Mjölnir - 24.05.1950, Side 2
MJÖLNIR
— VIKUBtlÐ —
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SíGLUFJAKÐAK
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigui'ðsson
Blaðið kemur út alla miðvikudaga
Askriftargjald kr. 20,00 árg. •— Afgreiðsla Suðurgötu 10.
Símar 194 og 210
Siglufjarðarprentsmiðja h/f.
Form. F.U.S. svívirðfr siglfirzkan verkalýð
★ I blaðinu „Siglfirðingi, sem
kom út 11. maí s. I. er greirn
eftir Óla Blöndal, formann
F.U.S. hér í bæ. Grein jtessi á
að vera afmælisgrein, en verð
ur í liöndum höfundarins að
slitróttu raupi og aurkasti til
andstæðinga þessa félags. —
Og Jtað út af fyrir sig hefði
mátt láta óátalið, Jtví hver
heiðrar minningu síns félags
á merkmn tímamótum, svo
sem hugur og hjartalag stend
ur til.
★ En það er eitt atriði í þessari
afmælisgrein, sem enginn
heiðarlegur verkalýðssinni
lætur ,ómótmælt, og skal það
því gert liér að umtalsefni,
þó í stuttu máli verði.
★ Óli Blöndal ræðir í upphafi||
greinar sinnar um árin kringy
um 1930 og telur að þá hafiil
borizt hingað til lands „ýms-j
ar öfgastefnur,“ sem óskyíd-jl
ar væru íslenzkum hugsunar-|i
hætti og ven jmn. Hann talar |
um austanvind, sem andað |
hafi hér köldu um þær mund-sfj
ir, og að „íiverskyns dindil-i|
menni“ hafi risið hér upp ogj|
barið sér á brjóst og boðað||
hið „austræna fagnaðarer-1
indi“ en aðalinntak þess hafi l
verið „lítil vinna, miklir pen-jjj
ingar.“ Og síðan segir hannlí
orðrétt: „Trúgjarn almenn-j
ingur lagði við Iilustirnar, —'
LETINGJAR OG ÖNNLK/
SNÝKJUDÝK l»JÖDFÉ--i
LAGSINS hlupu allshugar- *'
fegnir inn í raðir kommúnista
og sleiktu út um.“ (let.br. míín
★ 'Nú liljóta menn að spyrja:
Hvaða menn eru það, sem
Ól. Bl. kallar „letingja og
snýkjudýr þjóðfélagsins“ ? —
Hvaða stétt manna var það,
sem á árunum fyrir 1930 lifði
við atvinnuleysi og skort, og
þurfti að ber jast við liarðvít-
ugt atvinnurekendavald fyrir
liverri einustu kjarabót, sem
hún hlaut? Og livað er það,
sem Ól. Bl. kallar „öfgastefn
ur,“ „austanvind" og ,,aust-
rænt fagnaðarerindi“ ?
★ Öfgastefnan og austanvind-
urinn, sem hann talar um er
hugsjón jafnaðarstefnunnar,
sem farin var að ná talsverð-
um álirifiun hér á landi þá,
var leiðarljós verkafólksins í
baráttu þess við ósvífna og
liarðdræga atvinnurekendur.
★ Letingjarnir og snýkjudýrin
sem hann talar um, er hið
siglfirzka verkafólk, sem var
þá að skapa sér smátt og
smátt heilsteypt samtök og
hafði vitanlega jafnaðarstefn.
og baráttukenningar hennar
gð leiðarljósi. Og vitanl. var
það þetta fólk, sem hópaðist
utan um hina nýju stefnu og
setti traust sitt á hana, að
hún mætti verða því vegur til
betra og frjálsara lífs, vegur,
sem það sjálft leggði með
samtakamætti sínum og ein-
ingu.
★ Það vissu flestir Siglfirðing-
ar, að F.U.S. væri ómerkilegt
félag, en engum datt þó í húg
að eftir tuttugu ára skrykkj-
ótt líf, yrði upphafið á lífs-
registri þess svívirðingar um
þann verkalýð, sem fyrir
tuttugu árum bjó hér í þess-
um hæ við léleg kjör, — og
raunar er þetta svívirðing
um allt það verkafólk, sem
fyrr og síðar hefur aðhyllst
jafnaðarstefnuna.
•k Við athugun kemur þó í Ijós,
að uppliaf greinar ÓI. Bl. er
hliðstætt við félagið sjálft. —
Það var upphaflega stofnað
til að berjast á móti jafnaðar
stefmmni, til að verða tæki í
höndum atvinnurekenda gegn
þeirri víðleitni verkafólksins
að skapa sér þau lífsk jör, sem
það taldi sér samboðið og
fært að lifa Við. Sem betur
fór tókst því aldrei að eyði-
leggja samtök verkalýðsins,
þó því Iiinsvegar skuli trúað,
að það liafi átt sinn þátt í
ldofningi og deilum innan
verkalýðssamtakanha. Og
eitt er þó víst, að um þær
mundir, sem félag þetta varð
tuttugu ára eru verkalýðssam
tökin hér samstilltari og meiri
einhugur ríkjandi innan
þeirra en nokkru sinni fyrr,
— svo árangurinn af tuttugu
ára baráttu FUS gegn verka-
lýðshreyfingunni hefur farið
í öfuga átt við upphaflegan
tilgang. Og sú eining, sem nú
hefur skapast og er sterkari
en nokkru sinni áður, hefur
fyrst og fremst skapast gegn
þeim ráðstöf unum, sem íhalds
stjómin og íhaldið barði í
gegn á Alþingi. Rás atburð-
anna virðist vera nokkuð föst
þrátt fyrir allt. Og mjög lík-
legt tel ég, að grein Óla Blönd
als verði fremur til að þjappa
Verkafólki saman en til að
sundra því. — Slík ummæli
um vissa stétt fólks og þau
er hér að framan hafa verið
rædd, verða geymd en ekki
gleymd, það má formaður
F.U.S. vera viss mn og þeir
aðrir félagar hans, sem eins
hugsa.
★ Högg sem þessi, greidd verka
lýðnum, verða lengi munuð og
óvíst livort sá, sem sló, ber
ekki rjóðari vanga á eftir en
liinir, sem fyrir höggi urðu.
★ Handavinnusýning barnaskól
ans var sunnudaginn 14. maí s.l.
Handavinna stúlknanna var að
venju fjölbreytt og margt fall-
ega gérðra muna að sjá. —
Handavinna drengja, sem aðal-
lega var ýmsir smíðisgripir virt
ist elkki eins fjölbreytt og oft
áður, 'heldur var talsvert smíð-
að í sama stíl, bæði leikföng og
margir gagnlegir munir til notk
unar á heimilum. Handbragðið
virtist yfirleitt gott og bera
iþess vott að vandvirkur kennari
stjórnaði Iþar.
Þau sýnishom af teikningum
nemenda ,sem þarna vom hengd
upp báru þess vott að hugmynda
flug þeirra sjál'fa hafði ráðið
um igerð myndanna. Þar var
ekki um stælingu ljósmynda að
ræða eða litaðra póstkorta, held
ur áhugamál og hugmyndir
barnanna, t. d. skíðamenn fi ýms
um stellingum í göngu, svigi og
stökki, o. fl. o. fl. — Eig hafði
ánægju af að skoða þessa sýn-
ingu, og svo held ég að hafi
verið um fleiri.
★ Nýtt félag stofnað. — Laug-
ardaginn 20. mai s. I. var hald-
inn stofnfundur félags, sem
nefnist Fegrunar- og menningar
félag Siglufjarðar. Það héfur
áður verið á það minnst hér, að
kvenfél. Von sendi öllum félög-
um hér í þænum bréf, þar sem
óskað var eftir þátttöku í stofn
un sambands memiingarfélaga
d bænum, sem hefði það höfuð-
verkefni að vinna að fegrun
bæjarins og halda á lofti minn-
ingu þeirra manna, ;sem höfðu
rutt brautina 1 menningarmál-
um bæjarins. Rösklega 20 félög
tjáðu sig Ifús tii þessa samstarfs
og tilnefndu fulltrúa fyrir sína
hönd til að mæta á undirbún-
ings- og stofnfundi þessa sam-
bands. Undirbúningsnefnd, sem
kosin var af hinum tilnefndu
fulltrúum, varð ásátt um að
hafa form þessa félags eða sam
bands þannig, að í það igætu
einnig gengið einstaklingar. —
Nefndin gerði einnig frumvarp
að lögum fyrir Ifélagið.
Félagið var stofnað eins og
fyrr segir, s.l. laugardag, á af-
mælisdegi Siglufjarðar 20. maí.
Stofnendur voru um tuttugu, að
allega fulltrúar ýmissa félaga.
I fundarlok var samlþykkt að
láta lista liglgja frammi i nokkr-
íim búðum og gætú þeir, sem
óskuðu að ganga í félagið skrif-
að sig á þá lista og skyldu þeir
sem rita sig inn í félagið, til
næsta fundar og á honum, tald-
ir sto'fnendur þess.
Kosin var stjórn ,varastjóm
og endurskoðendur og skipar
eftirtalið fólk þær trúnaðarstöð
ur: Form. frú Sigurbjörg'Hólm.
Aðrir í stjóm em: frú Eirdlksína
Ásgrímsdóttur, Jóhann Þorvailds
son, Gunnar Jóhannsson og Sig
urður Gunnlaugsson. í vara-
stjórn voru kosnir: Jón Skafta-
son, Haukur Jónasson, Magnús
Vagnsson, Jóhann G. Möller og
Jóhann Mailmquist.
Endurskoðendur vom kosnir:
Einar M. Albertsson og Bjarni
Þorsteinsson og til vara Jón
Þorsteinsson og frk. Jóhanna
Jóhannsdóttir.
Fundurinn samþykkti að fela
stjórninni að gera drög að starfs
reglum fyrir félagið.
★ Fegrun og menning. — Sjálf-
sagt er að fagna stolfnun þessa
félags og óska því fararheilla,
starfsamra og áarngursríkx*a
daga.
Hér í bæ em næg verkefni
fyrir þetta félag, sem hefur sett
sér það markmið að vinna að
fegrun bæjarins og aukinni
menningu íbúa hans. Þetta virð-
ist í fljótu bragði vera tvíþætt
markmið, en svo er þó ekki. —
Menning og fegrun haldast í
hendur og leiðir hvort af öðru.
Eg tel því að takizt féilaginu að
ná árangri annaöhvort í fegrun
bæjarins eða aukinni menningu
íbúanna, þá sé hinu lyft upp um
leið.
I þessum dálkum hefur marg
sinnis verið rætt um þörf á því,
að útlit bæjarins yrði gert hrein
leigra, og bent á að fyrst og
fremst beri forráðamönnum bæj
arins að hafa forgöngu í þv;í
efni. — Vonandi Ikemst nú skrið
ur á þessi mál við stofnun þessa
félags og vonandi leggjast bæj-
arbúar allir á eitt því til aðstoð-
ar og uppörfxmar.
★ Fimmtugsafmæli. — Þiann
21. þ. m. átti Vernharð Karls-
son, verkamaður, Laugarveg 5,
fimmtugsafmæli. Vernharð er
þekktur sem duglegur og nýtur
verkamaður. Mjölnir sendir hon
um heiliaóskir í tilefni þessa
merkisafmælis.
★ Silfurbrúðkaup. — 1 gær,
þriðjudaginn 23. maí, áttu hjón-
in Anna Konráðsdóttir og Vern-
harð Karlsson, Laugarveg 5 hér
í bæ silfurlbrúðkaup. Mjölnir
færir þeim haimingjuóskir fyrir
hönd f jölmargra vina og kunn-
ingja í hópi sósíallista, og óskar
þeim langrar sambúðar enn og
Ifarsælla daga.
★ Jarðarför Jóns Jónssonar,
Hvanneyrarbraut 19, fór fram
frá Siglufjarðarkirkju 17. meí.
Þá var jafnframt jarðaður lít11
dreíigurinn, Jóhann Ólafur
Gunnþór, sonur hjónanna Jón-
ínu Jóhannsdóttur og Sigurþórs
Þorgilssonar, Hafnargötu 2Ó.
★ Jarðarför Páls Schram, verka
manns Háveg 12, sem lézt lí
Sjúkrahúsi Siglufjarðar i s. 1.
vifcu eftir stutta legu þar, fór
fram í gær frá Siglufjarðar-
kirkju.
★ Aðalfundur Knattspyrnufél.
Sigluf jarðar var haldinn sunnu
daginn 14. þ. m. Stjórnina skipa
nú: Form. Vigfús Guðbrandsson
Aðrir í stjórninni eru: Eirikur
Eiríksson, Sigurður Þorkelsson,
Jóhanna Skaiítadóttir og Garðar
Arason.
Sósíaitar!
Félagar í Sósíalistafélaginu
eru áminntir um að greiða áfall-
in flokksgjöld á skrifstofu
félagsins sem allra fyrst.
Flokksskrifstofan
m
ÞAKKARÁVARP
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hluttekningu við jarðarför litla drengsins okkar
Jóhanns Ólafs Gunnþórs
JÓNÍNA JÓHANNSDÓTTIR
SIGURÞÓR ÞORGILSSON
SEcrár
yfir tekjuskatt og eignaskatt, tekjuskattsviðauka og stríðs-
gróðaskatt; skrá yfir gjöld til Almannatryggingá; skrá yfir gjöld
atvinnurekenda fyrir tryggingarskyld störf og skrá yfir gjöld til
námsbókasjóðs, liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofu
bæjarfógeta, frá og með 17. þ. m. til 31. þ. m. — Kærur yfir álögð-
mn skatti eða öðriun gjöldum séu sendar formanni skattanefndar,
bæjarstjóranum í Siglufirði, ekki síðar en þann 31. þ.m. kl. 6 e.h.
Siglúfirði, 16. maí 1950
SKATTANEFND.
ibúð óskast
Öska eftir einu herbergi og eldhúsi nú þegar eða sem
allra fyrst.
AFGR. BLAÐSINS VlSAR Á.
frá Síldarverksmiðjum ríkisins
Allir þeir verkamenn, sem óska að starfa hjá oss á næstu
síldarvertíð, þurfa að hafa sótt skriflega um viunu fyrir 25. þ. m.
1 Sigiufirði, 16. maí 1950.
SÍLDÁRVEKKSMIÐJUR RÍKISINS