Elektron - 01.03.1917, Qupperneq 17
ELEKTRON
27
símastöðvum. Samlöl þessi skal af-
greiða á undan venjulegum hraðsam-
tölum og er gjaldið fyrir þau tífalt
venjulegt talsímagjald.
Personalia.
forsteinn Gríslason símritari á
Seyðisfirði er skipaður aðstoðarstöðv-
arstjóri þar. í hans stað er símamey
Elísabet Benediktsdóttir skipuð sím-
ritari og þær Valdís Tryggvadóttir og
Anna Guttormsdóttir settar talsima-
meyjar við sömu stöð.
Tóma8 Stefánsson er frá 1. þ. m.
skipaður aðstoðarmaður á skrifstofu
stöðvarstjórans i Reykjavík. í hans
stað við skeytaafhendinguna kemur
Snorra Benediktsdóttir símamær og í
hennar stað Ásta Sighvatsdóttir tal-
símamær af miðstöðinni. Ennfremur
er Sigriður Hafstein talsímamær skip-
uð símritari við landssímastöðina hér
og í stað hennar er skipuð talsíma-
mær við landssímastöðina Sotíia Guð-
laugsdóttir, áður á bæjarsimamið-
stöðinni.
Á bæjarsímamið8töðina í Reykja
vík hafa verið teknar 4 nýjar tal-
símameyjar; þessar: Guðný Sigmunds-
dóttir, Guðrún Lárusdóttir, Ástríður
Guðnadóttir og Jakobína Arinbjarn-
ardóttir.
A Akureyri var Lára Schiöth selt
talsimamær í vetur, en láðst hefir að
geta þess hér í blaðinu.
Tíu boðorð símr'tarans,
Á einum af göngunum á aðalstöð-
inni (í Buenos Aires) hangir skjal
með yfirskrift þessarar greinar, og
sýnir það hin sönnu kjör þessarar
stéttar. Boðorðin hljóða svo:
Til þess að vera símritari er nauð-
synlegt að vera:
1. Mjög sparsamur;
2. Öþreytandi starfsmaður;
3. Mentaður;
4. Óskeikull í verkum sínum;
5. Ráðvendnin sjálf. — Þótt ekki
sýnist svo, þá fara þó miklir fjár-
sjóðir gegnum hendur hans;
6. Þagmælskur eins og gröfin;
7. Hafa hófsaman maga og ganga
ekki i fötum eftir nýjustu tízku,
heldur þriggja ára gömlum;
8. Reisa ekki bú — eða ef ekki
verður hjá því komisí, hrúga
ekki niður krökkum, sem heimta
meira brauð;
9. Vera ekki sólginn í leikhúsið eða
skemtanir aðrar en lúðrablástur
á opinberum stöðum.
10. Sá sem vill verða símrilari, og
hefir alla þessa kosti til að bera,
þarf ekki annað en að leggja
stund á símritun í eitt eða tvö
ár og getur hann þá fengið at-
vinnu við járnbraut, þar sem
hann fær gifurleg laun — segj-
um 50 pesos — og ókeypis and-
rúmsloft 200 kilómetra frá heim-
illi sínu.
Eftir Revista Telegráíica.
Hitt og þetta.
Froskleggur móttökuáliald í þráð-
lausri flrðritun. — »The Electrical
Experimenter« skýrir frá tilraunum,
sem hafa verið gerðar með frosklegg
sem móttökuáhald í þráðlausri firð-
ritun. Mjaðmartaug lærsins var fest
við »mikrófón«-hringrás og var hinn
endi leggsins festur við sérstaklega
lagaðan penna, sem skrifaði á sívaln-
ing, er var látinn snúast í sífellu.
Þegar þráðlausu merkin »komu inn«,