Mjölnir - 29.06.1972, Qupperneq 1
Nýju tekjustofnalögin gerbreyta
fjárhagsafkomu Siglufjaröar
bæjarstjórans, livað snertir
reikningsyfiriitið fyrir 1971, en
úr tillögum bæjarstjórnarmeiri-
Á síðasta þingi beitti ríkisstjórnin sér fyrir mjög víð- tölur þær, sem hér eru birtar,
tæikiim breytingum á lögum rnn tekjustofna sveitarfélaga. | erL1 teknar úr eiginhandarriti
í þessum breytingum felast bæði stórauknar tekjur til
þeirra sveitarfélaga, sem um árabil hafa verið í f járhags-
vandræðum, og einnig það, að ríkið yfirtekur nú allan
löggæztukostnað og að verulegu leyti þaim kostnað, sem
sveitarfélögin höfðu áður vegna greiðslna til sjúkra-
samiaga og Tryggingarstofnunar ríkisins.
Þegar bornár eru saman bráðabirgðatölur um rekstur
Siglufjarðarbæjar 1971 og fjárhagsáætlun fyrir 1972,
kemur eftirfarandi í ljós:
Tekjur:
Útsv., aðst.gjöld,
Jöfuunarsjóður, aukaframl.
F asteignaskattar
Framl. jöfnunarsjóðs
Vegna afn. skiftiútsv.
Áætlun 1972 Breyting
26:4 55. þús, 25.830 þús. 625 þús
1.712 — 6.500 — + 4.788 —
5.402 — .6.500 — + 1.098 —
657 — 960 — + 303 —
Hækkun tekna 5.564 þús
hlutans hvað viðkemur áætlun-
um ársins 1972.
Sízt oftalið
Mjölnlr vill benda á, að íull
ástæða er til að ætla, að hér sé
hagnaður Siglufjarðar ai' hinni
nýju lagasetningu sízt oftalinn.
Blaðið álítur t. d. að tekjur af
útsvörum, aðstoðargjöldum og
aukaframlagi jöfnunarsjóðs séu
áætlaðar allt að 1 milljón kr.
of lágt, og að auki séu lands
útsvör of lág áætluð.
Breytir strax
Þessi bætti hagur kaupstaðar-
ins kemur þegar á þessu ári
mjög greinilega í ljós í mjög
auknu framkvæmdafé, og einn-
ig í auknum afborgunum
skulda. Útgjöld til vegamála,
sem eru lang stærsti fram-
kvæmdaliður bæjarins, hækka
t. d. úr lcr. 2.556 þús. í fyrra
upp í 8.883 þús. 1972, eða um
rúmlega 6,3 miilj. kr.
Mjölnir vill að lokum bæta
fyrir vanrækslu bæjaryfirvalda
og flytja ríkisstjórninni og þing
meirihluta hennar þakkir Sigl-
firðinga fyrir nýju tekjustofna-
lögin.
Gjöld:
Bráðabirgðatölur 1971
Framl. til sjúkrasaml.
Iíostn. við löggæzlu
Til almannatrygginga
Áætlun 1972 Breyting
4.222 þús. 2.250 þús. 1.972 þús.
1.762 — fellur niður 2.114 —
3.550 — fellur niður 4.260 —
Lækkun gjalda 8.346 þús.
Hér er áætlað, að löggæzlukostnaður og framlagið til almanna-
trygginga, sem nú falla niður hefði, ef það hefði verið lagt á
núna, verið um 20% hærra en sl. ár.
Hækkun tekna og lækkun gjalda hjá Siglufjarðarkaup-
stað vegna nýju tekjustofnalaganna er því kr. 13.910.000,oo
Gerbreytt afkoma
Hiklaust má fullyrða, að hin
nýju tekjustofnalög gerbreyta
allri fjárhagsafkomu bæjarins,
eins og raunar má sjá á þessu
yfirliti. Það skal tekið fram, að
Aldarfjórðungs afmæli
millilandaflugs Loftleiða
Þann 17. júní sl. voru liðin
25 ár síðan fyrsta íslenzka
millilandaflugvélin fór fyrstu
áætlunarferðina til útlanda. Var
það Skymastervélin Hekla,
eign Loftleiða ,sem flaug til
Kaupmannahafnar með 37 far-
þega 17. júní 1947. Tók það
flug sjö klukkustundir.
Nú fer þota Loftleiða þessa
sömu ferð á 2 klst. 50 mín.
1 árslok 1947 var heildár-
tala starfsmanna Loftleiða 52,
og heildarveltan það ár rúm
lega 3,7 millj. kr. Nú er starfs-
liðið um 1300 manns, fastráön-
ir, en fleira yfir annatímann.
Lætur nærri, að um 1% verk-
færra Islendinga starfi hjá Loft
leiðum. Veltan sl. ár var rúrn-
lega 2,7 milljar'öar kr.
Landkyiming
Framlag félagsins til íslenzks
atvinnulífs er þó meira en
starfsmannafjöldi segir til um.
Félagið rekur umfangsmikla
landkynningu, en hún er eín
undirstaða allra ferðamála, sem
eru orðin stór atvinnugrein.
1963 hófu Loftleiðir boð
skipulagðra viðdvala erlendra
farþega á Islandi, og var fyrst
um einn sólarhring að ræða,
en síðan voru viðdvalirnar
lengdar, og nú eiga farþegar
Loftleiða kost á þriggja daga
skipulagðri viðdvöl á Islandi
allan ársins hring. Alla daga
eru farnar tvær kynnisferðir
um Reykjavík með leiðsögu-
manni, og alla daga ein austur
yfir fjall, Gullfoss- Geysis-
Þingvallahringinn að sumarlagi,
en ti) Hveragerðis aðra árstíma.
Fyrsta árið tóku 1798 viðdvalar
boði félagsins, en í fyrra
14.888. Árangur viðdvalar-
boðanna og baráttu Loftleiða
fyrir eflingu ferðamála olli því,
að stjórnin ákvað að reisa hótel
i Reykjavík. Var það opnað 1.
mai 1966, og var þá stærsta og
nýtízkulegasta hótel landsins.
Siðar var bætt við 110 herbergj
um. Er Hótel Loftleiðir nú
sambærilegt við beztu erlend
hótel.
Skrifstofur
Loftleiðir hafa eigin "skrif-
stofur í mörguim löndum í
Evrópu og Ameríku, auk fjölda
umboðsmanna allt frá Hong
Kong til Jóhannesarborgar og
margra borga í Suður-Ameriku.
Mestu umsvif Loftleiða í Ev-
rópu eru í Luxemburg, þar
sem um 150 manns starfa lijá
félaginu. Vestan hafs er New
York mesta bækistöð félagsins.
Annálsverður kapítuli
Fyrsta starfsár sitt flúttu
Ekki talin ástæða
til að leigja skip til
síldarleitar
1 maímánuði s. 1. var fundur
haldinn í Alþingishúsinu um
sildarleit fyrir Norðurlandi í
sumar. Á fundinum voru þing-
menn úr Norðurlandskjördæm-
unum báðum og af Austurlandi
og jafnframt Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur, og Jón L. Arn-
alds, ráðuneytisstjóri í Sjávar-
útvegsmálaráðuneytinu. Rætt
var einkum um þann mögu-
leika, að fengin yrðu eitt eða
tvö skip með góðum skipstjór-
um til vardlegrar síldarleitar
fyrir Norður- og Austurlandi, en
uppi hafa verið raddir um, að
ekki sé nægilega fylgzt með
hugsanlegum sildargöngum.
Jakob Jakobsson dró í efa, að
rétt væri að leggja mikla á-
herzlu á síldveiðar fyrir Norð-
ur- eða Austurlandi að þessu
sinni. Hvað snertir norska síld-
arstofninn, þá værum við Islencí
ingar að reyna að fá Norðmenn
til að takmarka veiði sína á
þessari síld sem allra mest, svo
að stofninn fengi tækifæri til
að vaxa, og því væri hæpið af
Islendingum að sækja fast i
þann stofn á sama tíma.
Hins vegar væri það svo með
íslenzka síldarstofninn, að veið-
ar hefðu verið bannaðar fyrir
sunnan og vestan land í þeim
tilgangi að vernda stofninn, og
það væri að sjálfsögðu í algerri
andstöðu við anda þessa banns,
■ \ \ \ - \;
\ \ \
ef farið yrði að veiða íslenzka
síldarstofninn fyrir norðan og
austan.
En jafnvel þótt síldveiðar við
Norður- og Austurland væru
taldar eðlilegar og æskilegar,
kvaðst Jakob ekki telja ástæðu
til að leigja sérstök skip og
senda þau til síldarleitar. Haf-
rannsóknarskipið Bjarni Sæin-
undsson færi í hinn árlega vor-
leiðangur í júní, og fullyrti
Jalcob, að það hefði aldrei
brugðist þau 18 ár, meðan síld
veiddist við landið og slíkir
leiðangrar voru farnir, að þá
liefði ævinlega fundizt einhver
síld. Fyrst væri því að sjá,
hvort leiðangurinn sýndi, að
einhver síld væri við landið.
Auk þess yrði Árni Friðriksson
og 4 erlend skip við rannsíkn-
ir og fiskileit við Norður- og
Austurland í sumar.
Á fundinum kom það meðal
annars fram hjá Jakobi Jakobs-
syni, að ef þannig hefði nú
slaðið á, að síldarstofninn væri
stór, hefði tvímælalaust verið
spáð góðu síldarsumri, því að
skilyrðin væru nú góð. Eftir
1965 hefðu lífsskilyrði fyrir
síldina verið mjög erfið fyrir
Norðurlandi, og síðan hefði
stofninn rýrnað vegna mikillar
smásíldarveiði Norðmanna og
lélegrar hrygningar.
Bæjarstjórn þakkar tekjustofnalögin
Á fundi bæjarstjórnar Sfglufjarðar 27. þ. mán., þar sem
afgreiddar voru fjárhagsáætlanir bæjarstofnana fyrir
1972, var eftirfarandi samþykkt gerð:
„Bæjarstjórn Siglufjarðar lýsir yfir ánægju sinni
með þær breytingar á lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga, sem gerðar voru á síðasta þingi, að því er
varðar hluíl Siglufjarðarkaupstaðar, og þakkar
háttvirtri ríkisstjórn forgang hennar í málinu.“
Samþykktin var gerð með 9 atkvæðum, nema síðasta
setningin, þar sem ríkisstjórninni er þökkuð forganga
hennar, sem var samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1, en
2 sátu hjá.
Loftleiðir 484 farþega, alla í
innanlandsflugi. 1971 flutti fé-
lagið 300 þúsund farþega Janda
í milli. Sá kapítuli í flugsögu
Loftleiða hófst hinn 17. júní
fyrir aldarfjórðungi. Hann mun
'alltaf verða eftirminnilegur í
sögu áætlunarflugferða yfir
Norður-Atlandshafið, og áreiðan
lega varðveitast vel í annálum
Islendinga, en þess vegna liafa
nú verið rifjuð upp nokkur
minnisatriði frá ferli háns
Stjórn Loftleiða skipa nú
Kristján Guólaugsson hæsta-
réttarlögmaður, sem er formað-
ur hennar, Alfreð Elíasson aðal-
framkvæmdastjóri Loftleiöa,
E. K. Ölsen, flugrekstursstjóri
Loftleiða, Einar Árna-
son forstjóri og Sigurður
Helgason, framkvæmdasijóri
Loftleiða í New York, en hann
er varaformaður félagsstjórnar-
innar.
Ný röntgentæki
Hinn 21. þ. mán. var frétta-
riturum sýnd ný röntgen-
tækjasamstaða, sem Sjúkrahús
Siglufjarðar hefur eignazt.
Ólafur Þ. Þorsteinsson sjúkra-
húslæknir sýndi tækin og gsrði
grein fyrir notagildi þeirra, um
fram eldri tækin. Taldi hann,
að tæki þessi, sem eru þýzk að
uppruna, væru mjög fullkomin.
Tækin kosta uppsett um
hálfa fjórðu milljón króna.
Kvenfélag Sjúkrahússins gaf
hluta sjúkrahússins í tækjun-
um, 1,2 milljónir króna.
Hefur félagið þá lagt til hins
nýja sjúkrahúss nálægt fjórum
milljónum króna. Stendur
Sjúkraliúsið, og bæjarbúar allir
í mikilli þakkarskuld við féiag-
ið, fyrir þá ómetanlegu aðsloð,
sem það hefur veitt málefnum
sjúkrahússins frá upphafi.