist að leggja land af mörkum undir vegi og aukna byggð með auknum fjölda þjóðarþegna. F5EYR 329

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.