Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 33

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 33
Tœkniframfarir við búskap á íslandi frá miðri 18. öld til miðrar 20. aldar Frumstæður sjálfsþurftarbúskapur Um miðja 18. öldina var svo komið búskap á íslandi að hann var enn án alls sem nefna má tækni. Engin tæki eða vélar voru til sem létt gátu mönnum erfíði eða aukið afköstin. Einustu áhöldin, sem beitt var, voru tiltölulega fábreytt og ffumstæð handverkfæri; amboð- in orf og ljár til sláttar og hrífur til að snúa og raka saman heyinu. Vetrarfóðurs búfjárins var annars vegar aflað á smáum, þýfðum tún- um og hins vegar á útengjum sem gáfu víðast hvar meirihluta þess. Sauðfé og hrossum var framfleytt af beit vetur sem sumar og vetrar- fóður sparað svo sem frekast var kostur. Enginjarðvinnslatíðkaðist. Tún- in voru eina ræktaða landið og ræktun þeirra var í því fólgin að bera á þann búfjáráburð, sem féll til, en hluta hans neyddust menn til að nota til eldsneytis. Búskapurinn var einhliða búfjár- rækt, garðrækt eða matjurtarækt var engin. Sauðféð var þá orðið mikil- vægara en nautgripir - það féll bet- ur að þeim landsnytjum sem menn lifðu af - gaf ekki aðeins kjöt og mjólk, heldur og ull og skinn til klæðagerðar. Hrossin, sem voru hlutfallslega mörg, voru í senn einu ferða- og flutningstækin, en allt var flutt í klyfjum. Engir vagnar, sleðar eða önnur dráttartæki fyrir hesta þekkt- ust. Jafnvel hjólbörur voru nær óþekktar. Þeir sleðar sem notaðir voru voru dregnir af mönnum en ekki hestum. A þeim rúmlega átta öldum, sem þá voru liðnar frá landnámi íslands, hafði búskap landsmanna hrakað tæknilega séð. Landnámsmennim- ir höfðu flutt með sér allnokkra kunnáttu til ræktunar. Komrækt var stunduð á Islandi í nokkmm Heybandslest, mynd frá Jyrstu áratugum aldarinnar. Við upphaf þess tíma, sem Jjallað er um i greininni, voru engin tæki til notuð til flutninga á landi. Allt var „borið“ á baki hesta eða manna. FREYR 9/99 - 33

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.