Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1990, Side 9

Freyr - 01.09.1990, Side 9
Það skiptir mestu að mannlífið sé gott Viðtal við Arnlínu Óladótturog Magnús Rafnsson á Bakka í Bjarnarfirði. Arnlín og Magnús á Bakka í Bjarnarfirði á Ströndum eru að sunnan og stunduðu bœði nám við Háskóla íslands, en réðu sig til kennslu við Klúkuskóla ísömu sveit árið 1976 og hafa ílengst í sveitinni og stunda nú búskap á Bakka ásamt fleiri störfum. Á síðast liðnusumri var fréttamaður Freys þar á ferð og fór þess á leit við þau að segja frá ferli sínum og búskap. Hvaðan eruð þið ættuð? Magnús: Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík og gekk þar í skóla fram yfir tvítugt. Föðurætt mín er vestfirsk, karlleggurinn úr Djúpi en kvenleggurinn úr Dýrafirði. Móðurætt mín er hins vegar úr Flóanum. Arnlín: Ég er hins vegar ekki Reykvíkingur þótt foreldrar mínir séu það því að ég er alin upp í Skíðaskálanum í Fiveradölum. í föðurætt rek ég mitt fólk á Snæ- fellsnes og á Suðurnes en móður- fólkið mitt er úr Reykjavík, en ættað úr Eyjafirði og af Suðurnesj- um. Skólaganga? Magnús: Ég lauk B.A. prófi í ensku og bókmenntum frá Háskóla íslands. Arnlín: Ég stundaði nám í lækn- isfræði í Háskólanum í nokkur ár. Hvað réð því að þið fiuttuð út á land? Kannski mætti kalla það tilbreyt- ingarsýki. Okkur langaði að vita hvernig væri að búa í sveit og þá lá beint við eftir alla setuna á skóla- bekk að prófa að komast hinum megin við kennarapúltið. Við réð- um okkur svo við Klúkuskóla haustið 1976 og kenndum þar til vors 1978. í>á fengum við lánað íbúðarhúsið á Bakka í eitt ár, sem svo leiddi til þess að við keyptum jörðina í félagi við önnur hjón, 17, SEPTEMBER 1990 Guðrúnu Bachmann og Leif Hauksson, sem bjuggu hér með okkur til 1984. Hvað höfðuð þið fyrir stafni eftir að þið hættuð kennslunni? Við byrjuðum fljótt að grípa í ýmiss konar lausamennsku, Magnús við þýðingar og Arnlín í stundakennslu svo að maður nefni eitthvað. Svo eignuðumst við tvö börn um þetta leyti og vildum eiga mikinn tíma með þeim. En strax og við höfðum keypt jörðina ákváð- um við að fara út í garðyrkjubú- skap og höfum stundað hann með öðrum störfum síðan. Hvað ræktið þið? Þetta er útimatjurtaræktun, nokk- uð fjölbreytt, en við höfum hér lítið gróðurhús við volgrur á jörð- inni en við notum það nánast ein- göngu til uppeldis á plöntum. Hvernig gengur að koma afurðunum á markað? Markaðsmálin hafa alltaf verið veiki hlekkurinn hjá okkur. Við teljum okkur hafa gott vald á rækt- Freyr 617

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.