Freyr - 01.12.1977, Qupperneq 17
Árásirnar á sjálfstæði Búnaðarfélags ís-
lands; Freyr, 5. árg., 1908, bls. 33—38.
Á Alþingi 1907, var borin fram tillaga,
sem hljóðaði svo: „Félagsstjórnin sendi
stjórnarráðinu árlega reikning félagsins
með fylgiskjölum, enda leggi stjórnarráðið
reikninginn fyrir næsta Alþingi til yfirskoð-
unar og álits“. Guðjón segir um þessa til-
lögu, ,,að í henni felist gjörsamleg eyði-
legging á sjálfstæði Búnaðarfélagsins".
Muni ætlunin vera sú að gera félagið að
skrifstofu í stjórnarráðinu.
Tillagan var felld á Alþingi með jöfnum
atkvæðum. Fer Guðjón hörðum orðum um
hana í greininni. Segir hann meðal annars
um tillögumanninn: „Hr. L.H.B. las því næst
upp nokkrar tölur úr skýrslum og reikning-
um félagsins, er áttu að sanna, hvernig fé
þess væri varið, en sem virðist miklu betur
lagaðar til þess að sýna, hversu létt honum
er um að rangfæra rétt mál“. Guðjón var
oft óvæginn í ritskiptum.
Þessi stutti útdráttur úr fáeinum af grein-
um Guðjóns Guðmundssonar í Frey og
Búnaðarritinu sýnir, að honum var fátt ó-
viðkomandi, er snerti íslenskan landbúnað.
Hann vann heils hugar fyrir bændur, ráð-
lagði þeim og leiðbeindi, tók máli þeirra,
þegar svo bar undir, og var ófeiminn að
láta í Ijós skoðanir sínar, einnig þótt þær
væru I andstöðu við þá, er hátt voru settir
í þjóðfélaginu. Á ýmsum sviðum átti hann
þátt í því að skapa tímamót í málefnum
landbúnaðarins.
Ráðunautar og aðrir leiðbeinendur
bænda mundu hafa gagn af því að lesa
greinar Guðjóns í Frey og Búnaðarritinu.
Þeir mundu þá skilja, að margar athafnir
þeirra í dag eru byggðar á undirstöðum,
er Guðjón lagði. Ég hygg, að fáir eða engir
íslenskir búfræðingar hafi á jafn skömmum
tíma skilið eftir sig jafn djúp spor og heilla-
drjúgt starf fyrir íslenskan landbúnað og
Guðjón Guðmundsson gerði.
Það hefur verið hljótt um Guðjón og
verk hans í íslenskum blöðum og tímarit-
um. Grein þessi er skrifuð til þess að fylla
nokkuð upp í það skarð. Á þessu ári (1977)
eru 75 ár liðin, síðan Guðjón Guðmundsson
réðst til starfa sem ráðunautur hjá Búnað-
arfélagi íslands. Að því leyti er þetta einnig
að vissu leyti afmælisgrein um starf hans
ryrir íslenska bændur.
Guðjón Guðmundsson var aldamótamað-
ur í þess orðs bestu merkingu. Að honum
var mikill mannskaði fyrir íslenskan land-
búnað. Þar fór saman mikil og góð mennt-
un, framúrskarandi áhugi og starfsorka.
Hann þurfti ekki lengi að leita eftir ævi-
starfi. Sveitin og bændur landsins áttu hug
hans allan. Þar haslaði hann sér völl.
Minningin um Guðjón Guðmundsson lifir
í störfum hans.
F R E Y R
Frá hrútasýningu í gamla daga.
853