Elektron - 01.03.1917, Side 7
ELEKTRON
21
lengd og sveiflutími eru því hlutfalls-
leg hvort gagnvart öðru, svo að því
meiri sveiflutími því meiri öldulengd;
því minni sveiflutími, því minni
öldulengd.
56. Það, að hægt er að stilla stöðv-
ar fyrir ákveðna öldulengd hefir haft
afar mikla þýðingu í framþróun þráð-
lausu firðritunarinnar og verður að
teljast með merkari uppfundningum
í henni. Það er fyrsta sporið í átt-
ina til þess að geta haldið þráðlaus-
um skeytum leynilegum fyrir öðrum
stöðvum. Þegar tvær stöðvar stilla á
ákveðna öldulengd, geta ekki aðrar
stöðvar en þær, sem stilla á sömu
öldulengdina heyrt til þeirra. Þetta
reynist þó ekki svo í reyndinni, því
að með algengustu þráðlausu firðrit-
unarkerfunum er hægt að heyra milli
stöðva, þó muni 100 metrum eða
meiru á öldulengdinni.
SamstiIIingin er þó nákvæmari í
kerfi Poulsen’s*), þar sem hægt er
að stilla með 25 metra nákvæmni,
og í kerfi DeForest’s, þar sem hægt
er að stilla með 13 metra nákvæmni.
57. Ég sagði hér rétt á undan, að
öldulengdin fengist með því að marg-
falda saman sveiflutimabilið og út-
breiðsluhraðann (300.000.000 metrar
á sek.). Sveiflutímanum (og þar með
öldulengdinni) má breyta með þvi að
breyta rými og íleiðslu sveifluhring-
rásarinnar.
C. SAMSETNING ÁHALDANNA.
I. Sendiáhöldin.
58. Sendiáhöldin verður að útbúa
þannig, að þau geisli vel út frá sér
öldunum. Vegna endurhljómsins verða
þau að geta framleitt margar öflugar
sveiflur, hverja á fætur annari, til
þess að mynda langa lest af öflugum
öldum. Sveiflurnar þurfa því að vera
lítið hamlaðar, eða óhamlaðar.
59. Til þess að senditakin geisli
vel út frá sér sveiflunum, þurfa þau
að vera í sambandi við opna hring-
.rás — sjálf eru þau í lokaðri. Teng-
ing áhaldanna við opnu hringrásina
getur verið með ýmsu móti. Höfund-
ur þráðlausu firðritunarinnar, Gugli-
elmo Marconi, tengdi á fyrstu stöðv-
um sínum áhöldin beint inn í opnu
hringrásina (fálmarana). — Þetta er
sýnt í 1. mynd greinar þessarar, í
októberblaðinu 1915. — Þessi aðferð
hefir ýmsa ókosti, t. d. þann, að
neistabraut í opnu hringrásinni eyk-
ur mjög hömlun sveiflanna, enda er
hún nú lögð niður, nema í varasendi-
tækjum skipa; þar er hún leyfð. 19.
og 20. mynd sýna nýtízku tengingar,
sem eru mikil endurbót á sviði þráð-
lausrar firðritunar. En þeim fylgir
þó einn galli, og hann er sá, að sök-
um endurverkana milli sveifluhring-
rásanna eru öldurnar með þessu fyr-
irkomulagi, — ef svo mætti að orði
kveða — tvöfaldar, og er önnur held-
ur styttri, en hin heldur lengri en
eiginsveiflur beggja hringrásanna.
Þessi mismunur er þó eigi ávalt jafn
mikill og er það komið undir teng-
ingunni, hve mikill hann er — því
lausari sem tengingin er, því minna
ber á þessu. Marconifélagið hefir þó
leyst þessa þraut algerlega við stóru
stöðvar sínar og að miklu leyti við
smástöðvar, með hverfineistabraut-
inni, og Telefunkenfélagið hefir leyst
hana alveg með kælineistabraut sinni.
60. í 19. og 20. mynd er F fálmar-
arnir, C þéttari og N neistabrautin.
Þræðirnir sem sjást liggja frá henni,
tengja hana við spennubreytirinn.
L eiginleiðslukeflin sem tengja sam-
an hringrásirnar. A. 20. mynd er
ekki nema eitt kefli og er íleiðsla
þess aukin eða minkuð með svo-
nefndum rennara, sem snertir þráð-
inn, sem keflið er undið með. Mynd-
*) Sbr. Elektron I, 38.