Mjölnir - 01.11.1950, Side 1
32. tölublað
Miðvikudagur 1. nóv. 1950.
13. árgangur.
Bæjarstjórn samþykkir breyting-
ar á starfsmannahaldi
Samþykkir tillögur um samræmingu starf a
hjá bænum, sem munu spara allt að 130
þús. kr. í launagreiðslum árlega.
Meirihluti bæjarstjórnar lítur svo á, með tilliti
til hins alvarlega f járhagsástands bæjarins, að
gæta beri ýtrustu sparsemi 1 bæjarrekstrinum,
þ.á.m. að samræma störf hjá bænum og spara
á starfsmannahaldi eins og frekast er unnt.
Baroaleg framhleypni eða
skemmdarstarfsemi.
Síðasti ,,'Neisti“ ver allmiklu
rúmi sínu til að birta hinar fár-
ánlegustu lygar og blekkingar í
sambandi við þá ákvörðun
bæjarstjórnar að samræma
störf hjá bænum í þeim tilgangi
að spara starfsmannahald. —
Ennfremur hefur Alþýðublaðið
nú birt langa grein frá frétta-
ritara sínum hér um þetta mál,
og eru getsakirnar og lygamar
í garð bæjarstjórnarmeirihlut-
ans þar enn grófari, enda eru
flestir lesendur Alþýðublaðsins
ókunnir málum Sigluf jarðar, og
því auðveldara að blekkja þá.
Ættu sem flestir Siglfirðingar
að lesa þessar greinar, því þær
eru glöggt dæmi um það fá-
dæma siðleysi, sem er nú orðið
höfuðeinkenni á allri stjórn-
malabaráttu Alþýðuflokksins.
Ennfremur eru þær glöggt
dæmi um barnaskap og fákunn-
áttu höfundar síns í félagsmál-
um, nema þær eigi að skoðast
sem tilraun til skemmdarstarf-
semi innan Alþýðuflokksins, því
hver maður sem nokkurt skyn
bæri á stjórnmál og félagsmál
almennt, hefði hlotið að skilja,
að þær mundu fremur verða
til þess að auka fyrirlitningu
manna á Alþýðuflokiknxun en
draga úr henni.
130 þús. kr. sparnaður á
starfsmannahaldi.
Undanfarið hefur árað illa
hér í Siglufirði, ög bænum verið
illa stjórnað. Hinir tekjulitlu
íbúar bæjarins eiga beinlínis
heimtingu á því að eins spar-
lega sé farið með f jármuni bæj-
arins og framast er rnrnt,
m.a. að ekki sé eytt í óþarfa
starfsmannahald. — Sjálfsagt
finnst sumum, að skemmtilegt
væri að geta borizt nokkuð á í
bæjarrekstrinum. — Til dæmis
mun Alþýðuflokksforingjunum
hér finnast það, því aldrei hafa
þeir lagt fram neinar tillögur
um spamað í starfsmannahaldi
eða slíku, og máske em fleiri á
þessari skoðun. En nú árar
bara alls ekki til þess, hvort
sem mönnum líkar það betur
eða ver, að veita sér neinn lúx-
us á þessu sviði, eftir margra
ára síldarleysi, og íkrataóstjóm
sem nærri hafði riðið fjárhag
og áliti bæjarins að fullu. —
Þannig lítur núverandi bæjar-
stjómarmeirihluti og bæjar-
stjóri a.m.k. át og hefur því
gert samþykkti^ þær um breyt-
ingar á starfsmannahaldi bæj-
arins, sem ,,'Neisti“ hneykslast
mest á. Má gera ráð fyrir, að
vegna þessara ráðstafana meiri
hlutans muni bærinn spara
a.m.k. 130 þúsund krónur á
Sósíalisafélag Siglufjarðar
heldur félagsfund í Suðurgötu 10 föstudag-
inn 3. nóv. kl. 9 e.h.
Fundarefni:
1. Bæjarmál (G. Jóhannsson)
2. Stokkhólmsávarpið (Helgi Vilhjálmsson)
3. Erlendar fréttir (Benedikt Sigurðsson)
Félagar, f jölmennið og mætið stundvíslega
Stjómin
starfsmannalialdi næsta ár.
130 þúsund krónur er tals-
verð upphæð. Hún samsvarar
100—150 verkamannaútsvör-
um. L'ika má reikna dæmið
öðmvisi. Fyrir 130 þúsund
krónur væri hægt að kaupa inn
í bæinn atvinnutæki, t.d. bát
eða báta, sem gæti gefið þá
upphæð í vinnulaunum á nokkr-
um mánuðum. Með þeirri upp-
hæð mætti líka greiða einhverja
óreiðuskuldina, sem kratarnir
stofnuðu til meðan þeir stjórn-
uðu bænum.
Tillögxu* * meirihlutans.
Tillögur meirihluta 4 manna
nefndarinnar, sem ikosin var til
að athuga um sparnað á starfs-
mannahaldi bæjarins eru
þannig:
1. 1 stað tveggja ársráðinna
hafnarvarða verði ráðinn
einn ársmaður og annar
maður yfir sumarmánuðina.
Báðir mennimir þurfa að
geta gegnt hafnsögumanns-
starfi. — Aðalhafnarvörður
verði ráðinn frá næstu ára-
mótum. Starfið verði aug-
lýst laust til umsóknar. Um-
sóknarfrestur verði hálfur
mánuður og renni út eigi
síðar en 20. nóv. n.k.
2. Sérstakur vélstjóri verði
ekki ráðinn tframvegis við
hafnartrilluna. Hafnarvörð-
ur annist það starf.
3. Sameinuð verði störf bæjar-
verkstjóra, venkstjóra hol-
ræsa, og heilbrigðisfulltrúa.
(Framhald á 4. síðu)
Silfurbrúðkaup
Hinn 22. október s.l. áttu
hjónin Hallfríður Jóhannesdótt-
ir og Kristmar Ólafsson bæj-
arfulltrúi 25 ára hjúskaparaf-
mæli. Flytur Mjölnir þeim hér-
með fyrir hönd allra sósíalista
og annarra vina þeirra hér í
bænum beztu ámaðaróskir í til-
efni af þessum merkisdegi. og
óskar þeim og vandamönnum
þeirra heilla í framtíðinni.
Níræðisafmæli
Hinn 27. okt. s.l. átti frú Jó-
hanna Gísladóttir, Aðalgötu 19,
níræðisafmæli. Blaðið óskar
henni hjartanlega til hamingju
með þessi tímamót ævi hennar.
'k Við framkvæmdir í Innri-
höfninni vinná nú 10—12 menn.
Nokkrir menn em í vinnu við
grjótmulning og noklkrir við
ýmsa bæjarvinnu.
M í R
Skemmtifundur
verður lialdinn simnudaginn 5. nóv. í Suðurg. 10 kl. 9 e.li.
Minnst verður 33 ára afmælis Ráðstjórnarríkjanna.
DAGSKRÁ:
1. KAFFIDRYKKJA
2. RÆÐA (Eberg Elefsen)
3. UPPLESTUR (Pétur Laxdal)
4. DANS
Aðeins fyrir félaga og gesti þeirra.
STJÓRNIN
Fréttir úr bænum
★ Margt af því fólki, sem
fór héðan úr bænum í atvinnu-
leit suður á land, þegar síldar-
vertíðinni lauk, er nú að tínast
heim aftur. Hefur það borið
misjafnlega mikið úr býtum.
★ Héðan róa nú sex dekkbátar,
iSærún, Hjalti, Þormóður rammi
Kópur, Skúli fógeti frá Ólafs-
firði og Nói frá Dalvík, en þann
bát hafa eigendur Mumma á
leigu, en Mrnnrni er með bilaða
vél, og er ekki búizt við að
varastykki í hana ifáist fyrr en
eftir áramót. Hafa eigendur
Mumma, ásamt hinum alkunna
dugnaðar- og afiamanni Jóni
Jóhannssyni, sýnt virðingar-
vert framtak með þessu við-
bragði þegar bátur þeirra bil-
aði. Skjöldur er nýkominn heim
af síldveiðum fyrir sunnan. —
Grótta og Milly eru í flutning-
um. Sigurður mun hef ja kaup á
bátafiski næstu daga og sigla
með hann til Englands. —
Ingvar Guðjónsson hefur verið
á s'íldveiðum fyrir sunnan og
var aflinn saltaður um borð.
Er skipið á forum til Gauta-
borgar með aflann.
Auk dekkbátanna róa héðan
margar trihur. Afli hefur verið
fremur tregur. Allur þorskur
hefur verið saltaður, en annar
fiskur verið frystur. Hefur ver-
ið talsverð vinna við þessa út-
gerð og verkun aflans.
★ Elliði kom inn af veiðum s.l.
fimmtudag með rúmlega 413
tonn af karfa. Hraðfrystihúsið
Hrímnir tók um 40 tonn af afl-
anum til frystingar, og Egill
Stefánsson kaupmaður tonn til
reykingar. Togarinn fór út aft-
ur á föstudag og var í gær-
morgun búinn að fá 130 tonn
eftir þriggja daga veiði. —
AUmikil vinna hefur verið við
frystingu karfans. Vinna við
hana 17—18 stúlkur og 10—12
karhnenn, og afkasta ca. 8 tonn
um á dag. Er nú um mánuður
síðan Hrímnir hóf karfafryst-
inguna, og hefur frystihúsið á
þeim tíma greitt yfir 40 þús.
krónur í vinnulaun.
★ Þrjár fiskþurrkunarstöðvar
eru nú í smíðum í bænum. —
Hefur verið dálítil vinna við
byggingu þeirra.
★ Ráðunautur frá Búnaðarfél.
'íslands var hér nýlega á vegum
bæjarstjómar og mældi upp
land á Hóli. Munu niðurstöður
af athugunum hans væntánleg-
ar bráðlega, og kemur þá til
kasta Hólsbúsnefndar og bæjar
stjómar, að taka til athugunar,
hvort ráðist skuli á næstunni í
nýrækt á Hóli. Ráðunauturinn
hefur látið í ljós þá skoðun, að
hagkvæmast muni vera að taka
til ræktunar land vestan megin
fjarðarins.
Aukin ræktun á Hóli er frum-
skilyrði fyrir því, að búrekstur-
inn geti borið sig.
★ Verkfræðingur frá Almenna
byggingarfélaginu var hér fyrir
skömmu á vegum bæjarstjórn-
ar til að gera áætlun um stækk
un vatnsveitunnar. Hefur hann
lagt til að vatnið verði tekið
i Fjarðará fyrir framan ræktar
land Hólsbúsins og dælt inn í
aðalvatnslögnina framan úr
firðinum. Verkfræðingurinn fór
með niðurstöður athuguna
sinna til Reykjavíkur og mun
gera kostnaðaráætlun um verk-
ið og er hún væntanleg innan
skamms. Verður þá hafizt
handa um útvegun fjár til fram
ikvæmdanna, og hefur fengizt
vilyrði fyrir láni til þeirra.
★ Verið er að gera uppdrátt að
vatnslögnum í hús í bænum, en
slíkur uppdráttur hefur ekki
verið til áður. Vinna vatnsveitu
stjóri og Guðmundur Einarson
vélstjóri ,að þessu verki.
★ Bærinn hefur nú látið brjóta
garðlandið úti á Strönd. Hefur
jarðýta bæjarins unnið að þv'i
að undanförnu, og er ætlunin
að plægja landið líka. Munu
þeir, sem hafa ræktað í garð-
landinu hafa forgangsrétt að
igörðum sínum áfram.
★ Bæjarstjórn hefur óskað eft
ir þvi við stjórn og framkv.
stjórn síldarverksm. Rauðku að
löndunarútbúnaði verksm. verði
breytt svo fljótt sem unnt er,
með það fyrir augum að verk-
smiðjan geti landað karfa úr
togurum.
★ Bæjarstjórn vinnur nú að
því að fá nýjan togara í bæinn.
Á síðasta bæjarstj.fundi var
ikosin þriggja manna nefnd til
að athuga um möguleika fyrir
útvegun lánsfjár til að koma
togaranum af stað, og á nefnd-
in að því fengnu að ganga til
samninga við ríkisstjórnina um
'kaup á skipinu, en undirbúnings
umræður um það mál munu
hafa farið fram. Nefndina skipa
Jón Kjartansson, bæjarstjóri,
Bjarni Bjarnason, bæjarfógeti,
forseti bæjarstjórnar og Þór-
oddur Guðmundsson, bæjarfull-
trúi.