Mjölnir - 12.07.1950, Síða 2
( I ’
MJÖLNIR
— VIKUBLAÐ —
Útgfífandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SíGLUFJARÐAR
Ritstjóii og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson
Blaðið kemur út alla miðvikudaga
Askriítargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10.
Simar 194 og 210
Siglufjarðarprentsmiðja h/f.
LÆRUM AF REYNSLUNNI
Vinnudeila Þróttar við iSÍR, va,r margra hluta vegna mjög
athyglisverð. Reynsla verkamanna í þessari deilu, getur verið
mjög gagnleg síðar, ef hún er notfærð á réttan hátt.
Aðalkrafa venkamanna 1 deilunni var, að næturvinnukaup
yrði greitt yfir sumarið fyrir næturvinnu, en undanfarin ár hef-
ur næturvinnukaup aðeins verið greitt fyrir næturv. yfir veturinn.
.Víðast hvar á landinu er næturvinnukaup greitt allt árið, en
hinsvegar fá siglfirzkir verkamenn eftirvinnukaup greitt með
60% álagi á dagvinnu í stað þess að annarstaðár er eftirvinnu-
kaupið 50% álagi á dagvinnu.
Er iþað nú svo, að þessi íkrafa siglfirzkra verkamanna um
næturvinnukaup fyrir næturvinnu, sé svo fjarri allri sanngimi,
að það hefði réttlætt að stöðva ríkisverksmiðjurnar, frekar en
gænga að henni? En það ætlaði meirihluti stjórnar rikisverk-
smiðjanna að gera. Hver sanngjam og óhlutdrægur maður hlýtur
að viðurkenna, að þessi krafa verikamanna er ekki ósvífin frekja,
heldur hreint og beint ofur eðlileg og sjálfsögð. Enda mun þessi
krafa verkamanna verða viðurkennd fyrr eða síðar, allt eftir
því hve vel verkamenn fylgja málinu fram.
Þáttur Aiþýðusambandsstjórnarinnar í deilunni er saga út
af fyrir sig. Meðan á samningamnleitunum stendur heldur sam-
bandsstjórn fund um deiluna. Engin samráð em höfð við for-
ustu Þróttar, en gerð samþykkt rnn, að leggja til að samningar
verði framlengdir. Áður en Þróttur heyrir noikkuð um málið
frá sambandsstjóm, segir framkvæmdarstjóri ríkisverksmiðjanna
formanni Þróttar frá samþykktum stjórnar ALþýðusambandsins.
Ekki væri að furða þó menn spyrðu: Hvernig stendur á að Sveini
Benediktssyni eru tilkynntar samþykktir Alþýðusambandsstjórn-
ar um vinnudeilu á Siglufirði, áður en Gunnari Jóhannssyni er
nokkuð af þeim sagt? Eða var Sveinn Benediktsson með í ráðum
hjá sambandsstjórn?
Þetta er stórvægilegt mál í vinnudeilunni og kastar skýrara
'ljósi á afstöðu og gerðir sambandsstjórnar ,en flest annað. Sam-
þykktin sjálf, — tilmæli til Þróttar um að framlengja samninga,
— gerir Þrótti mjög mikið erfiðara fyrir, en styrkir afstöðu
atvinnurekenda. Það er svo augijóst mál að varla verður um
deilt.
Ætti að lýsa þessari deilu með örfáum orðum, myn'di það
verða á þessa leið: Verkamenn á Siglufirði fóru fram á mjög
hóflega og sanngjama lagfæringu á taxta sínum, þar sem aðal-
kratfan var að þeim yrði greitt næturvinnukaup eftir sömu reglum
og tíðkast víðast hvar á landinu. Alþýðusambandsstjórn studdi
Þrótt ekki í deilunni, eins og henni bar skylda til, heldur gékk
í lið með atvinnurekendum. Meirihluti stjómar SR sýndi óbil-
gimi í deilunni, neitaði hinni sanngjörnu kröfu og ætlaði, eftir að
hafa tryggt sér stuðning stjórnar A.S.I., að hleypa deilunni
í verkfall og stöðva ríkisverksmiðjumar, kannske fram á sumar.
iVerkamenn féllu þá frá aðalkröfunni og sömdu um nokkrar
smávægilegar umbœtur á taxta sínum.
Meðan á deilunni stóð, flutti Þóroddur Guðmundsson tillögu
í veriksmiðjustjórn, um að gengið yrði að næturvinnuikröfunni.
Sú tillaga var felld með 3 atkv. gegn einu, en Finnur Jónsson
greiddi ekki atkvæði. Sjálfsagt hafa margir verkamenn hér 1 bæ
búizt við að fulltrúi Alþýðuflokksins myndi í slíku máli hafa
allt önnur sjónarmið en íhaldið, myndi hafa sýipað eða sama
sjónarmið og verkamenn/ en Finnur gat ekki samþykkt að verka-
menn fengju næturvinnukaup fyrir næturvinnu. Fyrir þessa af-
stöðu vex Fínnur og flokkur hans á áliti hjá 'íhaldi og afturhaldi,
en hvort álitið og tiltrúin vexl hjá verkamönnum á reynslan eftir
að sýna.
Jón Hjálmarsson, erindreki A.S.Í. mætti á einum Þróttar-
fundi meðan á deilunni stóð. Þó Jón þessi sé frámimalega klaufa-
tegur og lélegur ræðumaður, var samt glöggt hvað hann vildi.
Má um hann segja í starfinu, að hann sé réttur maður á réttum
stað, að vera erindreki tmdir stjórn Helga Hannessonar.
Hin nýafstaðna deila Þróttar endaði með smávægilegum
kjarabótum. En dýrtíðin véx og kjör alþýðunnar versna. Að þvá
er marikvisst stefnt, að láta hina r'íku halda áfram að græða, en
kreppa og markaðsvandræði lenda á alþýðunni einni. Verði haldið
áfram á sömu braut, endar það með meiri fátækt og eymd
alþýðrmni til handa en dæmi eru til síðasta mannsaldur. Þessu
er 'þó öllu hægt að snúa við, aðeins ef alþýðan sjálf áttar sig
í Wma á hve sterk hún er og hvaða ráðum þarf að beita. Það
rposturmn
★ Sjötugsafmæli. — Björg Þor
bergsdóttir, Snorrabraut 3, átti
sjötugsafmœli hinn 1. júlí s. 1.
★ 'Slysfarir. — Miðvikudaginn
5. júl'i s. I. lézt í Landspítalan-
um Steingnímur Benediktsson,
fyrrum starfsmaður hjá Kaup-
félagi Siglfirðinga. Var hann
fluttur til Reykjavíkur fyrir
nokkru. Hann varð fyrir ibif-
reið og slasaðist mikið og lézt
skömmu síðar. Steingr. heitinn
var í iblóma lífsins er hann lézt
á svo sviplegan hátt.
Axel Sveinsson, verkamaður
hér í bæ lézt s.'1. laugardags-
kvöld. Var hann einn á heimili
sínu og er talið lílklagt að hann
muni hafa hrasað í stiga, því
þannig var hann er að var kom
ið og var látinn. Axel heitinn
var á bezta aldri.
★ Sundlaugiii'. — Á öðrum
stað í blaðinu er sagt frá vigslu
sundlaugarinnar sem fram fór
s. 1. sunnudag. Það gleður auð-
vitað alla að laugin skuli vera
tekin til starfa, en hitt er einn-
ig hryggðarefni, að ekki skuli
hægt að ljúka við hana tii
fulls. En eins og nú standa
salkir er þess enginn kostur,
og óvlst um hvenær það verður
hægt, en vonandi verður það
á næstu árum.
Það er auðvitað allra von,
sem menningu Siglufjarðar
unna, að rekstur sundlaugar-
innar igangi vel og verði til
sóma. En til þess að svo megi
verða, þarf að takast gott og
skilningsríkt samstarf með
starfsfólki sundlaugarinnar og
sundgestum. Eins og er, er
starfsfólkið það fæsta, sem
hægt er að komast af með og
má þó búast við að reynslan
skeri fljótlega úr um að það
sé 'ekki nóg.
Það véltur iþyí mikið á sund-
gestum, hvort Iþessi starfsfólks
fjöldi dugar eða hvort bæta
þarf við. Það gefur að skilja,
að eitt þýðingarmesta atriðið
I því er umgengni gestanna. —-
Góð umgengni, hjálpsemi við
starfsfólkið og hlýðni við allar
settar reglur hlýtur að létta
starfsfólkinu störfin og auka
þann menníngarbrag, sepa
þarna á ávalt að r'ikja.
★ Hvanneyrarbrautin.— Þegar
farið er út að sundlaug, 'liggur
leiðin um Hvanneyrarbrautina.
1 skemmstu máli má segja, að
ekki sé vanzalaust fyrir bæjar-
stjórn og ibæjarbúa yfirleitt,
hvernig hún lítur út og er yfir-
ferðar. Það hefur að vísu fyrir
nokkrum dögum verið sléttað
örlítið úr stærstu hæðunum og
borinn salli yfir á litlu svæði.
En þetta verkar aðeins til þess
að draga athyglina að hinum
ömurlegri blettum þessarar
hálflögðu götu.
Eflaust verður mikill straum
ur fólks þarna út eftir i sumar
óg þá ékki sízt aðkomufólk,
fierðafólk, sem fer til að sikoða
mannvirkið og fá sér bað. —
Og ekkert er líklegra en það
haldi svolátið úteftir til að
skoða sig um. Fyrir utan sund-
laugina er risið upp nýtt hverfi
að mestu leyti, verikamannabú-
staðir og einbýlishús. Hvernig
er nú umhorfs iþarna, hvernig
lítur Hvanneyrarbrautin út fyr
ir utan sundlaug? Ekki verður
því lýst hér, en bæjarbúar ættu
að ganga Iþangað og sjá með
eigin augum hvernig skilið hef-
ur verið við götiílagninguna
þar, og reyna að hugsa sér þá
aðstöðu, sem ábúarnir t. d. i
verkamannabústöðunum eiga
við að búa. Og það er vissulega
iekki vanzalaust fyrir 'bæjar-
stjórn að láta þetta ástand
vara ár eftir ár án nokkurra
aðgerða.
★ „Stjörnu-kabarettinn“ var
hér á ferð um helgina, hafði
hér Ikvöldskemmtun og dans,-
leik. Með þessum skemmtihóp
var hljómsveit Kristjáns Kristj
ánssonar — K.K.-sextettinn. —
Hópur þessi er á ferð um land-
ið og heldur skemmtanir í kaup
stöðum og stærri kauptúnum.
★ K.S.-dagurinn var s.l. sunnu
dag. Er hann fjáröflunardagur
Knattspymufél. Siglufjarðar og
þá efna K.S.-ingar til margs-
konar íþróttakeppni. Á velliin-
um s. 1. sunnudag fór fram
hlaup í ýmsum lengdum, eggja
hlaup, naglaboðhlaup, hand-
'knattleikur stúlkna, knatt-
spyma o.fl. Merki K.S-dagsins
voru seld allan daginn, og giltu
þau sem happdrættismiði: Flug
ferð til Akureyrar og heim. —
Dregið var um vinninginn á
sunnudagskvöld og upp kom
nr. 473. Vinningsins slkal vitjað
til Vigfúsar Guðbrandssonar,
Eyrargötu 26.
★ Skipsströnd. — Eftir miðja
s. 1. viku gerði mjög svarta
Iþoku hér um slóðir. Strönduðu
þá tvö vélskip hér við f jörðinn.
Andvari frá Reykjavík var á
leið inn með 500 mál siíldar er
hann strandaði. 'Náðist hann út
litið skemmdur, var tökinn hér
upp i slippinn og gert við
skemmdirnar. Var þvl iokið á
laugardagskvöld. tUm svipað
leyti pg Andvari strandaði var
m/s. Milly á leið frá Ólafsfirði.
Strandaði hún hér út með firð
'inum en náðist út aftur. Er
hún núna í slippnum hér og er
talsvert skcdduð. Varðskipið
Sæbjörg hjálpaði báðum þess-
um skipum á flot og fylgdi
þeim hingað inn.
Undanfarna daga hefur verið
'blæla á miðunum hér norðan-
lands.
★ Sólskin og ryk. — Vikan er
leið var sólrík og heit, líklega
hlýjasta vika sumarsins.Ogeins
og venjulega á slíkum dögmn
hér í bæ, eru göturnar skræl-
þurrar og þykkt lag af ryki
á þeim. Við minnsta andblæ og
umferð þyrlast rykið upp i loft
ið og allt verður mettað af hinu
fina ryki; það smýgur gegnum
klæðnað fólks, fyllir vit þess
og hvergi má hafa opna glugga
svo ekki setjist þykkt ryklag
á adlt sem inni er. Þessa daga,
sem sólin skein á skýlausum
himni og brauzt gegnum ryki-
mettað loftið, brutu margir
Siglfirðingar heilann um hvað
orðið myndi af vatnstankanum
sem i fyrra var oft notaður til
að væta göturnar með á slikum
dögum, sem þessum. Og af því
menn eru nú ekki alltaf sem
röggsamastir um að fá lausn
á heilabrotum sínum, þá leit-
uðu þeir ekkert að vatnstank-
anum, en töldu víst að værð
iþeirra bæjarstarfsmanna, sem
um þetta áttu að sjá, væri svo
mikil I sólskininu og blíðunni,
að þeir hefðu alveg gleymt
þessu þarfa tæki. En á föstu-
dag ibrá svo við, að vatnsbíll
sást á ferð um göturnar stutta
stund. En svo var sá draumur
búinn. Og fólk hefur mátt hrær
ast i þessmn rykmekki síðan
og ef himnaföðurnum hefði
ekki þóknast að bæta svolítið
úr þessu böli tvo síðustu dag-
ana væri ástandið sjálfsagt
eins.
Þetta með vatnstankann og
gleymskuna á að nota hann í
þurríkunum, er talsvert alvar-
legt mál. Það þykir sjálfsagt
að göturæsi séu þannig i lagi,
að vegfarendur vaði ekki djúpa
læki á götunum og vatnið beri
burt ofaniíburðinn. 'Eins ætti að
vera sjálfsagt að vegfarendur
þurfi ekki að vaða gegn imi
þýkka rykmekki og fylla vit
sín af þeim qþverra. Og vissu-
lega berst mikið af ofaníburði
burt einmitt með golunni, sem
iþyrlar upp rykinu af götunum.
Vatnsbíllinn þarf að vera í
gangi nokkuð stöðugt þegar göt
urnar eru orðnar þurrar. Þess
er brýn þörf og liggja margar
ástæður til þess.
Afgreiðslutími á bæjarskrifstofunni
verður frá og með 15. þ. m. eins og liér segir:
Alla virka daga, nema laugardaga frá kl. 1 e.h. til kl. 6 síðd.,
á laugardögum frá kl. 10—12 f. h.
Viðtalstími undirritaðs er alla mánudaga, miðvikudaga og
föstudag n. k.) frá kl. 4—6 síðd. á skrifstofu verkamannafél.
Bæjarstjórinn I Siglufirði 10. júlí 1950.
JÓN KJARTANSSON
Auglýsing
Skrásetning atvinnulausra unglinga í Siglufirði á aldrinum
14—16 ára fer fram dagana 13. og 14. þ. m. (fimmtudag og
föstudag n. k.) frá kl. 4—6 síld. á skrifstofu verkamannafél.
Þróttar.
Siglufirði, 10. júlí 1950.
BÆJARSTJÓRI
getur orðið hörð barátta, en hjá henni verður ekki komizt, ef
bægja á £rá dyrum fátæktinni og eymdinni, sem nú er á næsta
leiti. Lærum af fenginni reynslu, forðiunst ala fordóma, treyst-
um samheldninni og hinni stéttarlegu einingu.
ÚTBREIÐIÐ
Mjölnir —
Þjóðviljann —
Verkamanninn