Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1990, Page 7

Freyr - 01.09.1990, Page 7
Heimsþing bænda Dagana 4. til 8. júní sl. var haldið í Þránd- heimi í Noregi alþjóðlegt búnaðarþing. Þar komu saman yfir 300 fulltrúar bændasamtaka í 60 löndum. Auk þess áttu nokkrar alþjóða- stofnanir og önnur fjölþjóðlega bændasamtök áheyrnarfulltrúa á þinginu svo að alls tóku um 500 manns þátt í þessum fundarhöldum. Það eru Alþjóðasamtök búvöruframleið- enda, (sem á ensku heita International Federation of Agricultural Producers, skamm- stafað IFAP), sem standa að þessum þingum sem haldin eru annað hvort ár og eru jafnframt aðalfundir samtakanna. Samtökin, sem voru stofnuð árið 1946, hafa í vaxandi mæli látið að sér kveða hin síðari ár og fleiri og fleiri þjóðir gerst aðilar að þeim. Nú bættust ýmsar nýjar þjóðir í hópinn. í fyrsta sinn voru nú sendinefndir frá Sovétríkj- unum og frá öðrum Austur- og Mið-Evrópu- löndum, svo og frá Rómönsku Ameríku. Það er þó athyglisvert að þó að bændur séu án efa lang fjölmennasta stétt heimsins (í sumum fjölmennustu ríkjum heims eru bændur allt að 80% þjóðanna), þá hafa heimssamtök bænda alls ekki Iátið að sér kveða á alþjóðlegum vettvangi í samræmi við það. Bændur heimsins ráða einnig yfir því vopni sem þrátt fyrir allt er öllu hervaldi sterkara, matnum. Ef til vill er það einmitt tímanna tákn að bændur heimsins sýna nú vaxandi samstöðu. Nær hvarvetna er við veruleg vandamál að stríða. Ríku þjóðirnar berjast við vandamál tengd offramleiðslu og lágt verð á þeim hluta fram- leiðslunnar sem seldur er úr landi. Fátæku þjóðirnar búa margar enn við sáran skort og jafnvel hungur á stórum svæðum, en það sem ýmsar þeirra, einkum í heitu löndunum, geta framleitt til útflutnings, svo sem kaffi, te og kakó, er selt til iðnríkjanna við smánarverði. Menn hafa nær hvarvetna áhyggjur af vaxandi mengun eða alvarlegri röskun á umhverfi, eyðingu regnskóga, stórfelldri brottskolun jarðvegs eða vatnsskorti sem leiðir m.a. til þess að þurrkaeyðimerkur breiðist út. Allar þjóðir virðast sammála um að bæta þurfi markaðsmál landbúnaðarvara en þar greinir menn á um leiðir og hve langt eigi að ganga í því að losa um höft og draga úr vernd. Engin þjóð er tilbúin að hætta öryggi sínu og sjálfstæði með þvíað gerast íöllu háð innflutn- ingi á matvælum. Þetta allt mótaði umræður á þinginu og af þessum viðfangsefnum var dagskrá þess snið- in. Megin málaflokkarnir voru þessir: 1. Matvæli heimsins og staða landbúnaðar. 2. Verslun með landbúnaðarvörur og GATT viðræðurnar. 3. Samskipti búvöruframleiðenda og neyt- enda. 4. Umhverfismál og landbúnaður. Áberandi var hve öll þessi megin atriði blönduðust saman í umræðum, sama hvaða efni var á dagskrá hverju sinni. Þegar rætt var um horfur í matvælafram- leiðslu var á það bent að aukning í matvæla- framleiðslu hafi í heild ekki haldið í við fólks- fjölgunina. Þó að víða hafi ástandið batnað þá eru heilar álfur, eins og Afríka, þar sem mat- vælaframleiðsla á hvern íbúa hefur haldið áfram að dragast saman allan síðasta áratug. Svipað er hægt að segja um Rómönsku Amer- íku og viss svæði í Asíu. í þessu sambandi var á það bent að ef öll verslun með landbúnaðar- vörur yrði gefin alfrjáls og hömlulaus og jafn- framt öll svæðisbundin verndun landbúnaðar afnumin, (útflutningsbætur, verndartollar, niðurgreiðslur og allir framleiðslustyrkir yrðu óheimilir), eins og þeir sem lengst vilja ganga í GATT- viðræðunum virðast leggja til, mundi það í fyrstu geta leitt til að nær allur landbún- aður legðist af á stórum svæðum þar sem náttúruleg skilyrði eru á einhvern hátt erfiðari. Öllum ætti að vera ljóst hvaða áhrif það hefði á matvælaástandið. Ennfremur væri þá vandséð hverjir tækju að sér að sjá til þess að til væru Frh. ú bls. 629. 17, SEPTEMBER 1990 Freyr 615

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.