Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1990, Side 17

Freyr - 01.09.1990, Side 17
Hulda Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari, Vinnueftirliti ríkisins Sitjandi staða Ínútímaþjóðfélagifer kyrrsetustörfum fjölgandi. Aukin tœknivœðing hefur íför með sér minni hreyfingu og yfirleitt meiri einhæfni í vinnu. Pótt bœndur stundi að jafnaði ekki kyrrsetustörf œtla ég lítillega aðfara yfir helstu atriði sem góður vinnustóll og hvíldarstóll þarfað uppfylla. Það er bakraun að sitja. Við setjumst til að hvíla okkur en við hvílum aðallega fæturna. Við reynum meira á bakið þegar við sitjum en þegar við stöndum eða liggjum. Menn hafa komist að því með því að mæla þrýstinginn inni í liðþófunum í mjóhryggnum að álagið er minnst þegar við liggjum. Þegar við sitjum á stól, verður þrýstingurinn í liðþófunum í mjó- hryggnum u.þ.b. sex sinnum meiri en þegar við liggjum. Álagið verð- ur almest ef við sitjum og lyftum einhverju þungu. Það er alltaf bak- raun að sitja. Þess vegna skulum við standa upp eins oft of við get- um, rétta úr okkur og ganga dálítið um áður en við setjumst aftur. Vinnustóll. Góður vinnustóll þarf að vera þokkalega bólstraður, gefa góðan stuðning við mjóbakssveigjuna og styðja undir u.þ.b. Vi af lærinu. Einnig þarf hann að vera þokka- lega rúmgóður. Hæðin á setunni og stólbakinu þarf að vera stillan- leg. Fremri brúnin á setunni á að vera mjúk og ávöl. Þeim mun leng- ur sem setið er við vinnu í sama stólnum því meiri kröfur gerum við til að stóllinn sé góður. Hvíldarstóll. Hvíldarstóll má ekki vera of lágur og djúpur. Hœðin á setunni á að vera 43 - 47 cm. Pá er auðveldast að standa upp úr stólnum. Stólbakið á að geta hallast svolít- ið aftur. Stólbakið á að bunga svolítið fram neðantil svo að það styðji vel við mjóbakið. Armarnir eiga að vera nógu breiðir og háir til að þeir styðji vel við framhandleggina svo að axlirn- ar verði slakar. Fyrir þá sem stunda erfiðisvinnu er mikilvægt að hvflast vel þegar færi gefst. Hvíldin verður best ef hægt er að koma sér vel fyrir og að líkaminn sé í sem bestri stöðu. Þetta á við hvort heldur við erum að tala um hvíldarstól eða nætur- svefn í rúminu. Líkamsrækt. Ef vinnan reynir einhliða á lík- amann, t.d. við langvarandi kyrr- stöðu eða sitjandi stöðu, er mikil- vægt að stunda líkamsrækt. Reglu- leg líkamsrækt, svo sem göngutúr- ar, skokk eða sund, eykur úthald og þrek sem skilar sér í betri líðan. 17. SEPTEMBER 1990 Freyr 625

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.