Mjölnir


Mjölnir - 26.07.1950, Qupperneq 1

Mjölnir - 26.07.1950, Qupperneq 1
22. tölublað. Miðvikudagur 26. júlí 1950. 13. árgangur. Verkalýdssamtökin einhuga um að leggja út í kaupgjaldsbaráttu Stjórn Alþýðusambands íslands leggur til að sambandsfélögin segi nú þegar npp kjara- samningum með kauphækkanir fyrir augum. — Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja lýsir einróma óánægju yfir vísitölufölsun ríkis- stjórnarinnar. Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfél. í Reykjavík hvetur til þess að kölluð verði sam- an ráðstefna allra verkalýðsfélaga til að tryggja íullkomið samstarf í baráttunni. — Stjórn Al- þýðusambands Norðurlands hefur lýst yfir sam- þykki sínu við tillögu Alþýðusamb. íslands. Samþykktir stjórn- ar A. S. t Hér fer á eftir yfirlýsing stjórnar Alþýðusambandsins: „Með því að ríkisstjórnin hef ur með bráðabirgðilögiun ákve j ið, að kaupgjald fyrir tímabilið 1. júlí til ársloka skidi reiknað út með vísitölunni 112, enda þótt vísitala, sem reiknuð væri Flokkurinn ★ Flokksgjöldin. Félagar! Munið að gera skyldu ykkar við Sósíalistaflokkinn. Til tþess að starfsemin geti hald- ið áfram, er áríðandi að f'lokksgjöldin séu greidd. Minnist þess næst, þegar þið fáið útborgað og komið við í félagsskrifstofunni, Suður- götu 10 og greiðið gjald ykkar. ★ Þjóðviljahappdrættið. Enn er mikið af miðabloik'kum 1 eftir á skrifstofunni. Komið og takið blokkir. Því Ifleiri sem hafa blokkir að selja, því fleiri miðar seljast. Marg ar hendur vinna létt verk, og marikmið okkar er að selja aJIa þá miða, sem okk- ur var ætlað að selja, svo tryggt verði að happdrættið !gefi tilætlaðan árangur. ★ Samsærið mikla gegn Sov étríkjunum. Enn eru nokk- ur eintök óseld af bókinni Samsærið miikla gegn Sovét- ríkjunum. Tryggið ykkur eintak í tíma og veitið ykk- ur sem fyrst þá óblöndnu ánægju, sem það er að lesa þessa bók. ( samkvæmt fyrirmæliun 3. gr. laga um gengisskráningu o. fl. só allmiklu hærri, þá ítrekar miðstjórn sambandsins fyrri samþykkt sína varðandi þetta mál og leggiu’ til, að sambands félögin segi nú þegar upp kjara samningum sínum með kaup- hækkanir fyrir augum. Þá lýsir miðstjórnin yfir því, að hún er algerlega samþykk þeirri ákvörðun Torfa Ásgeirs- sonar að víkja úr kauplags- nefnd í mótmælaskyni við hin einstæðu vinnubrögð ríkisstjórn arinnar og meirilduta kauplags nef ndar í þessu máh, enda mun sambandsstjórn elíki tilnefna annan mann í kauplagsnefnd í hans stað. Jafnframt óskar miðstjórnin þess, að Torfi Ásgeirsson vinni áfram að því fyrir Alþýðusam- bandið að fylgjast með kaup- gjaldi og verðlagi og reikna út, hvað rétt framfærsluvísitala á að vera á hverjum tíma.“ „Miðstjórnin samþykkir að leita samstarfs við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og Farmanna- og fiskimanna sambands íslands, vegna þes að vísitala framfærslukostn- aðar fyrir júlí-mánuð hefur með lögiun verið ákveðin 112 stig, þótt hún samkvæmt réttum forsendmn eigi að vera miklu hærri.“ '<iíí Samþykkt stjórnar B. S. R. B. Á stjórnarfundi B.S.R.B., er haldinn var 20. þ. m. í Reykja- vík, var eftirfarandi samþykkt gerð einróma; „Stjórn B.S.R.B. lýsir óá- nægju sinni yfir þeirri ákvörð- un meirilduta Kauplagsnefndar að vísitala fyrir júlímánuð skuli vera 109 stig, en það myndi þýða, að uppbót á laun vegna gengislækkunarinnar yrði að- eins 5% til áramóta. Þessi ákvörðun mun byggð á ákvæðum laga nr. 56 1950 um hámark húsaleigu. Stjórn B.S. R.B. telur að lög þessi séu og muni vera óframkvæmanleg þannig að þau geti ekki haft teljandi álirif á raunverulega húsaleigu. Beinir stjórnin því þeirri áskorun til Kauplags- nefndar að útreikningiu* vísitöl- unnar verði endurskoðaður, þannig að fullnægt verði þeim kröfum, sem almenningur ldýt- ur að gera um að vísitalan sýni raimverulegan framfærslukostn að, eins og hann er á hverjum tíma.“ Bréf fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna 22. þ. m. sendi stjórn full- trúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík miðstjóm A. S. í. ibréf það, er hér fer á eftir: „Reykjavík, 22. júlí ’50. Miðstjórn Aliþýðusambands íslands, Reýkjavík. Stjórn Fulltrúaráðs verka- lýðsfélaganna í Reykjavík lýsir yfir fullu samþykki sínu við tillögu stjórnar Alþýðusam- bands íslands mn að sambands félögin segi upp kjarasamning- um sinum með kaupgjaldsbar- áttu fyrir augirni, til þess að svara hinum dæmafáu árásum ríkisstjómarinnar á lífskjör allra launþega. Með því að hér er um baráttu að ræða, sem snertir allan verkalýð landsins í heild, og mikið í húfi að hann vinni al- gjöran sigur í þessari baráttu, vill stjóm Fulitrúaráðisns leggja megináherzlu á, að allt verði gert sem unnt er, til þess að tryggja fullkomna einingu verkalýðsins mn allt land, þeg- ar frá upphafi. í því skyni vill stjóm Full- trúaráðsins leggja til, að stjórn A.S.Í. kalli 'þegar í stað saman ráðstefnu allra þeirra verkalýðs félaga, sem geta sent fulltrúa með sem skemmstum fyrirvara og séu fulltrúamir kjömir af stjómum félaganna. Við teldum rétt að 'verkefni ráðstefnunnar yrði fyrst og (Framhald á 4. síðu) S. 1. laugardagskvöld kl. 24 var bræðslusíldaraflinn orðinn 103.494 Id. Á sama tíma í fyrra var liann rúmlega 33 þús. hl. Höfðu 159 skip með 157 nætur fengið þennan afla, en allmörg skip voru ekki komin á skrá. Eftirtalin 17 skip höfðu yfir 1000 mál og tunnur: Helga, Reykjavík 2908 Fagriklettur, Hafnarfirði 2198 Skaftfellmgur, Vestm.eyj. 2124 Stígandi, Ólafsfirði 1780 Fanney, Reykjavík 1520 Edda, Hafnarfirði 1487 Björgvin, Dalvík 1360 Snæfell, Akureyri 1328 Ingvar Guðjónsson, Akur. 1291 Einar Þveræingur, Ólafsf. 1258 Guðm. Þorlákur, R.vík. 1250 Súlan, Akureyri 1218 Hilmir, Keflavík 1180 Hvanney, Hornafirði 1154 Haukur I., Ólafsfirði 1150 Garðar, Rauðuvík 1148 Sigurður, Siglufirði 1024 Frá laugardegi til kl. 24 í gærkvöldi var landað rúmlega 6000 málum á Raufarhöfn, og voru alls 53,472 mál komin þar á land í gærkvöldi, en< hjá S.R. hér á Siglufirði hafði þá aðeins verið landað 968 málum. Síldar verksmiðjan Rauðka var í gær kvöldi búin að taka á móti 3598 málum.. . .. Aflahæsta skipið mun vera Helga frá Reykjavík. Var liún í gærkvöldi búin að leggja upp 3568 mál hjá S. R. Síldarsöltuniii Á mánudagskvöld, miðnætti nam heildarsöltunin 4255 tunn um. Skiptist hún sem hér segir: Djúpavík 30 tn. Húsavík 262 tn. Raufarhöf/i 2508 tn. Sigluf jörður 296 tn. Þórshöfn 1116 tn. Hjalteyri 43 tn. Nokkuð var saltað í gær, en blaðið gat ekki í morgun fengið nákvæmar upplýsingar mn, hve mikið það var. Voru skýrslur frá nokkrum stöðum ókomnar. En á Seiðisfirði voru salt- aðar 401 tn., á Dalvík 165, á Siglufirði 111, og 14 á Djúpu- vík. Hvergi veiðiveður Norðan og norðaustan kaldi, rigning og þoka er nú um allt veiðisvæðið og livergi veiðiveð- ur. Nokkrir bátar fengu slatta við Langanes í gærkvöldi. — Reknetaveiði hefur heldur glæðst að unadnfömu. „Nói“ liéðan frá Siglufirði fékk ágæt- an afla í gær, og frézt hefur að reknetabátar hafi fengið góða veiði á Húnaflóa í gær. Nýtt fiskileitartæki Fyrir skömmu var birt hér í iblaðinu frétt um nýja tegund ibergmálsdýptarmæla, sem víða er farið að nota með góðum árangri til fiskileitar. Nú er komið fram á sjónarsviðið ann að tæki til sömu notkunar, nokkurskonar radartæki, sem „sér“ jafnvel hina smæstu hluti. Norska blaðið „Fiskar- en“ sem er heimild Mjölnis um þetta tæki, segir frá því, að er tækið var reynt við Noreg fyrir skömmu, hafi verið lagður út strengur, sem þrjár smáspýtur voru festar við. Sáust þær greinilega á aflestrarskífunni, og hnútarnir á strengnum líika! Gerð þessa tækis byggist í aðalatriðum á sömu lögmálxun og gerð venjulegra bergmáls- dýptarmæla, en það er miklu næmara, og lesið er af á því á móðuglerskífu, líkt og á radar- tæki. Einnig er hægt að setja i samband við það ritunaráhald er ritar dýpið á sama hátt og venjulegir bergmálsdýptarmæl- ar. Hægt er að „sjá“ með tæk- inu niður í allt að 600 metra dýpi, og ennfremur má taka með þvi 15 m. þverskurð í hvaða dýpi sem er innan 600 m. Loks er hægt að auka og minnka næmi þess. Þannig er hægt að útiloka óviðkomandi hluti, t. d. svif, þannig að þeir komi ekki fram á aflestrar- skífunni. Verð þessa tækis er svipað og verð venjulegs bergmáls- dýptarmælis. ITæki þetta er þýzk uppfinn- ing og er framleitt í Electric Acustic-verksmiðjimum í Kiel, en uppfinningamaðurinn heítir Bolzmann. Tækið var reynt í fyrravor í þýzkum fiskveiðileið angri til Bjarnareyjar, og þótti gefa svo góða raun, að um 60 þýzk fiskiskip hafa útvegað sér það síðan, en auk þess hafa fiskimenn fleiri þjóða reynt það t. d. skýrir „Fiskaren" svo frá, að finnskur síldveiðifloti, sem stimdi veiðar við Island í sum- ar, sé búinn þessu tæki. Loks skýrir blaðið frá því, að auk þess sem þýzkir fiskimenn noti tækið til að leita að fiski, noti þeir það til að rannsaka, hve- nær kominn sé svo mikill fisk- ur á lóðir þeirra, að tiltækilegt sé að byrja að draga. LANDNEMINN 2.—3. tölublað er nýkomið út. I þessu hefti er fjölbreytt efni, greinar, sögur, kvæði, rább, tvær skopmyndasíður, myndaopna um fundinn við Saxelfi, íþróttaopna, getrauna- síðan o. ifi. Af greinum vil ég sérstaklega nefna 1. maí í Höfn, eftir Ólaf Hauk Árna- son; Daglegt líf í Blindem, eftir Öddu Báru Sigfúsdóttir; Island ögrum skorið, ræða eft- ir Bjarna Benediktsson frá Hof teigi, sem hann flutti á skemmt un Söngfélags verkalýðssam- takanna í Austurbæ j arbió 1. maí. Áskrifendur Landnemans eru vinsamlega beðnir að vitja blaðsins í Suðurgötu 10 og er æsíkilegt að þeir greiði yfir- standandi árgang imx leið.

x

Mjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.