Mjölnir


Mjölnir - 10.05.1966, Síða 2

Mjölnir - 10.05.1966, Síða 2
Mýtt í kosningastefnuskrá AlþýSu- bandalagsins í Siglufirði segir, að Alþýðubandalagið vilji að bæjarstjórn leiti samstarfs við kvennasamtökin í bænum, verka- lýðsfélögin og atvinnurekendur um að koma á fót barnadagheim ili, sem verði rekið mestallt ár- ið. Þá segir í stefnuskránni, að Alþýðubandalagið vilji að bæj- arstjórn athugi möguleika á að koma upp vöggustofu, og verði m. a. athugað, hvort gamla sjúkrahúsið geti komið til greina í því sambandi. Kvenfélagið Von hefur um langt árabil rekið dagheimilið Leikskála. Hefur sá rekstur út- heimt mikinn dugnað, fórnfýsi og ósérplægni. Við þá erfiðleika, sem við hefur verið að stríða í rekstri heimilisins síðustu árin sökum minnkandi aðsóknar og vaxandi rekstrarkostnaðar, bæt- ist það, að húsið er orðið gam- alt og illa farið, og í rauninni augljóst, að þrátt fyrir góðan vilja allra, sem að rekstri þess standa, verður það ekki rekið mörg ár úr þessu við núverandi aðstæður. Þörfin fyrir dagheimili er engu minni nú en áður, þótt dreg ið hafi úr síldarsöltun, jafnvel vaxið, og horfur á að hún muni enn halda áfram að vaxa. Þált- taka kvenna í atvinnulífinu fer vaxandi með hverju ári. Nú í vetur hafa t. d. tugir húsmæðra stundað atvinnu í frystihúsum og niðu'rlagningarverksm'iSj- unni. Að líkindum mundu enn fleiri konur vilja stunda vinnu utan heimilis, ef heimilisstörf, og þá ekki sízt gæzla ungra barna, hömluðu ekki. Það er því líklegt, að hér sé rekstrargrundvöllur fyrir dag- heimili, sem rekið væri mestallt eða jafnvel allt árið. E. t. v. þyrfti það ekki að geta tekið eins mörg börn í einu eins og Leik- skólar hafa tekið yfir söltunar- tímabilið. En það þyrfti að vera vel úr garði gert og geta veitt fullkominn aðbúnað. Einhver mun segja, að bygg- ing og rekstur dagheimilis allt árið kosti mikið fé. En því er til að svara, að þátttaka kvenna í atvinnulífinu skapar milljóna- verðmæti á hverju ári. Bygging og rekstur dagheimilis er ekkert annað en nauðsynlegur kostnað- ur við að gera mæðrum kleift að halda áfram þessarri verð- mætasköpun, og auka hana. — Sennilegast er, að þegar dæmið er gert upp, sé mikill fjárhags- legur ávinningur að rekstri dag- heimila, þar sem eftirspurn eftir vinnuafli kvenna er einhver að ráði. 2) — Mjölnir dag:heinoili Þar að auki er hér um að ræða menningar- og mannúðarmál, og þjónustustarfsemi, sem nútíma- þjóðfélagi ber að veita þegnum sínum. A'lþýðuhandalagið telur, að það hljóti að vera beint hags- munamál atvinnurekenda, sem þurfa á vinnuafli kvenna að halda að auðvelda konum að vinna utan heimilisins. Bæjar- sjóður fær sinn hlut í útsvörum og opinberum gjöldum af laun- um kvenna sem annarra. Og það hlýtur að vera áhugamál laun- þegasamtakanna, sem hafa kon- ur .innan vébanda sinna, að kon- um sé auðveldað að starfa utan heimilis. Alþýðubandalagið vill því stuðla að því að allir þessir aðilar, að viðbættu kvenfélaginu Von, sem hefur sýnt mestan á- huga og framtak hvað þetta mál snertir, taki saman höndum um farsæla lausn málsins. Alþýðubandalagið hefur ekki á takteinum neinar tillögur um, hvar dagheimili skuli staðsett, hver skuli teljast eigandi þess, hvað stórt það skuli vera, hvern- FIRMAKEPPNI Skíðafélags Siglufjarðar, Skíða borgar, fór fram sunnudaginn 17. apríl sl. Alls tóku 70 firmu þátt í keppninni. Urslit urðu sem hér segir í þrem efstu sætunum: 1. Starfsmenn Pósts og síma. Keppandi Jóhann Skarphéðins- son. 2. Starfsfólk Skattstofunnar. Keppandi Sigríður Þ. Júlíusdótt- ir. 3. Trésmíðaverkst. Grundar- götu 1. Keppandi Kristján Bjarnason. Svo sem venja hefur verið tók blaðið Mjölnir þátt í þessari keppni og hlaut að þessu sinni 45. sæti, en keppandi þess var Sverrir Sveinsson. Fermingargjafir! T œkifœrisf'jafir! ÍSLENZK ORÐABÓK þörf og nauðsynleg ó hverju heimili. PASSÍUSÁLMARNIR viðhafnarútgófa, - skreytt listavcrkum. - Tilvalin gjöf handa fermingarbarninu. Bókaútgáfa Menningarsjóðs EINAR M.ALBERTSSON — umboðsmaður — ig byggingar- og rekstrarkostn- aðar þess skuli aflað o. s. frv. Slíkt eru viðfangsefni, sem hlut- aðeigendum og sérfróðu fólki ber að fjalla um. Alþýðubanda- lagið vill aðeins koma málinu á rekspöl og lýsa fylgi sínu við það, að bærinn stuðli að bygg- ingu dagheimilis og leggi til þess fé, ef um það næst samstaða áðurgreindra aðila. Skorar Al- þýðubandalagið á hina flokkana að gera málið einnig að stefnu- máli sínu í þessum bæjarstjórn- arkosningum. Um síðara atriði þessarrar greinar í stefnuskránni, rekstur vöggustofu, er það að segja, að þar er aðeins gert ráð fyrir at- hugun á möguleikum. Vel má vera, að ekki sé grundvöllur fyr- ir rekstur slíkrar stofnunar í bæn um, en ekki sakar að það atriði sé rannsakað. Kjörorð okkar er: Trygrgring: er nauðsyn * Ummt tfNMff M Ömurlegt ástand viö Siglufjarðarhöfn Nokkur trillubátaútgerð er rekin héðan frá Siglufirði, eins og kunnugt er. Samtals er það mikið fé, sem bátar þessir hafa fært að landi og töluvert hefur útgerð þeirra bætt um hér, í öllu síldarleysinu. Allur aðhúnaður í landi er mjög slæmur fyrir þessa báta og hefði verið mikil nauð- syn á að bæta úr því, og það fyrir mörgum árum síðan. Flest- ir bátarnir hafa róið með hand- færi, en það er kunn reynzla í nærliggjandi sjávarplássum, að það hefði gefið meiri tekjur að róa hinum stærri trillum með línu. Hér hafa trillurnar enga eða mjög slæma aðstöðu til að róa með línu. Það er óumdeilanlegt mál, að hér væri hyggilegt að byggja nokkrar góðar verbúðir fyrir þessa báta, þar sem væri gott beitingapláss með kæligeymslu fyrir línu og einnig nokkurt sölt- unarpláss, svo þeir sem vildu salta afla sinn gætu það. Ef athugaðar eru aðstæður með síldarsöltunina, kemur í ljós, að þær eru síður en svo glæsilegar. Höfnin fer grynnk- andi ár frá ári og lítið sem ekk- ert er gert til að bæta þar úr. Nú er svo komið, að hin stóru síldveiðiskip munu hvergi geta komið að bryggju í sumar lest- uð við lásævi, undir bökkunum eða .innan á eyrinni vestanverðri. Er hörmulegt til þess að vita, hve erfið aðstaða er nú til að notfæra sér, ef heppnin yrði með og hingað bærist eitthvert magn af síld í sumar. Þjónusta við bátaflotann er mikið skilyrði til að hæna báta- flotann til Siglufjarðar, hér er mjög gott vélaverkstæði og full- komið að vélabúnaði, einnig hef ur það á að skipa ágætum smið- um. Síðustu ár hefur þetta verk- stæði, undir forustu Sigurðar Ellefsen, getið sér gott orð um allt land og sækjast útgerðar- menn eftir að koma með báta sína hingað til viðgerðar, en slippinn vantar. Væri hér slipp- ur, sem gæti tekið upp veiðibát- ana, myndi það skapa gífurlega mikla vinnu hér, sérstaklega við hreinsanir og standsetningu milli vertíða. Þegar núverandi bæjar- stjóri varð mestu ráðandi um hafnar- og bæjarmál, var hér til slippur, sem tekið' gat upp 130 tonna skip, honum hefur ekkert verið við haldið og nú er svo komið, að naumast er þar hægt að taka upp trillubát. Starfræksl- an þarna hefur verið lögð niður, og er það mikill skaði. Því meðan þar unnu 4 til 6 menn var þó oft hægt að hjálpa bátun- um þegar með þurfti. Bæjarstjóri sá aldrei gagnsem ina af þessari starfsemi, hins veg- ar lét hann fara fram athugun á því, eftir að hafa gengið af gamla slippfyrirtækinu dauðu, hvort ekki væri hægt að setja upp mubluverkstæði í gamla slipphúsinu og notfæra sér þá vélakost þann, sem þar var fyrir hendi. Einhverra hluta vegna varð þó aldrei neitt af fram- kvæmdum í þessu efni. Hið ömurlega ástand við höfn ina ber að saka bæjarstjóra um, hann hefur verið svo að segja einráður um flest mál og hann hefur ætíð sýnt fullkomið skiln- ingsleysi á málum hafnarinnar. Þess er því ekki að vænta að þessum nauðsynlegu framkvæmd um við höfnina verði komið í við unandi horf verði núverandi bæj arátjóri mestu ráðandi næsta kjörtímabil. En hægur vandi er að koma í veg fyrir þá ógæfu, það er aðeins að nokkur nýr hóp- ur fylki sér um Alþýðubandalag- ið, svo það komi að 3 bæjarfull trúum og til þess vantar senni- lega lítið. ÁFENGISSALAN 1. jan. til 31. marx 1966. HEILDARSALA: Selt í og frá: Reykjavík kr. 80.385.315.00 Akureyri — 8.011.515.00 ísafirði — 2.786.795.00 Siglufirði — 1.585.970.00 Seyðisfirði — 2.277.380.00 kr. 95.046.975.00 Á sama tíma 1965 varð salan, eins og hér segir: Selt í og frá: Reykjavík kr. 59.680.023.00 Akureyri — 6.290.525.00 ísafirði — 1.790.815.00 Siglufirði — 1.191.020.00 Seyðisfirði — 1.592.291.00 kr. 70.544.674.00 Söluaukning er 34% fyrstu þrjá mánuði þessa árs miðað við 1. ársfjórðung í fyrra, en þess ber að geta, að all-mikil verðhækkun hefur orðið á áfeng- um drykkjum frá þeim tíma. (Frá Áfengisvarnaráði.) §lIi!!ðBIIIIIB!!flllfllllllllllllllllH Auglýsið í MJÖLNI

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.