Mjölnir - 17.03.1972, Page 1
Ragnar Arnalds
alþingismaður heldur almennan fund um
stjórnmáiaástandið og atvinnumál Siglu-
XXXV. árgangur. Föstudagnr 17. rnarz 1972.
2. Itölublað.
f jarðar í Alþýðuhúsinu kl. 4 á laugardag.
Siglfirðingar fjölmennig á fundinn!
Rætt um lóð undir frystihús á
Þormóðs ramma h. f.
vegum
Alþýðubandalagið
Frá aðalfundi verkalýðsfélagsins Vöku
1 síðustu viku óskaði stjórn
Þormóðs ramma h. f. eftir fundi
með Hafnarnefnd Siglufjarðar
til að ræða um staðsetningu
frjstihúss sem félagið hefur
hug- á að b'yggja. Á fundinum
mætti ásamt stjórninni, Rögn-
valdur Johnsen arkitekt, sem
gert hefur þrjár tiilöguteikning-
ar, sem hver um sig gerir ráð
fyrir 5-6 þús. ferm. húsi að flat-
armáli, eða álika og stóra mjöl-
liús S. R. Gert er ráð fyrir, að
húsið verði allt á einni hæð.
Afkastageta er áætluð 7-8 þús-;
und tonn af hráefni á ári, eða
ca. 3000 tonn af fullunnum flök
um. Frystigeymslur eru áætlað-
ar fyrir um 1500 tonn, auk
þess saltfiskverkunarhús, ís-
vinnsla og annað, sem tilheyrir
þessari framleiðslúgrein.
Langæskilegasti staðurinn fyr
ir húsið var talið svæðið vest-
ur frá Hafnarbryggjunni að
Hjaltalínsstöð, þar með taldar
lóðir Rauðku að mestu eða öllu
leyti. Mundi sú staðsetning gera
kleift að landa beint inn í hús-
ið og skipa afurðunum um borð
í flutningaskip án þess að nota
bila til flutninganna.
Eitt frumskilyrði slikra stað-
setningar er, að gert verði járn-
þil vestur frá Hafnarbryggju
að Hjaltalínsstöð, sem togskip
geti legið við. Ennfremur má
geta þess, að þrátt fyrir öll
þau gömlu mannvirki, sem til
eru í Siglufjarðarhöfn, er á-
standið þannig, að óviðunandi
aðstaða er fyrir veiðiskip, ef
viðlegu- og athafnapláss verður
ekki aukið.
Samþykkt var að vinna að
því við yfirvöld hafnarmála, að
gerð þessa þils yrði tekin inn á
hafnaáætlun, þannig að 40%
af kostnaði við gerð þess fáist
úr hafnarmálasjóði. Er þess að
vænta, að bæjaryfirvöld, stjórn
Þormóðs ramma, þingmenn og
aðrir áhrifamenn leggist á eitt
um að tryggja þessa framkvæmd
Þann 27. febrúar var aðal-
fundur verkalýðsfélasins VÖKU
haldinn.
Á fundinum flutti formaður
VÖKU Óskar Garibaldason
skýrslu um starfsemi félagsins
og gerði grein fyrir fjárhag
þess og afkomu. Hagur félags-
ins batnaði á liðnu ári um 1138
þúsundir króna. Munaði þar
mest um að til sjúkrasjóðs
greiddust hundruð þúsunda kr.,
sem hann átti útistandandi hjá
fyrirtækjum.
1 félaginu eru nú 823 manns,
423 korlar og 400 lconur.
Yfirlit um lífeyrisjóð félags-
ins lá ekki fyrir fundinum en
hann er sameiginlegur með 6
öðrum félögum í Skagafjarðar-
Húnavatns- og Strandasýslum
Tillögur uppstiliinganefndar
um trúnaðarmenn árið 1972
lágu fyrir á fundinum, breyt-
ingatillögur höfðu engar borist
og var um sjálfkjör að ræða.
Stjórn félagsins er þannig
skipuð:
Formaður Óskar Garibaldason
Varaform. Flóra Baldvinsdóttir
Ritari Ólína Hjálmarsdóttir
Gjaldkeri Kolbeinn Friðbj.son
Meðstjórnandur Sveinn V.
Björnsson, Erna Rósmunds-
dóttir og Sigurbjörg Þorléifs-
dóttir.
1 ýmsar fleiri trúnaðarstöður
var kosið og svo trúnaðar-
mannaráð eins og lög gera ráð
fyrir.
Frá skrifstofu VÖKU
Fyrirspnrn til blaðsins ítrekuð
1 desember s.l. gerði ég
nokkrar fyrirspurnir til blaðs-
ins um atriði snertandi reikn-
inga bæjarins og rekstur vissra
þátta á vegum bæjarins. Þessar
fyrirspurnir voru birtar, en
svör ekki gefin. Ég átti von á
þeim í fyrsta blaði þessa árs,
en þar komu þau ekki. Máske
hafa upplýsingar ekki legið á
lausu þá, en nú, þegar undir-
búningj að fjárhagsáætlun fyr-
ir 1972 hlýtur að vera iangt
komið, ætti að vera auðvelt fyr-
ir bæjarfulltrúa að fá yfirlil
um þessi atriði. Ég ætla nú að
endurtaka þessar fyrirspurnir
og bæta við fáeinum: „Hvað
kostaði mikið margra vikna
vinna Bárðar Sigurðssonar við
að gera upp reikninga bæjar-
ins og fyrirtækja hans? Hverju
nam aukavinna þeirra, sem voru
honum til aðstoðar? Varðandi
Búkollu: Hver er orðinn heildar
kostnaður við þessa vél, kaúp-
verð, vaxtagreiðslur, viðgerðir,
endurbætur og rekstur þessi ár,
sem hún hefur verið í eigu
bæjarins? Hverjar hafa heildar-
tekjur orðið af framleiðslu
hennar á sama timabili?“
Það er kominn timi til að
færa saman reikninga bæjar-
sjóðs, rafveitu sjúkrasamlags og
sjúkrahúss, Rekstur . þessara
fyrirtækja allra er ekki yfir-
gripsmeiri en gengur og gerist
hjá stórfyrirtækjum á fjölbýlis-
svæðum landsins og þurfa þau
þó ekki fjóra forstjóra, hvert
um sig, fjölda gjaldkera, eða hóp
af skrifstofufólki. Og því er
spurt: Verður Sjúkrasamlagið
starfandi áfram með forstjóra
og starfstúlku? Hefur nú þegar
eða verður-_______Sjúkrahússráðs,-
manninum, (sem eftir nokkurra
mánaða starf hækkaði úr 17.
launaflokki í 22.) heimilað að
ráða bókhaldara sér til aðstoð-
ar? Getur ekki bókhaldsskrif-
stofa bæjarins annast bókliald
fyrir öll fyrirtæk hans?
Skaltborgari.
Svör blaðsins:
1. Reikningur Bárðar Sigurðs
sonar fyrir uppgjör 1971 er ó-
kominn, en 1970 kostaði vinna
hans við uppgjör reikninga
bæjarsjóðs, hafnarsjóðs óg vatns
veitu kr. 94.000,00. Ferðakostn-
aður, tryggingar og uppihald
námu 1971 kr. 27.550,00. Læt-
ur sennilega nærri, að heildar-
kostnaður hvort ár hafi orðið
um 120 þús. ikr. Um aukavinnu
er erfitt að segja nákvæmlega,
þar sem aukavinna vegna upp-
gjörs er ekki greind frá ánnarri
aukavinnu hjá bókhaldi bæjar-
ins.
2. Erfitt er að segja nákvæm-
lega til, um þetta. Kaupverð,
vextir, viðhald og hluti vélar-
innar af svonefndum sameigin-
legum vinnuvélakostnaði mun
hafa verið um 3,5 millj. kr. Tekj
ur á sama tímahiiiinu námu ca.
1,3 millj. kr„ og er þá gert ráð
fyrir, að áætlun verðmætis þess,
sem vélin framleiddi í hayst
áður en hún var seld, standist.
3. .Sjúkrasaml. mun starfa :ó-
breylt fyrst um sinn. M. a. er
eftir að gera upp reikninga
þess og sjóði. Stærsta breytiþg-
ip ,á starfsemi þess vegna pý-
séttra laga er sú, að innheimta
sámlagsgjalda hjá samlágsmeð-
'li'mum fellur niður. Viðskipti
við lækna, sjúkrahús, lyfjabúð-
.ir_og aðra aðila. seni samlags-
meðlimirnir skipta við, breyt-
ist hinsvegar ekkert.
4. Stjórn Sjúkrahúss Siglu-
fjarðar heíur ekki heimilað
ráðningu bókhaldara til að ann-
ast bókhald fyrir sjúkraliúsíð,
enda hefur sjúkrahúsráðsmaður ( Verður rafveitustjóri þvi að
ekki leitað eftir heimild til að bíða enn um stund eftir hækk-
bæjarstjórn, sýndist ekki rétt
að taka ákvörðun í málinu
nema fyllri upplýsingar lægju
fyrir. Meirililutinn féllst á þessa
afstöðu, og frestaði bæjarstjórn
að taka afstöðu lil málsins.
ráða slíkan starfskraft.
5. Endursikipulagning skrif-
stofustarfa hjá bænum og bæjar
stofnunum, með samfærzlu og
hagræðingu fyrir augum, hefur
verið til umræðu öðru hverju
í bæjarstjórn í mörg ár, en
strandað m. a. á því, að hent-
ugt húsnæði var ekki fyrir
hendi. Rætt hefur verið um að
að koma annarri hæðinni í Ráð
húsinu í notkun í þessu skyni,
en það er sennilega milijóna-
fyrirtæki, m. a. vantar inngang,
Hafa aðrar þarfir verið taldar
meira aðkalíandi, en fé bæjar-
sjóðs til framkvæmda hefur ver
ið mjög takmarkað um árabi).
Úr ýmsum áttum
Rafmagnshækkun
Eins og Mjölnir spáði á sin-
um tíma, var ekki langt iiðið
á árið, þegar rafveitustjóra tók
að lengja eftir hækkun á töxt-
um rafveitunnar. Fyrir síðasta
bæjarstjórarfundi lá samþykkt
meirihluta rafveitunefndar um
10 % meðalhækkun á töxtunum.
Með þessari samþykkt fylgdu
engar skýringar né greinargerð
um nauðsyn þessara breytinga,
— nema þá helzt þá, að aðrar
rafveitur ætluðu áð hækka.
Fulltrúum Mþýðubandalags-
ins, bæði 1 rafveitunefnd og | bæjarstjórnar. Meðal erinda
luninm sinni.
Nákvæmar upplýsingar um
afkomu rafveitunnar s. 1. ár
hljóta að vera fyrir hendi, þó
þær hafi ekki fylgt hækkunar-
béiðninni. Bókhald rafveitunn-
ar er mjög einfalt og ljóst, enda
eru þess dæmi, að uppgjöri
ársreikninga hafj verið lokið
í janúar.
Komi það í ljós, að rnikill
hagnaður, ef til vill milljónir,
hafi orðið á rekstrj rafveitunn-
ar s. 1. ár, sýnast rök fyrir
hækkun nú vera talsvert lang-
sótt.
Takmarkaður skilningur.
Stjórn Þormóðs ramma h. f.
samþykkti á fundi sínum 15.
marz s. 1. að gera tilboð í rúml.
100 tonna bát. Var þessi á-
kvörðun tekin vegna skorts á
hráefni til frystingar. Til þess
að þessi tilraun væri raunhæf,
þurfti að afla 4ra milljón kr.
bæjarábyrgðar, sjálfskuldar-
ábyrgðar.
Atkvæði féllu þannig í bæj-
arstjórn, að sex bæjarfulltrúar
samþykktu að veita ábyrgðina.
Tveir, Knútur Jónsson og Krist-
ján Sigurðsson, greiddu ekki
atkvæði, og einn var á móti,
Þormóður Runólfsson.
Stefán bæjarstjóri
er nú í Reykjavík á ýegum
hans er að ræða við mennta-
málaráðuneytið um möguleik-
ana á að nýta hóteirými hér
sem heimavist fyrir gagnfræða-
skólanemendur, er hingað
sæktu til náms. Þetta mál er
búið að vera á döfinni í mörg
ár, en hlaut engar undirteklir
hjá viðreisnarstjórninni sálugu.
Annað erindi Stefáns, og
kannske veigameira, mun vera
að reyna að fá langtímalán og
aðstoð ríkisvaldsins við að
semja um gjaldfallnar en ó-
greiddar skuldir bæjarins. Er
hér iíka um að ræða mál, sem
ekki örlaði fyrir skilningi á hjá
viðreisnarstjórninni, því ekki
er að efa, að Stefán hefur sótt
það fast við Eykon vin sinn
og aðra áhrifamenn Sjálfstæðis-
flokksins að fá fyrirgreiðslu á
þessu sviði.
Heildaraflj
lagður á land á Siglufirði s.l.
ár var um 7600 tonn, en 65600
tonn árið 1970.
Afli á Norðurlandi öllu varð
s. 1. ár 47.794 tonn, e 44.655
tonn árið 1970. Hér er átt við
svæðið frá Skagaströnd til
Þórshafnar.
Gjafir.
Frétzt hefur á skotspónum
að enn einn bryggjueigadi vilji
nú óður og uppvægur gefa
bæjarbúum eign sína. Sumum
framámönnum í bæjarmáljim
finnst nóg um þessa góðvild,
— sjá éftir þeim opinberu
gjöldum, sem ekki hafa fengizl
greidd í“mörg ár. Síldarkóngar
' 'fýrri tíma eru nú að þakka
Siglfirðingum fyrir allt gamalt
og gott.