Mjölnir - 26.07.1950, Side 1
22. tölublað.
Miðvikudagur 26. júlí 1950.
13. árgangur.
Verkalýdssamtökin
einhuga um að leggja
út í kaupgjaldsbaráttu
Stjórn Alþýðusambands íslands leggur til
að sambandsfélögin segi nú þegar npp kjara-
samningum með kauphækkanir fyrir augum. —
Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
lýsir einróma óánægju yfir vísitölufölsun ríkis-
stjórnarinnar. Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfél.
í Reykjavík hvetur til þess að kölluð verði sam-
an ráðstefna allra verkalýðsfélaga til að tryggja
íullkomið samstarf í baráttunni. — Stjórn Al-
þýðusambands Norðurlands hefur lýst yfir sam-
þykki sínu við tillögu Alþýðusamb. íslands.
Samþykktir stjórn-
ar A. S. t
Hér fer á eftir yfirlýsing
stjórnar Alþýðusambandsins:
„Með því að ríkisstjórnin hef
ur með bráðabirgðilögiun ákve j
ið, að kaupgjald fyrir tímabilið
1. júlí til ársloka skidi reiknað
út með vísitölunni 112, enda
þótt vísitala, sem reiknuð væri
Flokkurinn
★ Flokksgjöldin. Félagar!
Munið að gera skyldu ykkar
við Sósíalistaflokkinn. Til
tþess að starfsemin geti hald-
ið áfram, er áríðandi að
f'lokksgjöldin séu greidd.
Minnist þess næst, þegar þið
fáið útborgað og komið við
í félagsskrifstofunni, Suður-
götu 10 og greiðið gjald
ykkar.
★ Þjóðviljahappdrættið. Enn
er mikið af miðabloik'kum
1 eftir á skrifstofunni. Komið
og takið blokkir. Því Ifleiri
sem hafa blokkir að selja,
því fleiri miðar seljast. Marg
ar hendur vinna létt verk,
og marikmið okkar er að
selja aJIa þá miða, sem okk-
ur var ætlað að selja, svo
tryggt verði að happdrættið
!gefi tilætlaðan árangur.
★ Samsærið mikla gegn Sov
étríkjunum. Enn eru nokk-
ur eintök óseld af bókinni
Samsærið miikla gegn Sovét-
ríkjunum. Tryggið ykkur
eintak í tíma og veitið ykk-
ur sem fyrst þá óblöndnu
ánægju, sem það er að lesa
þessa bók. (
samkvæmt fyrirmæliun 3. gr.
laga um gengisskráningu o. fl.
só allmiklu hærri, þá ítrekar
miðstjórn sambandsins fyrri
samþykkt sína varðandi þetta
mál og leggiu’ til, að sambands
félögin segi nú þegar upp kjara
samningum sínum með kaup-
hækkanir fyrir augum.
Þá lýsir miðstjórnin yfir því,
að hún er algerlega samþykk
þeirri ákvörðun Torfa Ásgeirs-
sonar að víkja úr kauplags-
nefnd í mótmælaskyni við hin
einstæðu vinnubrögð ríkisstjórn
arinnar og meirilduta kauplags
nef ndar í þessu máh, enda mun
sambandsstjórn elíki tilnefna
annan mann í kauplagsnefnd
í hans stað.
Jafnframt óskar miðstjórnin
þess, að Torfi Ásgeirsson vinni
áfram að því fyrir Alþýðusam-
bandið að fylgjast með kaup-
gjaldi og verðlagi og reikna út,
hvað rétt framfærsluvísitala á
að vera á hverjum tíma.“
„Miðstjórnin samþykkir að
leita samstarfs við Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja,
og Farmanna- og fiskimanna
sambands íslands, vegna þes
að vísitala framfærslukostn-
aðar fyrir júlí-mánuð hefur
með lögiun verið ákveðin 112
stig, þótt hún samkvæmt
réttum forsendmn eigi að
vera miklu hærri.“
'<iíí
Samþykkt stjórnar
B. S. R. B.
Á stjórnarfundi B.S.R.B., er
haldinn var 20. þ. m. í Reykja-
vík, var eftirfarandi samþykkt
gerð einróma;
„Stjórn B.S.R.B. lýsir óá-
nægju sinni yfir þeirri ákvörð-
un meirilduta Kauplagsnefndar
að vísitala fyrir júlímánuð skuli
vera 109 stig, en það myndi
þýða, að uppbót á laun vegna
gengislækkunarinnar yrði að-
eins 5% til áramóta.
Þessi ákvörðun mun byggð á
ákvæðum laga nr. 56 1950 um
hámark húsaleigu. Stjórn B.S.
R.B. telur að lög þessi séu og
muni vera óframkvæmanleg
þannig að þau geti ekki haft
teljandi álirif á raunverulega
húsaleigu. Beinir stjórnin því
þeirri áskorun til Kauplags-
nefndar að útreikningiu* vísitöl-
unnar verði endurskoðaður,
þannig að fullnægt verði þeim
kröfum, sem almenningur ldýt-
ur að gera um að vísitalan sýni
raimverulegan framfærslukostn
að, eins og hann er á hverjum
tíma.“
Bréf fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna
22. þ. m. sendi stjórn full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík miðstjóm A. S. í.
ibréf það, er hér fer á eftir:
„Reykjavík, 22. júlí ’50.
Miðstjórn Aliþýðusambands
íslands, Reýkjavík.
Stjórn Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík lýsir
yfir fullu samþykki sínu við
tillögu stjórnar Alþýðusam-
bands íslands mn að sambands
félögin segi upp kjarasamning-
um sinum með kaupgjaldsbar-
áttu fyrir augirni, til þess að
svara hinum dæmafáu árásum
ríkisstjómarinnar á lífskjör
allra launþega.
Með því að hér er um baráttu
að ræða, sem snertir allan
verkalýð landsins í heild, og
mikið í húfi að hann vinni al-
gjöran sigur í þessari baráttu,
vill stjóm Fulitrúaráðisns
leggja megináherzlu á, að allt
verði gert sem unnt er, til þess
að tryggja fullkomna einingu
verkalýðsins mn allt land, þeg-
ar frá upphafi.
í því skyni vill stjóm Full-
trúaráðsins leggja til, að stjórn
A.S.Í. kalli 'þegar í stað saman
ráðstefnu allra þeirra verkalýðs
félaga, sem geta sent fulltrúa
með sem skemmstum fyrirvara
og séu fulltrúamir kjömir af
stjómum félaganna.
Við teldum rétt að 'verkefni
ráðstefnunnar yrði fyrst og
(Framhald á 4. síðu)
S. 1. laugardagskvöld kl. 24
var bræðslusíldaraflinn orðinn
103.494 Id. Á sama tíma í fyrra
var liann rúmlega 33 þús. hl.
Höfðu 159 skip með 157 nætur
fengið þennan afla, en allmörg
skip voru ekki komin á skrá.
Eftirtalin 17 skip höfðu yfir
1000 mál og tunnur:
Helga, Reykjavík 2908
Fagriklettur, Hafnarfirði 2198
Skaftfellmgur, Vestm.eyj. 2124
Stígandi, Ólafsfirði 1780
Fanney, Reykjavík 1520
Edda, Hafnarfirði 1487
Björgvin, Dalvík 1360
Snæfell, Akureyri 1328
Ingvar Guðjónsson, Akur. 1291
Einar Þveræingur, Ólafsf. 1258
Guðm. Þorlákur, R.vík. 1250
Súlan, Akureyri 1218
Hilmir, Keflavík 1180
Hvanney, Hornafirði 1154
Haukur I., Ólafsfirði 1150
Garðar, Rauðuvík 1148
Sigurður, Siglufirði 1024
Frá laugardegi til kl. 24 í
gærkvöldi var landað rúmlega
6000 málum á Raufarhöfn, og
voru alls 53,472 mál komin þar
á land í gærkvöldi, en< hjá S.R.
hér á Siglufirði hafði þá aðeins
verið landað 968 málum. Síldar
verksmiðjan Rauðka var í gær
kvöldi búin að taka á móti
3598 málum.. .
.. Aflahæsta skipið mun vera
Helga frá Reykjavík. Var liún
í gærkvöldi búin að leggja upp
3568 mál hjá S. R.
Síldarsöltuniii
Á mánudagskvöld, miðnætti
nam heildarsöltunin 4255 tunn
um. Skiptist hún sem hér segir:
Djúpavík 30 tn.
Húsavík 262 tn.
Raufarhöf/i 2508 tn.
Sigluf jörður 296 tn.
Þórshöfn 1116 tn.
Hjalteyri 43 tn.
Nokkuð var saltað í gær, en
blaðið gat ekki í morgun fengið
nákvæmar upplýsingar mn, hve
mikið það var. Voru skýrslur
frá nokkrum stöðum ókomnar.
En á Seiðisfirði voru salt-
aðar 401 tn., á Dalvík 165, á
Siglufirði 111, og 14 á Djúpu-
vík.
Hvergi veiðiveður
Norðan og norðaustan kaldi,
rigning og þoka er nú um allt
veiðisvæðið og livergi veiðiveð-
ur. Nokkrir bátar fengu slatta
við Langanes í gærkvöldi. —
Reknetaveiði hefur heldur
glæðst að unadnfömu. „Nói“
liéðan frá Siglufirði fékk ágæt-
an afla í gær, og frézt hefur
að reknetabátar hafi fengið
góða veiði á Húnaflóa í gær.
Nýtt fiskileitartæki
Fyrir skömmu var birt hér í
iblaðinu frétt um nýja tegund
ibergmálsdýptarmæla, sem víða
er farið að nota með góðum
árangri til fiskileitar. Nú er
komið fram á sjónarsviðið ann
að tæki til sömu notkunar,
nokkurskonar radartæki, sem
„sér“ jafnvel hina smæstu
hluti. Norska blaðið „Fiskar-
en“ sem er heimild Mjölnis um
þetta tæki, segir frá því, að er
tækið var reynt við Noreg fyrir
skömmu, hafi verið lagður út
strengur, sem þrjár smáspýtur
voru festar við. Sáust þær
greinilega á aflestrarskífunni,
og hnútarnir á strengnum líika!
Gerð þessa tækis byggist í
aðalatriðum á sömu lögmálxun
og gerð venjulegra bergmáls-
dýptarmæla, en það er miklu
næmara, og lesið er af á því á
móðuglerskífu, líkt og á radar-
tæki. Einnig er hægt að setja
i samband við það ritunaráhald
er ritar dýpið á sama hátt og
venjulegir bergmálsdýptarmæl-
ar. Hægt er að „sjá“ með tæk-
inu niður í allt að 600 metra
dýpi, og ennfremur má taka
með þvi 15 m. þverskurð í
hvaða dýpi sem er innan 600
m. Loks er hægt að auka og
minnka næmi þess. Þannig er
hægt að útiloka óviðkomandi
hluti, t. d. svif, þannig að þeir
komi ekki fram á aflestrar-
skífunni.
Verð þessa tækis er svipað
og verð venjulegs bergmáls-
dýptarmælis.
ITæki þetta er þýzk uppfinn-
ing og er framleitt í Electric
Acustic-verksmiðjimum í Kiel,
en uppfinningamaðurinn heítir
Bolzmann. Tækið var reynt í
fyrravor í þýzkum fiskveiðileið
angri til Bjarnareyjar, og þótti
gefa svo góða raun, að um 60
þýzk fiskiskip hafa útvegað sér
það síðan, en auk þess hafa
fiskimenn fleiri þjóða reynt það
t. d. skýrir „Fiskaren" svo frá,
að finnskur síldveiðifloti, sem
stimdi veiðar við Island í sum-
ar, sé búinn þessu tæki. Loks
skýrir blaðið frá því, að auk
þess sem þýzkir fiskimenn noti
tækið til að leita að fiski, noti
þeir það til að rannsaka, hve-
nær kominn sé svo mikill fisk-
ur á lóðir þeirra, að tiltækilegt
sé að byrja að draga.
LANDNEMINN
2.—3. tölublað er nýkomið
út. I þessu hefti er fjölbreytt
efni, greinar, sögur, kvæði,
rább, tvær skopmyndasíður,
myndaopna um fundinn við
Saxelfi, íþróttaopna, getrauna-
síðan o. ifi. Af greinum vil ég
sérstaklega nefna 1. maí í
Höfn, eftir Ólaf Hauk Árna-
son; Daglegt líf í Blindem,
eftir Öddu Báru Sigfúsdóttir;
Island ögrum skorið, ræða eft-
ir Bjarna Benediktsson frá Hof
teigi, sem hann flutti á skemmt
un Söngfélags verkalýðssam-
takanna í Austurbæ j arbió
1. maí.
Áskrifendur Landnemans eru
vinsamlega beðnir að vitja
blaðsins í Suðurgötu 10 og er
æsíkilegt að þeir greiði yfir-
standandi árgang imx leið.