Mjölnir - 03.11.1967, Blaðsíða 3
Nýsköpun norðlenzks atvinnulífs
í samningum ríkisstjórnarinnar og Alþýðusambands Norðurlands í júni
1965 var samið um sérstakan stuðning rikisvaldsins við atvinnulifið á Noro-
urlandi. Var það samkomulag tvíþætt: annarsvegar samið um tímabundna
bróðabirgðaaðstoð, einnig um heildarathugun á atvinnulifi þessa landshluta
og gerð óætlunar um eflingu þess. Skyldu um þetta höfð samróð við AN og
samtök sveitarfélaga ó Norðurlandi.
Loforðið um bróðabirgðaaðstoð var efnt með stofnun Atvinnumóla-
nefndar Norðurlands og fjórstuðningi rikisins við starfsemi hennar. Siðara
atriðið, hcildarathugun, gerð óætlunar og aðgerðir til eflingar norðlenzku
atvinnulifi, hefur hinsvcgar ekki komið til framkvæmda svo viðhlítandi sé
að neinu leyti.
AN sendi i fyrravetur tiilögur og greinargerð um norðlenzk atvinnumól
til Efnahagsstofnunarinnar. A þingi AN, sem haldið var ó Siglufirði um
næstsíðustu helgi, voru þessar tillögur enn óréttaðar, og lögð óherzla u,
að þær yrðu teknar inn í framkvæmdaóætlunina fyrir Norðurland og hrund-
ið í framkvæmd ó næstu órum.
Mjölnir tclur þessar tillögur einhverjar hinar mikilvægustu, sem fram
hafa komið ó scinni órum um atvinnumól fjórðungsins, og birtir þær þvi i
hcild hér ó eftir:
Síldarvinnsla.
Unnið verði að því með for-
göngu ríkisstjórnarinnar, að
síldarvinnsla og síldarverkun
verði stóraukin á Norðurlandi
með því að flytja meira af síld
en verið hefur með sérstökum
flutningaskipum frá veiðisvæð-
ununi til Norðurlands, og komið
verði betra skipulagi á flutning-
ana.
Til að framkvæma þetta á sem
hagkvæmastan hátt verði leitazt
við að setja á stofn félag með
mikilli þátttöku ríkisins, ásaint
hlutdeild bæjar- og sveitarfélaga,
fyrirtækja og einstaklinga, sem
mikilla hagsmuna eiga að gæta
við þessar framkvæmdir.
Til flutninganna verði keypt
ekki færri en 3 flutningaskip til
viðbótar því sem þegar hefur
verið keypt. Þess verði vandlega
gætt, að skipin henli vel til sild-
arflutninga á hafnir síldarpláss-
anna og að hægt verði að flylja
hluta af síldarförmunum kælda,
vegna söltunar og frystingar þeg-
ar góð síld fæst til þeirrar verk-
unar. Jafnframt verði þess gætt,
að skipin geti hentað vel til vöru-
flutninga að og frá Iandinu, svo
að þau þurfi ekki að liggja ónot-
uð þá tíma sem ekki eru næg
verkefni við síldarflutninga.
Endurnýjun bóta.
Ráðstafanir verði gerðar til nð
nýbygging hentugra fiskibáta til
þorskveiða hefjist að nýju. —
Verði það undirbúið með því að
afla upplýsinga m. a. erlendis,
um nýjungar í gerð báta, búnaði
þeirra og veiðitækjum. Verði
þær upplýsingar hagnýttar að
svo miklu leyti sem þær samrým-
ast hérlendum aðstæðum.
Lán til nýrra fiskibáta verði
veitt, auk Fiskveiðisjóðslána,
vaxtalaus eða vaxtalág til langs
tíma úr Atvinnujöfnunarsjóði,
svo há, að samanlögð lánsupp-
hæð nemi ekki minna en 90%
af kostnaðarverði bátanna full-
búinna.
Tekið verði til vandlegrar at-
hugunar, að greiddur verði
styrkur til nýbyggingar fiskibáta
til þeirra, sem þá um leið leggja
upp gömlum, ótraustum og illa
reksturshæfum bátum, og með
því móti flýtt fyrir eðlilegri þró-
un í bátaútveginum.
Togaraútgerð.
Gerðar verði ráðstafanir til
að hafin verði endurnýjun tog-
araflotans í formi skuttogara og
smíðuð verði ekki færri en 2 ný
skip á ári næstu 4—5 árin til
útgerðar frá Norðurlandi. Nú
þegar verði aflað ýtarlegra upp-
lýsinga um nýjustu gerðir tog-
ara, húnað þeirra og veiðarfæri,
frá þeim þjóðum sem mesta
reynslu hafa um nýbyggingu
togara og útgerð þeirra.
Verði sérstaklega teknar til
athugunar tvær stærðir skipa og
rekstursaðstaða þeirra á Norð-
urlandi. Annars vegar skip af
líkri gerð og þeir togarar, sem
nú eru gerðir út (650—700
rúml.) búin sérstaklega fyrir
sókn á miðin hvar sem er við
Island og á nálægum slóðum, og
jafnframt ætluð til að fiska mest
an hluta ársins fyrir frystihúsin
á útgerðarstöðum skipanna.
Hins vegar skip að stærð um
450—500 rúml., sem væru í
meginatriðum með sama fyrir-
komulagi og búnaði sem hin
fyrrnefndu og einnig sömu
reksturstilhögun. Skip af hinni
minni gerð yrðu að sjálfsögðu
háðari veiðisvæðunum út af
Norðurlandi og í námunda við
þau, og einnig verulega háðari
veðurfari við veiðarnar.
Gengið er útfrá, að skipin
verði með yfirbyggt framþilfar,
svo að öll vinna við aflann fari
fram undir þilfari,einnig að fisk
urinn, sem landa skal lil vinnslu
í frystihúsum, sé allur ísaður í
kassa. Það fyrirkomulag ætti að
gera fært, að skipin geti verið
a. m. k. tveim dögum lengur í
veiðiferðum, og þar með aukið
nýtingu þeirra, lækkað mikið
uppskipunarkostnað og gefið
betri og verðmeiri fisk, er næmi
að líkindum 7—10%.
Til endurnýjunar logaranna
verði veitt lán til ekki skemmri
tíma en 20 ára, með lágum vöxt-
um. Einnig verði í þessu sam-
bandi tekið lil vandlegrar athug-
unar, að veittur verði óaftur-
kræfur styrkur til bygginga
nýrra togara, þeim, sem leggja
upp um leið gömlum togurum,
sem eru t. d. orðnir 20 ára eða
eldri og geta naumast talizt
reksturshæfir lengur.
Niðursuðuidnaður.
Niðursuðuiðnaðurinn verði
efldur með aðstoð þess opinbera,
fyrst og fremst til að afla mark-
aða erlendis og til að koma á
fót sölustofnun fyrir framleiðslu
þess iðnaðar, með hlutdeild og
undir forustu rikisins og nauð-
synlegum fjárstyrk til markaðs-
leiiar fyrstu árin.
Þeim niðursuðuverksmiðjum,
sem starfandi eru á Norður-
landi, verði veitt nauðsynleg lán
til að fullgera verksmiðjurnar
og endurbæta reksturinn. Enu-
fremur verði þeim aðilum öðr-
um, sem að því vinna að koma
upp og reka niðursuðu- og nið-
urlagningarverksmiðjur á Norð-
urlandi, veitt nauðsynleg fyrir-
geiðsla og lán til þeirra fram-
kvæmda.
Rækjuveiðar.
Haldið verði áfrain frekari
leit að rækjumiðum úti fyrir
Norðurlandi og leitin fram-
kvæmd á hverju ári og á þeim
tíma, sem helzt er von um góðan
árangur. Ef nægilega auðug
rækjumið finnast, verði sérstak-
lega greitt fyrir aukinni þátttöku
í rækjuveiðum með lánveiting-
um til veiðarfærakaupa og tækja
til vinnslu rækjunnar.
Skipasmíðasföðvar.
Skipasmíða- og viðgerða-
stöðvum fyrir skip og báta verði
veitt nauðsynleg lán til uppbygg-
ingar og reksturs, svo að stöðv-
arnar verði sem fyrst búnar
vinnusparandi tækjum og að-
staðan að öðru leyti bætt, svo að
starfsemi stöðvanna geti orðið
svo hagkvæm sem kostur er.
A útgerðar'stöðum, þar sem
alhnikil útgerð er, og ekki er að-
staða til bátasmíða og bátavið-
gerða, verði unnið að því, að
slíkum stöðvum verði komið
upp.
Til nýbygginga skipa og báta
verði útveguð fullnægjandi lán,
svo að byggingastöðvarnar geti
boðið kaupendum nýrra skipa
og báta jafngóð kjör og erlendar
stöðva bjóða bezt.
F rysti h ú sa rekstu r.
Frystihúsunum verði veitt
hagkvæm lán til hæfilega langs
tíma til að koma í framkvæmd
umbótum á rekstri húsanna, m.
a. verði lögð áherzla á umbætur
við geymslu og meðferð hráefn-
isins.
Hafnarbætur.
Auknar verði fjárveitingar lil
hafna á Norðurlandi, svo að
hafnirnar, sem eru enn að mestu
opnar fyrir úthafssjó, verði sem
fyrst öruggt lægi fyrir báta og
skip viðkomandi staða og fyrir
tafalitla afgreiðslu flutninga-
skipa.
Við hafnir á helztu verzlunar-
stöðunum verði byggð vöru-
geymsluhús, svo hægt verði að
leggja þar á land allmikið af
vörum til dreifingar á nærliggj-
andi staði.
Rafvæðing.
Hraðað verði fullnaðarundir-
búningi að fullnaðarvirkjun
Laxár í Þingeyjarsýslu sam-
kvæmt þeirri tillögu um tilhögun
virkjunarframkvæmda þar, sem
hagkvæmust er talin fyrir neyt-
endur á Norðurlandi öllu. Keppt
verði að því að ljúka undirbún-
ingsvinnu fyrir virkjunina svo
fjótt, að framkvæmdir geti haf-
izt á næsta ári.
Jafnfranrt aukinni virkjun
Laxár verði byggð háspennulína
frá stöðinni til kauptúnanna í
Norður-Þingeyjarsýslu og raf-
veiturnar á öllu Norðurlandi
tengdar saman. IJaldið verði
stöðugt áfram lagningunr dreifi-
lína um landbúnaðarhéruðin á
Norðurlandi.
Iðnaður.
Greitt verði svo sem kostur er
fyrir efiingu iðnarins á Norður-
landi til þess að bæta aðstöðu
hans í hinni hörðu samkeppni.
Tollar verði lækkaðir á innfluttu
hráefni og vélum til iðnaðarins.
Iðnaði, sem starfar að fram-
leiðslu nauðsynjavarnings með
hagkvæmum hætti, verði veitt
nauðsynleg vernd fyrir hömlu-
lausum innflutningi sams konar
iðnaðarvara.
Tunnusmíði.
Tunnuverksmiðjur ríkisins
verði starfræktar )á hverjum
vetri og eigi skemur en 5 til 6
mánuði af árinu. Vélakostur
þeirra verði endurbæltur, svo að
þær verði jafnvel búnar að véluin
og tækjum til smíðanna og bezt
gerist í þeim löndum, sem við
verðum að keppa við í lunnu-
smíði.
Stefnt verði að því, að tunnur
undir alia saltsíldarframleiðsl-
una verði smíðaðar innanlands.
Byggt verði við verksmiðjuna
á Akureyri geymsluhús fyrir
efnivörur og framleiðslu verk-
smiðjunnar og verði þar með
hætt þeim . óhæfilega dýra sel-
flutningi á tunnuefninu og tunn-
unum, sem þar hafa verið smíð-
aðar.
Mjólkur- og kjötvinnsla.
Greitt verði fyrir áframhald-
andi framförum og aukinni fjöl-
breytni í vinnslu og verkun
landbúnðarframleiðslunnar með
nauðsynlegum lánum til bygg-
inga-, véla- og tækjakaupa, sem
þörf er á til mjólkurstöðvanna
og einnig til sláturhúsa og fleiri
vinnslustöðva landbúnaðarins á
ýmsum stöðum á Norðurlandi.
Fóðuriðnaður.
Stuðlað verði að því, að
byggðar verði heymjöls- eða
heykögglaverksmiðjur, ein eða
fleiri, á Norðurlandi, eftir því
sem reynsla leiðir í ljós, að hag-
kvæmt sé, og verði þessari starf-
semi valinn staður eða staðir,
þar sem skilyrði eru talin bezt
fyrir þann verksmiðj urekstur að
dómi sérfróðra manna um það
efni.
Tollvörugeymsla.
Unnið verði að því, að komið
verði upp tollvörugeymslu við
Akureyrarhöfn til að greiða með
því fyrir verzlunarstarfseminni
á Norðurlandi, og á allan hátt
verði stult að því, að verzlunar-
fyrirtækin geti aukið milliliða-
lausan innflutning á vörum og
haft sambærilega? aðstöðu við
innflytjendur í Reykjavík.
Olíustöð.
Gerðar verði ráðstafanir af
því opinbera til að hæfilega stór
olíustöð verði sett upp á Norð-
urlandi fyr'ir helztu tegundir
olíu og benzíns, svo að hægt
verði að flytja þessar vörur til
Norðurlands beint erlendis frá.
Nýting jarðhita.
Geitt verði fyrir auknum
framkvæmdum við hagnýtingu
jarðhita á Norðurlandi með út-
vegun lána til langs tíma. Hita-
veituframkvæmdum til hitunar
húsa verði hraðað í þeim bæjum
og sjávarþorpum, þar sem skil-
yrði eru góð til reksturs hita-
veitu.
Vegaframkvaemdir.
Haldið verði stöðugt áfram
að auka og bæta vegakerfið í
Norðlendingafjórðungi. Undir-
búið verði á þessu ári, að gerð
hraðbrautar í nágrenni Akur-
eyrar, með varanlegu slitlagi,
geti hafizt á næsta ári. Jafnframt
verði auknar verulega fjárveit-
ingar til nýbygginga ýmissa
þjóðvega á Norðurlandi, svo
sem nýs vegar um Melrakkasléttu
til Raufarhafnar og víðar.
Mjölnir (B